Konunglegur Skandinavískur Sígauna Fiðludjass
Pjavúúú þvílíkir tónleikar maður. Já maður er bara alltaf á einhverjum tónleikum þessa dagana og núna skruppum við Óli Egils á djasstónleika á Nasa. Svo litu forsetinn og norski krónprinsinn með okkur líka. Ég nennti nú samt ekkert að vera að tala við þá, frekar snobbað og leiðinlegt lið sko. Jæja en nóg um þá kauða. Þessir tónleikar voru semsagt með tríói Ola Kvanberg sem er 22 ára Norðmaður sem spilar á fiðlu eins og ég veit ekki hvað. Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei séð annan eins fiðluleik (fyrir utan Óla að sjálfsögðu)!!! Maðurinn var bara að gera hluti sem ég botnaði bara ekkert í, svo var trommarinn líka alveg stórkostlegur og bassaleikarinn var alveg hrottafenginn, hann söng alltaf með sólóunum sem hann tók. Ég get samt ekki líst þessum tónleikum nógu vel, fólk hefði þurft að vera þarna. Það má kannski segja að þetta hafi verið nútímalegir Graffelli tónleikar, en fyrir þá sem ekki vita það þá er Stefan Graffelli fiðluleikarinn sem er þekktastur fyrir að spila með Django Reinhardt, og fyrir þá sem ekki vita hver Django Reinhardt er þá.......jaahhh...jájá. En þessi Ole Kvanberg lærði einmitt hjá Graffelli áður en hann lést greyið.
En annars er maður sprækur bara. Ég fékk býsna öflugann hroll um daginn og fylgjandi gæsahúð þegar ég var að lesa um sporðdreka á vísindavefnum, en þar kom fram að stærsta sporðdreka tegundinn geti orðið 20 cm "Hrollur 1". Svo las ég það að fyrir nokkur þúsund árum þá voru til sporðdrekar sem urðu allt að 1 meter á lengd!!!!!! "skítahrollur og gæsahúð sem náði í gegnum ullarpeysuna sem ég var í þegar ég las þetta". Djöfulsins viðbjóður maður. Ég er nú bara hissa á því að sporðdrekar ráði ekki jörðinni þar sem þeir náðu svona mikilli stærð....en ójæja við höfðum yfirhöndina.......í þetta skiptið!!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli