Konunglegur Skandinavískur Sígauna Fiðludjass
Pjavúúú þvílíkir tónleikar maður. Já maður er bara alltaf á einhverjum tónleikum þessa dagana og núna skruppum við Óli Egils á djasstónleika á Nasa. Svo litu forsetinn og norski krónprinsinn með okkur líka. Ég nennti nú samt ekkert að vera að tala við þá, frekar snobbað og leiðinlegt lið sko. Jæja en nóg um þá kauða. Þessir tónleikar voru semsagt með tríói Ola Kvanberg sem er 22 ára Norðmaður sem spilar á fiðlu eins og ég veit ekki hvað. Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei séð annan eins fiðluleik (fyrir utan Óla að sjálfsögðu)!!! Maðurinn var bara að gera hluti sem ég botnaði bara ekkert í, svo var trommarinn líka alveg stórkostlegur og bassaleikarinn var alveg hrottafenginn, hann söng alltaf með sólóunum sem hann tók. Ég get samt ekki líst þessum tónleikum nógu vel, fólk hefði þurft að vera þarna. Það má kannski segja að þetta hafi verið nútímalegir Graffelli tónleikar, en fyrir þá sem ekki vita það þá er Stefan Graffelli fiðluleikarinn sem er þekktastur fyrir að spila með Django Reinhardt, og fyrir þá sem ekki vita hver Django Reinhardt er þá.......jaahhh...jájá. En þessi Ole Kvanberg lærði einmitt hjá Graffelli áður en hann lést greyið.
En annars er maður sprækur bara. Ég fékk býsna öflugann hroll um daginn og fylgjandi gæsahúð þegar ég var að lesa um sporðdreka á vísindavefnum, en þar kom fram að stærsta sporðdreka tegundinn geti orðið 20 cm "Hrollur 1". Svo las ég það að fyrir nokkur þúsund árum þá voru til sporðdrekar sem urðu allt að 1 meter á lengd!!!!!! "skítahrollur og gæsahúð sem náði í gegnum ullarpeysuna sem ég var í þegar ég las þetta". Djöfulsins viðbjóður maður. Ég er nú bara hissa á því að sporðdrekar ráði ekki jörðinni þar sem þeir náðu svona mikilli stærð....en ójæja við höfðum yfirhöndina.......í þetta skiptið!!!!!
þriðjudagur, júní 29, 2004
laugardagur, júní 26, 2004
Jóns Hafliða stafrófið
Ég rakst á þetta í íslenskri kennslubók.
Jón Hafliði er: Afburðagaur, Ákjósanlegur, Bestur, Dásamlegur, Eftirtektarverður, Frábær, Guðdómlegur, Hörkutól, Innblástur, Íslendingur, Jón, Kjarkmikið Karlmenni, Lítillátur, Minnisverður, Naut, Ofurmannlegur, Prúðmannlegur, Röskur, Sigurvegari, Trýtilbuxi, Undraverður, Voldugur, Yfirburðanáungi, Ýktur, Þjóðarhetja, Æðislegur, Öndvegismaður.
Já svona er þetta, svo voru nótur og hljómar við þetta og allt.

fimmtudagur, júní 24, 2004
Smooooooooooooke on the waaaaater
Ja hérna þvílík og önnur eins snilld. Þvílíkir tónleikar maður. En fyrir þá sem ekki vita þá vorum við Hulda á tónleikum með Deep Purple í laugardalshöllinni í gærkvöldi og voru þeir hreint út sagt stórkostlegir. Ég var dálítið skeptískur þar sem það eru jú 30 ár síðan þeir voru uppá sitt besta og svo voru Ritchie Blackmore og Jon Lord ekki með lengur. En guð minn almáttugur, þeir sem voru í aðalhlutverki á þessum tónleikum voru einmitt Steve Morse sem var á gítarinn í staðinn fyrir Blackmore og Don Airey á Hammondinn fyrir Lord og að sjálfsögðu Ian Gillan. Það er ekkert venjulegt hvað maðurinn getur öskrað ennþá og er hann að verða sextugur kallinn. Þeir tóku bæði gömul og klassísk lög eins og Black Knight, Smoke on the Water, Hush og Strange Kind of Woman. Svo tóku þeir líka ný lög af Bananas plötunni sem mig minnti að hefðu verið frekar slöpp, að minnsta kosti það litla sem ég hafði heyrt af henni en svo var þetta bara þrælflott á tónleikunum. Svo má nú ekki gleyma upphitunarhljómsveitinni, Mánum, sem hafa ekki spilað í þrjátíu ár og þeir voru samt alveg magnaðir, þetta er hljómsveit sem er alger synd að maður hafi ekki uppgötvað fyrr en það var ekki laust við að ég hafi fengið dágóða gæsahúð þegar þeir fluttu gömlu snilldina.
Semsagt, tær snilld.

mánudagur, júní 21, 2004
Hvers á maður að gjalda?
Ég uppgötvaði mér til mikillar ánægju í gærkvöldi að ég ætti ekki að mæta í vinnuna fyrr en kl. 1600 í dag í stað 0800 eins og ég hélt. Ahhhh það yrði sko sofið ljúfum svefni.......En nei, alls ekki leikur lífið svo vel við mig, eða hvað? Ég vaknaði klukkan hálf tíu í morgun við háværa röddu fyrir utan gluggann minn. Rödd sem ég hafði ekki heyrt síðan á æskuárum mínum í Norðfirði þegar ég fór út á hverjum einasta degi til þess að leika við vini mína í Mýrunum. Venjulega þegar ég er vakinn svona að óþörfu af látum fyrir utan gluggann hjá mér þá bregst ég hinn versti við og óska þeim hinum sama sem er með þessi læti alls hins versta. En ekki í morgun. Því í morgun var ég vakinn af engum öðrum en Lilla Apa í brúðubílnum!!!!!!! Ég hélt að brúðubíllinn og Lilli Api væru löngu horfnir af sjónarsviðinu og í stað þeirra væru komnir Lilli Mús og brúðufartölvan. Alveg magnað helvíti. Ég fór bara á fætur og lagaði mér kaffi og settist í sófann og fylgdist með út um gluggann. Ég hætti því samt mjög fljótlega eftir að eitthvað foreldrið leit inn um gluggann og sá mig, sitjandi á sloppnum, í hvítum tannlæknaklossum , með kaffibolla í hendinni, horfandi á Lilla Apa og brúðubílinn.

föstudagur, júní 18, 2004
Hver er þessi Valdi Dauði?
Athyglisverð spurning sem ég fékk einu sinni og ég vissi ekkert hverju ég átti að svara því ég vissi bara ekkert hvað vinur minn var að tala um þegar hann spurði að þessu. Jú þá var, ef ég man rétt (sem er mjög líklega vitlaust), hann Hjálmar vinur minn, vel í glasi, að fara að fá sér eina sígarettu og á sígarettupakkanum stóð þessi eignarlýsing: Sígarettur Valda Dauða! Sígarettur Valda Dauða?!? Hver er þessi Valdi Dauði? Spurði Hjálmar og úr því hlóðust upp fleiri spurningar í huga mínum. Hvaðan kemur hann? Er hann sölumaður dauðans? Ber hann ábyrgð á dauða frægra dægurlagasöngvara og annara góðra manna? Eða er hann bara goðsögn? Eða er ég bara að missa vitið? Svei mér þá ég bara veit það ekki hugsaði ég og fékk mér smók og hóstaði eins og berklasjúklingur og Valdi Dauði glotti við tönn.
P.s. Ég reyki ekki! Smókurinn sem ég tek í sögunni er einungis grá skrautfjöður í þessa stuttu frásögn. Mig vantaði endi. Og ég klúðraði honum.

miðvikudagur, júní 16, 2004
jájá
Jæja aldrei nennir maður nú blogga, undarlegt hvað maður nennir samt að gera mikið af því þegar skólinn er byrjaður. Annars rann yfir mig óstjórnleg löngun til þess að versla mér tónlist fyrr í dag og lét ég að sjálfsögðu verða af því enda langt síðan ég hlustaði á eitthvað nýtt. Fannst það nú liggja beint við að kaupa mér eitthvað með placebo þar sem ég er víst að fara á tónleika með þeim 7. júlí, hálf asnalegt að fara á tónleika með hljómsveit sem maður á ekkert með, lenti í því nákvæmlega sama fyrir foo fighters tónleikana sem ég fór á í haust, sem voru alveg fullkomlega geðbilaðir tónleikar og maður svitnar ekki einu sinni svona mikið í golfi eins og á þessum tónleikum, ekki það að maður svitni mikið í golfi, en ég svitna nú bara yfirleitt ekkert mikið, hef aldrei gert mikið af því að svitna, ég þarf allavega að hafa býsna mikið fyrir því að kreista fram ein svitadropa á ennið og nú er ég farinn að tala óþarflega mikið um mig og að svitna þannig að ég ætla bara að hætta að skrifa áður en ég fer að svitna á scrotum.
ble

mánudagur, júní 07, 2004
Sköpun bloggsins
Í upphafi skapaði Guð tölvur og internetið. Internetið var þá autt og tómt, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi guðs sveif yfir módemunum. Guð sagði: "Verði blogg!" og það varð blogg. Guð sá, að bloggið var gott og guð greindi bloggið frá klámsíðunum.
Einmitt
Jæja mikið er maður nú búin að vera latur að blogga upp á síðkastið. Það er nú margt búið að vera um að vera síðan ég bloggaði síðast og djöfull er fíflið með sláttuvélina fyrir utan gluggann hjá mér óþolandi, veit hann ekki að ég er að reyna að hlusta á Jeff Buckley?!?!? Ég skrapp austur og spilaði í sextugsafmæli þar síðustu helgi og Greb Ramidlav gaf mér næstum því hjartaáfall. Mjög lymskufullt og illt af honum. Svo fórum við Hulda vestur á Hólmavík um helgina og var það bara nokkuð gaman, tókum svokallaðann Drangsnes hring, sem liggur frá Hólmavík og yfir Bjarnafjarðarháls niður í Bjarnafjörð og þaðan fer maður til Drangsnes, sem er svefnbær, og svo aftur til Hólmavíkur. Það er allt morandi í þjóðsögum þarna fyrir vestan, ein var um stóran stein sem var eins og selshöfuð í laginu. Þarna var víst eitthvað par á röltinu fyrr á öldum og það bara gat ekki hamið kynhvötina og fullnægðu hvort öðru undir þessum stein. Jæja, stúlkan varð ólétt og þau viltu víst ekki að þetta kæmist upp svo þau tóku nýfædd barnið og skyldu það eftir undir þessum steini, hvort að krakkinn hafi verið eitthvað fatlaður í framan man ég ekki en það hlýtur samt að vera því að þegar hjónin ætluðu að fara að tékka á barninu daginn efir þá var það horfið!!!!! Svo gengu sögur af því mörgum árum seinna að kona væri á flakki þarna á heiðinni með höfuð eins og selur og væri að éta rollur og lömb og hrella fólk sem væri þarna á flakki!!! Ja há!!! Þannig var það nú.
bimbirimm

miðvikudagur, maí 26, 2004
Jæææææja
Jæja þá eru prófin löngu búin og það er orðið helvíti langt síðan ég skrifaði eitthvað af viti hérna............nei bíddu ég hef aldrei skrifað neitt af viti hérna.....best að vera ekkert að því. Já síðast þegar ég skrifaði þá var ekki ennþá búið að afhausa bandaríkjamanninn þarna úti í írak, en nú er það búið að eiga sér stað og ég fór auðvitað mjög fljótlega eftir að ég frétti að það væri komið á netið að leita myndbandinu. Ég fann það ekki, og af hverju ekki? Nú ég hætti að leita!! Ég hugsaði með mér meðan ég var að leita þessu: "hvað er eiginlega að mér? Ég er hérna að leita að myndbandi þar sem hausinn er sagaður af saklausum manni!!!" Djöfull getur maður verið sjúkur stundum. Ég er eiginlega bara nokkuð ánægður með það að hafa ekki séð þetta myndband því að þeir sem hafa séð það segja að þeir hefðu alveg viljað sleppa því að sjá þetta. En nóg um það.
Ég skellti mér á Troy um daginn og ég verð nú bara að segja að mér fannst hún bara nokkuð góð, ég vissi samt ekki að Akkiles hefði verið svona mikill hrokagikkur. Ég hef nú aldrei lesið Ilíóns kviðu eða Oddyseifskviðu en maður á sjálfsagt einhvern tíma eftir að lesa þær þar sem við Hulda keyptu þær báðar á 250 kall í bóksölu stúdenta, alger snilldarsala í gangi þar þessa dagana, klassískar bókmenntir á spottprís, við keyptum góðan bunka af bókum, t.d. las ég The journey to the center of the earth eftir Jules Verne fyrir stuttu og var hún bara alveg þrælskemmtileg og mæli með því að sem flestir lesi hana.
Jæja nóg af bulli í bili. Piff. Jón Hafliði

miðvikudagur, maí 12, 2004
Jæja já
Jæja já þá eru prófin bara alveg að verða búin, eitt próf eftir, laugardaginn 15. maí, örveru og ónæmisfræði, klukkan 0900-1200, aðalbyggingu háskóla Íslands, stofu.......ég man það ekki. Þetta á eftir að vera skemmtilegur dagur, það bendir allt til þess að það verði allsherjar partý hjá deildinni (sem þýðir að það koma um 20 manns, þetta er lítil deild) með tilheyrandi pítsuáti, bjórdrykkju og júróvisjón glápi og að sjálfsögðu ótæpilegrar ölvunar af minni hálfu sem og annarra. Ætla reyndar ekki að vera gjörsamlega út úr kortinu, ég þarf nefnilega að fara í flug daginn eftir og ég nenni nú ekki að vera þunnur ú fluginu, það er óhollt fyrir líkama og sál.
En hvernig ætli júróvisjón fari? Ég verð nú bara að viðurkenna það að mér finnst þetta lag bara alveg ágætt, mér finnst yfirleitt þetta helvítis froðupopp sem er alltaf sent svo hrottalega leiðinlegt að það nær engri átt!!! Angel er tvímælalaust eitt hryllilegasta "lag" sem samið hefur verið, lagið í fyrra var alger horror líka, tell me var engan veginn ásættanlegt o.s.frv. Ég er semsagt ekki neinn voðalegur júróvisjón fan, en maður horfir samt alltaf á þetta, það er bara stimplað í mann og mér finnst stemmningin í kringum þetta bara alveg þrælskemmtileg, þetta er svona eins og áramótaskaupið, það er yfirleitt ekkert sérstakt, en samt er af einhverjum ástæðum gaman að fylgjast með þessu. Þetta er undarlegt, kannski getur Orri útskýrt þessa hegðun fyrir mér......eða hvað? Hann ætlar líka að horfa, er hann þá marktækur? Orri?
Jæja ég ætla að fara að lesa um streptococcus og staphylococcus sýkingar og þá sérstaklega um staphylococcus aureus og streptococcus mutans sem hafa mjög klínískt vægi innan tannlækninganna.
Yamas.

mánudagur, maí 10, 2004
Best að blogga aðeins
Jæja það er orðið dálítið langt síðan maður bloggaði. Hverjum ætli sé svo sem ekki sama, það les enginn bloggið mitt því ég er svo leiðinlegur og glataður................hahahaha nei nei ég segi nú bara svona, auðvitað lesa allir bloggið mitt, því ég er svo skemmtilegur og sniðugur.
En já ég lenti í aðstöðu um daginn, eða réttara sagt Hulda lenti í aðstöðu sem allir hafa lent í, en hún fékk hiksta. Ég kom að sjálfsögðu með eina ráðið sem virkaði og sagði henni að halda niðri í sér andanum í dágóðann tíma ooooooog viti menn..........það virkaði ekki?????!!!!!????!!!??!!??! HA?!? Þá rifjaðist það upp fyrir mér að fólk virðist nota fleiri aðferðir en mína, hina einu réttu, til þess að losna við hikstann. Það eru til alls kyns undarlegar aðferðir. Þess vegna ætla ég að biðja þá sem þetta lesa að koma með einhverja góða aðferð sem þeir telji virka svo ég standi ekki bara með tómar hendur næst þegar ég eða Hulda fáum hiksta ef mín, hin eina rétta, aðferð klikkar (sem er bara eins og þyngdaraflið hætti að virka!!)
Kv. Johnny

sunnudagur, maí 02, 2004
Hmmmm....
Jæja, næsta próf á morgun er líffræði munns II. Ég gæti útlistað hér lífeðlisfræðilegum staðreyndum um sársauka fyrir ykkur en þar sem ég held nú að fáum þyki það skemmmtilegt þá ætla ég að sleppa því, en þeir sem vilja fræðast um tannpínu geta sett inn beiðni á commentin og ég svara um hæl þegar mér hentar og ef ég vil.
Það var einhver pjakkur í USA tekinn í yfirheyrslu af FBI fyrir það að teikna mynd af Bush í líki djöfulsins og með sprengjur í hendi, kennaranum fannst þetta ekki vera sérstaklega þjóðræknislegt svo honum fannst ástæða til þess að hringja í lögregluna, lögreglunni fannst þetta svo alvarlegt mál að þeir hringdu í FBI. Ha? OK, auðvitað.
Ég var að velta einu fyrir mér. Nú er það víst þannig að gyðingar mega ekki borða svínakjöt. OK, ekkert að því svo sem. En svo fór ég að pæla í einu. Nú er Dorrit gyðingur, og hún er gift forseta Íslands (formerly known as Óli grís)! Skyldi hún þá nokkurn tímann..........þið vitið? Bara örlítið heimskuleg pæling, en fólk fær mikið af þeim í próftíð.
Kv. Dr. J

laugardagur, maí 01, 2004
Jón Ungi
Jæja þá er maður búin að raka viðbjóðinn úr andlitinu á sér, en ég skildi nú smá eftir. Ég skildi eftir gullfallegar kótilettur til þess að undirstrika karlmennsku mína (ekki að það hafi verið þörf á því). Þetta eru ekkert ósvipaðar kótilettur og á Neil Young (það verður einhver að fara að kenna mér að setja inn myndir á þetta dót). Neil Young er mikill snillingur en ég skammast mín mikið fyrir það að eiga enga plötu með kappanum.
Annars er bara fjör í prófunum og klárast þau 15. maí og þá verður mikið fjör. Hulda klárar prófin á mánudaginn 3. maí, 3. maí????? Sumt fólk er ekki einu sinni byrjað í prófunum þá, þetta er rosalegt.
En já nú er bara komin maí. 1. maí. Ég á afmæli í dag. 23 ára gamall, magnað. Við erum nú nokkrir félagarnir sem eigum afmæli í maí, ég man að það var alltaf gósentíð í afmælunum í maí. Fyrst átti ég afmæli, svo kom hann Haukur Ingvar 4. maí og svo Ólafur Arnar 13. maí, svo skömmu seinna kom Ölver 22. maí. Þetta var sko magnaður mánuður í den tíð og klikkaði það yfirleitt ekki að það var farið í fótbolta í lokin á hverju einasta afmæli og það var slegist um hver yrði með afmælisbarninu í liði sem leiddi ávallt til þess að liðið sem afmælisbarnið var í vann, enda kom ekkert annað til greina, að tapa fótboltaleik á afmæisdaginn hefði getað eyðilagt allan mánuðinn sem hefði getað endað með því að einhverjum yrði ekki boðið í afmælið að ári liðnu, sem var að sjálfsögðu það versta sem maður gat sagt við nokkurn mann þegar maður var barn. Ég býð þér ekki í afmælið mitt!!! Þetta stingur í hjartað.
Jæja óskið mér til hamingju með daginn.

mánudagur, apríl 26, 2004
Flatus
Hvað er flatus? Hver sá sem getur svarað því hlýtur ómælda aðdáun mína til dauðadags.
Já ussussuss nú eru prófin bara á fullu, fyrsta prófið mitt verður á fimmtudaginn og verður það í lífeðlisfræði, heilsárskúrs Þar er ég að læra um samvægi í líkamanum, eða: þetta gerist af því að þessu var seytt sem einnig hafði óbein áhrif á hitt sem leiðir svo til þess að þessu misstir þú af og nú er tíminn búinn. Stórfínt fag og ætla ég að setja inn skemmtilegan dálk úr kennslubókinni á morgun, mjög svo fræðandi og gagnslaus hluti en engu að síður stórskemmtilegur.
Annars er lífið bara ágætt. Það var í umræðunni á lesstofunni í skólanum áðan að fara að lífga aðeins upp á hlutina þarna þannig að það var ákveðið að hafa ermalausa föstudaga þar til prófin eru búin og ætla ég að sjálfsögðu að taka þátt í því. Ég ætla að fara í Kolaportið og kaupa mér Motörhead bol og rífa ermarnar af, og best að fá sér einn Iron Maiden bol líka fyrst maður er nú að þessu á annað borð.
Önnur spurning, ef þið ættuð að velja á milli Lemmy í Motörhead eða Clay Aiken til þess að vera með ykkur á eyðieyju í 368 daga hvorn munduð þið velja?

þriðjudagur, apríl 20, 2004
Bloggbloggedíblogg
Ja hérna hér segi ég nú bara svona gjörsamlega að ástæðulausu. Nú er prófstressið að byrja að hellast yfir okkur vesælu háskólanemana og því fylgja móðursýkisköst þar sem fólk fer að velta fyrir sér hvort það ætti ekki bara að hætta þessu rugli; ég ræð ekkert við þetta, þetta er of mikið, þetta er vonlaust, af hverju er ekki komið sumarfrí, af hverju er ég í þessu námi, af hverju byrjaði ég ekki að læra fyrr eru hugsanir sem ásækja fólk á hverju vori og rétt fyrir jól. Iss segi ég nú bara, iss bara, aumingjavæl!!! Próf eru skemmtilegur tími, maður hefur afsökun fyrir því að vera ruglaður og bulla einhverja vitleysu, vera skítugur og labba um með brjálæðislegan glampa í augunum. Fólk hugsar með sér: þessi er nú eitthvað klikkaður en svo áttar það sig á því að þetta er bara háskólanemi í prófum, fullkomlega eðlilegt. Það er eitt sem er alltaf gert hérna niðri í Tanngarði í prófum, eða ekki gert, það er bannað að raka sig! Sumir skilja eftir gullfallegt og karlmannlegt yfirvaraskegg eftir prófin þar til kærustur þeirra hóta að fara frá þeim. Ég aftur á móti ætla að láta það eiga sig þar sem skeggvöxtur minn bíður ekki upp á það að herma eftir Tom Selleck. Ég mundi meira líta út eins og Jörgen, færeyski tannlæknaneminn, og það vil ég ekki. Í dag lít ég út eins hálfviti, ég er ekki beinlínis með skegg, heldur er þetta meira eins og einhvers konar andlitshár eins og voru á forsögulegum mönnum. Mjög fallegt.
Það er eitt sem ég þoli ekki prófum. En það er týpa sem allir kannast við. Það er týpan sem vælir og vælir rétt fyrir prófið, segist ekkert kunna, segist ekkert vera búin að læra, segist bókað vera fallinn þegar komið er úr prófinu og það lítur út fyrir að himnarnir séu að hrynja!!!! Maður hugsar með sér; Vá og ég sem hélt að ég væri ekki vel undirbúin, aumingja manneskjan. Svo er helvítis fíflið hæst í bekknum, brillerar alveg hreint. Iss iss iss.
(tek það fram að í sumum tilfellum er þetta heiftarlegur prófkvíði sem hrjáir svona fólk og er ætlunin á engan hátt að tala niðrandi til þeirra sem af því þjást)
Jón "australopithecus" Hafliði

fimmtudagur, apríl 15, 2004
Með viskí í einni og veiðistöng í annarri
Síðastliðinn laugardagsmorgun var ég félagsherbergi FÍT að laga mér kaffi sem oftar. Ég sat þarna rólegur og beið eftir því að hinn himneski drykkur yrði tilbúinn. Þá skyndilega komu þrír nemar af klínísku árunum inn, með fluguhnýtingargræjur með sér. Ég botnaði ekkert í þessu og spurði eins og fífl: hva, eruð þið að fara að hnýta flugur?. Þá tjáðu þeir mér það að þeir væru að fara á hálfgert námskeið í hnýtingum, þeir fengu einhvern strák sem er víst Íslandsmeistari í fluguhnýtingum (vissi ekki einu sinni að það væri til!) til að koma að sýna sér tökin. Ég settist niður og fór að fylgjast með og ég verð bara að segja eins og er, ég fékk bara skyndilegan áhuga á því að fara á stangveiðar, ekki það að maður hafi aldrei velt því fyrir sér en þessar hnýtingar litu bara út fyrir að vera helvíti skemmtilegt dund. Ég er einmitt að fara í veiði með pabba hennar Huldu í haust, en ég komst að því núna um daginn þegar ég sagði Huldu frá þessu að hún er bara með smá reynslu í því að hnýta flugur og stangveiði. Hún kannaðist við flugur eins og peacock, killer og orange nobler sem er eitthvað sem ég hafði aldrei nokkurn tíman heyrt um fyrr en síðasta laugardag. Ég held að þetta sé alveg fínt, reyndar hef ég ekki hugmynd um hvernig veiðin sjálf er (mér skilst að fluguveiði og bryggjudorg sé eins og svart og hvítt!!!) en hnýtingarnar litu út fyrir að vera þrælskemmtilegar. Ég sé þetta alveg fyrir mér, ég baslandi í Norðfjarðará með viskí í einni og veiðistöng í annarri og engan fisk að fá.
Gone fishing, Jón Hafliði

þriðjudagur, apríl 13, 2004
Og Hrafnarnir Hringsóluðu Yfir Aumingjanum.
Góðan daginn, alltof langt er síðan ég bloggaði en betra er seint en aldrei. Seint koma sumir en koma þó. Sæt er lykt úr sjálfs rassi. Málshættir eru skemmtilegir, ég man nú ekki málsháttinn sem ég fékk úr páskaegginu mínu þetta árið, enda var þetta ekki málsháttur heldur setning úr Brennu-Njálu, en þetta var eitthvað um það að það væri hallærislegt að eiga þræl að vin. Djöfuls fordómar sem voru alltaf þarna í den. Eins og maður væri eitthvað verri maður þótt maður væri þræll?!?!? Iss. Sælir eru fátækir o.s.frv. Hulda fékk aftur á móti alvöru málshátt, hann var svo ekta að við eiginlega skildum hann ekki. Þetta var eiginlega bara hrúga af orðum sem ekkert vit var í. Sumir málshættir eru svoleiðis. Það eru leiðinlegir málshættir. Hverjum dettur eiginlega í hug að búa til einhverjar viskusetningar sem þessir málshættir oftast eru og svo skilur enginn þetta þvaður. Andskotans málshættir maður. Megi þeir rotna inni í páskaeggjunum hvort sem þau eru númer tvö eða sjö!
Og Hrafnarnir Hringsóluðu Yfir Aumingjanum. Góður titill. Ég lenti nefnilega í því í morgun að hrafnarnir voru farnir að hringsóla yfir mér. Ég er nefnilega byrjaður að hlaupa á morgnanna svona aðeins til þess að halda heilsu meðan maður er í próflestrinum. Mér finnst svona persónulega að ég sé í frábæru formi, en ég komst að því í morgun þegar ég var að skokka að ég er kannski ekkert í svo góðu formi. Af hverju? Jú það voru þrír hrafnar hringsólandi yfir vesalings aumingjanum sem var að skokka eftir Ægissíðunni. Þeir hafa séð örmagna vesalinginn og hugsað með sér: "aha, sjáið þennan, hann á ekki langt eftir, von bráðar lippast hann niður og við getum nartað í augun hans". Þetta er svona svipað og þegar hrægammar hringsóla yfir manni sem er að deyja úr þorsta, hita og næringarskorti í eyðimörk í gömlum vestra.
En ég gafst ekki upp, ég hljóp áfram og áfram og áfram og hummaði Iron Maiden slagarana "I´m Running Free" og "The Loneliness of the Long Distance Runner" innra með mér. Ég ætlaði sko ekki að láta þessa gamma ná mér. Ég þraukaði á þrjóskunni og komst heim með bæði augu í tóftunum og sjálfstraustið í frábæru standi. Mér datt í hug þrjóskar hetjur úr myndum eins og Braveheart, Gladiator og the Last Samurai. Næsta hetju mynd verður eflaust um mig. "The Icerunner". Ekki spurning. Ég ætla sko ekki að hætta að hlaupa þrátt fyrir þessar mótbárur, ég ætla aftur út á morgun og standa andspænis við ógnina, hræddur innra með mér en of þrjóskur til þess að gefast upp, svona svipað og þegar það var verið að pynta William Wallace í Braveheart. Freeeeeeeeeeeeeeedooooeaoeohhhm.
kv. Jón "mikilmennskubrjálæði" Hafliði.

fimmtudagur, apríl 01, 2004
Jesús góður
Já ég fór á Passion of the christ í gær og hún var bara býsna góð, ég hef reyndar ekki lesið bókina en myndin var engu að síður býsna góð eins og ég sagði áður. Ofbeldið var þó nokkuð og ég held bara að ég hafi aldrei orðið var við eins mikla þögn í bíósal og á þessari mynd (spurning: verður maður var við þögn??). Maður hefði getað heyrt saumnál detta. Ég ætla svo sem ekkert að vera að segja ykkur frá myndinni og skemma fyrir fólki með því að segja hvernig hún endar, þið verðið bara að komast að því sjálf en það er býsna öflugt plott í lokin.
Ég fór einmitt í Smárabíó á þessa blessuðu mynd og ég fór að sjálfsögðu á klósettið og valdi mér eina góða setningu af veggnum fyrir ofan pissuskálarnar. En þarna var einmitt setning úr einhverri mögnuðustu hrollvekju allra tíma, en það er einmitt The Shining. Þetta er semsagt setning sem meistari Jack Nikulásson segir en hún hljómar svona:
"Wendy, darling. Light of my life. I´m not gonna hurt ya. I´m just gonna bash your brains in"
Rosalegt.
Annars er það í fréttum að Simon Cowel er ekki eini frægi kallinn sem er á Íslandi í dag en hann Keith Richards kom í kaffi til mín áðan og fékk kaffi og kökur og svo þegar ég svaraði honum neitandi um það hvort ég ætti heróín sprautu þá fór hann að skæla eins og smábarn og sagðist aldrei ætla að koma til Íslands aftur þannig að við getum útilokað það að Rolling Stones komi á klakann. Ég held samt að hann hafi róast aðeins þegar ég sagði bara við hann: "Hey, Keith, buddy, you can´t always get what you want and anyway time is on your site to get some satisfaction out of that sweet brown sugar". Ég held hann hafi aðeins lagast við þetta.
Blessbless

laugardagur, mars 27, 2004
Fiðlufæði
Það verður seint sagt að Ólafur Egilsson sé ekki höfðingi heim að sækja en maðurinn var einmitt að bjóða Búálfunum í mat í gær og var það ekki í fyrsta sinn og vonandi ekki í það síðasta. Síðast þegar ég fór í mat til hans þá var ég svo sprunginn af ofneyslu nautakjöts, rauðvíns, eplaböku, kaffis, koníaks, viskís og sjálfsagt bjórs líka að ég held svei mér þá að það hafi verið slegið heimsmet í seddu!!! Og ekki nóg með það þá hefur hann líka verið að bjóða upp á dýrindis bjórsmakk handa okkur og eru það sannkallaðar guðaveigar sem maðurinn bíður upp á, enda ekki við öðru að búast af honum. Sem sagt hrósið í dag fær Ólafur Egilsson.
En það eru ekki allir svona vel gerðir eins og hann Óli vinur minn. Ég man eftir því þegar ég var talsvert yngri en ég er núna en þó ekki mikið minni að ónefndur vinur minn tók upp á því að prófa að baka. Það skyldi vera bökuð skúffukaka. Þetta lofaði allt góðu, ilmurinn var dásamlegur, kakan var girnileg og svo síðast en ekki síst þá bragðaðist hún mjög vel og ekki sakaði að það var boðið upp á nýmjólk með. Um það bil 3 tímum seinna gerðist það. Gríðarlegur sársauki kom í magann, eins og það hefði nagdýr skriðið inn í kviðinn á mér og byrjað að narta í magann á mér með bitlausum tönnum. Alger hryllingur. Svo fór gríðarleg munnvatnsframleiðsla af stað í kjaftinum á mér og ég vissi nákvæmlega hvað var að fara að gerast........Kakan var á leiðinni upp. Og viti menn, ég held að hvert einasta gramm af köku sem ég át hafi sullast út um kjaftinn á mér ásamt öllu öðru sem ég hafði borðað um daginn. Matareitrun frá helvíti. Ég held að þessi einstaklingur hafi ekki bakað köku síðan en ef hann tekur upp á því aftur þá ætla ég nú samt ekki að særa hann með því að segja; "nei takk ég er á bíl". Ég ætla að fá mér sneið....og biðja til guðs.
kv. Jón Hafliði.

fimmtudagur, mars 25, 2004
Ljóðafár
Já nú líst mér á þetta, menn farnir að yrkja eins og brjálæðingar. Orri svaraði með prýðisgóðu ljóði og skoraði á Burra og er hann strax búin að svara og skora á Guðgeir, þetta gengur eins og í sögu. Alveg hreint með ólíkindum. Það á eftir að vera alveg gríðarlega spennandi að fylgjast með þessu. Best væri ef einhver mundi setja saman dróttkvæði en þeim kastar maður held ég ekkert fram einn tveir og þrír. Ég man reyndar ekkert hvernig þau eru, man bara að þau voru flókin.
Nú er mikið í umræðunni að taka upp skólagjöld í Háskóla Íslands. Ég hef svo sem ekki mikið velt þessu fyrir mér en mér finnst alveg ágætt að þurfa ekkert að borga þau og vona að ég þurfi ekkert að gera það. Hvað finnst norðfirskum háskólanemendum um þetta mál? Endilega kastið fram skoðunum ykkar á commentin mín. Fræðið mig.
En annars má ég eiginlega ekkert vera að þessu, þarf að læra fyrir munnlegt próf í frumulíffræði sem er næsta miðvikudag. Betra að geta kastað fram fróðleik um stofnfrumur og krabbamein eins og að segja góðan daginn til þess að verða góður tannlæknir.
Spurning: Mundir þú þora að koma í stólinn til mín? Ef nei, af hverju? Ef já, þá skil ég það alveg.
kv. Herr Jon von Haffenleider

sunnudagur, mars 21, 2004
Jebb ég er sko farinn að blogga eins og brjálæðingur. Ég held þetta líði samt rólega hjá. Eins og allir sjá þá er liturinn grænn ráðandi á þessari síðu, en það var einmitt hún Vala Matt sem ráðlagði mér að hafa síðuna græna því að hún..........lýsti karakter mínum svo vel og svo er warwick 5 strengja fortress 1 bassinn minn einmitt líka grænn. Já hún Vala klikkar ekki.
Búálfarnir tóku upp lag fyrir viku síðan og þetta lag er talsvert öðruvísi heldur en more beer sem við gáfum einmitt út fyrir akkúrat ári síðan. Þetta er einhvern vegin í áttina að Pogues en einnig toga The Chieftains aðeins í og svo smá keimur af afrískum fílaveiðimönnum þarna. Já. ég held að það lýsi laginu nokkuð vel. Við ætlum aðeins að bíða með að setja lagið á netið en þeir sem vilja ólmir heyra lagið geta haft samband við okkur og við bjóðum upp á kaffi og viskí og leyfum ykkur að heyra. Þeir sem drekka hvorki kaffi né viskí eru óvelkomnir.
Það er kalt úti núna þó það sé sól og rigning (bara á Íslandi). Þannig að ég held bara að ég fari og kaupi mér nýja húfu þar sem ég er búin að týna öllum gömlu góðu húfunum mínum.
Allt er vænt sem vel er grænt