föstudagur, janúar 30, 2004

Kaffi! aaaaaaaaaaaaahhhhhhhhh........þefþef...........mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm. Það jafnast ekkert á við það. Fyrir svona sex árum þá hugsaði ég með mér þegar ég sá og heyrði fólk lýsa því hvernig dagurinn væri í raun ekki hafinn fyrr en fyrsti kaffibollinn væri búin, dagurinn væri ónýtur ef bollinn fengist ekki, hversu undarlegt þetta fólk væri. Mér leið alveg prýðilega og ég drakk ekkert kaffi, ég þurfti sko ekkert kaffi! Punktur! Ja hérna hvað ég var barnalegur, það lifir engin af dag án þess að fá kaffi það er nú bara kommon sens!!!! Það jafnast ekkert á við fyrsta bollann á morgnanna!!! Að vera ennþá með stýrurnar í augunum og finna hinn unaðslega kaffi-ilm flæða um vitin........mmmmmmmmmmmmmmmm. Kaffi er best.

Já það var fjer í gær þegar við Búálfarnir speluðum á Gauknum með Súellen og Tilþrif. En það var sko mun meira fjer þegar vér speluðum á leikskólanum Hagaborg í morgun. Ég spelaði í fyrsta sinn opinberlega á mandólín og það gekk bara alveg prýðilega. Það er ágætis stökk að skipta úr bassa yfir á mandólín þar sem stærðarmunurinn er talsverður en það er engu að síður dásamlegt hljóðfæri, eins konar gítar fyrir dverga og hvað hentar þá Trýtilbuxa betur? Ekkert!

En nú er komin tími til þess að vaska upp........klukkan segir það.

Þar til næst..........Trýtilbuxi the Incredible

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Jæja en einn dagurinn að klárast. Hér sit ég og geri lífefnafræði skýrslu og skemmti mér konunglega við það. Það er alveg óþolandi þegar maður lendir í því að þegar maður er greina ísóensím eins og laktatdehydrogenasa (LDH) að litunin mistekst og allt sem maður fær á rafdráttarblaðið er stór fjólublá klessa hahahahahaha kennist þið ekki við þetta???? Hahahahaha þetta er alveg ótrúlegt. En maður brosir bara við svona fyndnum hlutum.

Já svo er ég að fara að spila með Búálfunum á Gauknum í kveld og annað kveld og ætli það verði ekki dágott stuð. Það er altaf gaman að spela þó svo að maður lendi stundum í því að manni líði eins og vélmenni, sum lögin er maður bara búin að spila svo oft að maður gæti gert það þótt það væri búið að höggva af manni alla útlimi. En reyndar er búið að vera alveg frábært að spila þessa dagana því það er komin alveg ný orka í hljómsveitina eftir að við fórum að æfa í alvöru græjum þar sem ég og Orri gátum til dæmis eitthvað heyrt í okkur og leikið okkur almennilega. Svona á þetta að vera. Ég mun halda áfram að berjast fyrir búningakaupum hljómsveitarinnar........Ég gefst ekki upp.

miðvikudagur, janúar 28, 2004

Góóóóóóóðan daginn. Jæja það er orðið býsna langt síðan ég byrjaði á þessu og tók mér svo langa pásu. Þar sem það lítur út fyrir að alllir sem ég þekki séu komnir út í bloggið þá verð ég líka að gera það þar sem ég er mjög svo áhrifagjarn einstaklingur. Sjálfstæð hugsun er ekki til í mínum huga. Engar sjálfstæðar ákvarðanir. EKKERT. ok þá er það á hreinu.

Sumir sem ég þekki eru farnir að kalla mig Trýtilbuxa og ekkert er að því þar sem ég benti þeim flestum á þetta fallega og virðulega viðurnefni. Þetta nafn fann ég í íslendingabók þegar ég var að reyna að rekja ættir mínar við einhvern frægan einstakling sem ég reyndist vera skildur í gegnum áttunda ættlið og er þar af leiðandi hálf-frægur. En allavega þarna rakst ég á nafn forföður míns sem kallaðist Jón "Trýtilbuxi" Jónsson. Ástæða nafnsins kom ekki fram en ég hef heyrt margar kenningar, góðar og slæmar. Ég hallast að kenningunni um stuttar lappir en ef einhver er með einhverja aðra kenningu..............þá hefur hann rangt fyrir sér.

Eins og flestir vita þá er ég í hljómsveit sem kallar sig Búálfa og ýmsar hugmyndir hafa komið fram um áhersluatriði hljómsveitarinnar, t.d. vill Orri leggja meiri áherslu á samhæfðan dans, ég vil búninga eins og gaurin á þessari Peter Pan síðu. Af einhverjum ástæðum er enginn sammála mér.

Jæja nóg í bili. Blessbless