laugardagur, desember 30, 2006

Fokkings helvíti!

Var búin að skrifa þvílíku ritgerðina í tilefni jólanna, áramótanna, átsins og ég veit ekki hvað og hvað. Neinei svo bara neitar helvítis tölvan eða eitthvað að birta það og það er týnd.

Gleðilegt ár. Harma það liðna.

Jón

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Er Guð kaldhæðinn?

Flugvél Icelandair sem var að koma frá Frankfurt varð fyrir eldingu. Um borð í vélinni voru 13 manns sem voru að koma af flughræðslunámskeiði.

Ég held að það þurfi ekki að segja meira.

Jón

fimmtudagur, október 19, 2006

Kill Will.....y!

Jæja þá er búið að leyfa hvalveiðar að nýju sem ég held að sé nú bara fínu lagi, alveg óþolandi að hlusta á þessa ræfla sem eru að væla yfir því að við veiðum einn og einn hval og svo eru aðrar þjóðir að moka honum á land. Þetta er góð ástæða fyrir því að ég get ekki sagt að Paul McCartney sé snillingur þó hann sé skemmtilegur bassaleikari og allt það, hann er bara hvalavinur og ég fíla það bara ekki neitt!!! Helvítis væl alltaf (mæli samt með því að þið hlustið á bassann í Something, alger snilld).
Nú fær maður loksins að smakka súrsað hvalspik sem hefur víst verið sárt saknað á þorratrogunum, ekki það að ég hafi eitthvað sérstaklega verið að bíða eftir því, en......bara.
Held að ég geri mér ferð í Hvalfjörðinn og fylgist kannski með því þegar eitt stykki hvalur er verkaður, ég er viss um að það er stórkostleg sjón, eru menn ekki með eins konar atgeira við þetta, risastórar sveðjur á prikum eða eitthvað álíka? Margir margir lítrar af blóði og gori, þvílíkar vambir og ég veit ekki hvað og hvað.
Það var nú samt grátbroslegt að Hvalur 9 hafi sigld úr landi við mikinn fögnuð, lagt á miðin með það markmið að drepa einn hval sigri hrósandi......svo bilaði hann og það þurfti að draga hann á land. Það hefur verið skömmustuleg stund. jemmjemm.

Það er frost í lofti þessa dagana sem kallar á skaf og kalda morgna í bílnum. En það þýðir líka það að skemmtilegar fjallgöngur eru framundan, en mér þykir mun skemmtilegara að ganga á veturna í frostinu og snjónum en á sumrin......það er bara einhvern vegin meira töff og vel falsaðar myndir geta gert mann að fjallgönguhetju!! Þá er bara að munda pelann, taka til harðfiskinn og þristinn og ganga af stað!

bleble

föstudagur, október 13, 2006

En ein helvítis vikan að líða undir lok.........

Þetta var góð vika, það var mikið að gera, mikið borað, kallinn dró sínar fyrstu tennur og allt gekk upp......næsta vika verður eflaust alger hörmung með tilheyrandi taugatitringi og andvökunóttum, kannski strunsar einhver sjúklingurinn út í fússi með kjaftinn fullan af drasli...maður veit aldrei, en ég held það sé betra að vera bara bjartsýnn......nei annars.

Það er oktoberfest í háskólanum í kvöld, ég hef sett mér það markmið að fara einhvern tíman til Munchen á oktoberfest, sötra ógrynni af bjór, éta þýskar mörpylsur í öll mál og jóðla þar til ég verð viðurkenndur sem einn af þeim. Það jafnast ekkert á við hágæða týróla músík til þess að hressa sig við á síðkvöldum, að ég tali ekki um til þess að bjarga heiminum frá innrás Marsbúana eins og var svo stórkostlega gert í myndinni Mars Attacks sem er einhver stórkostlegasta mynd sem gerð hefur verið, ekki hefði Tom Cruise eða Richard Burton fattað upp á því!!!
En hvað er þetta með Tom Cruise, er hann búin að vera? Það sem hann hefur verið að halda fram maður, ætlaði hann ekki að éta fylgjuna þegar krakkin hans fæddist? Hvað gerir hann eiginlega þegar konan hans deyr....stoppar hana upp? Brennir líkið og tekur öskuna í nefið? Hann er klikkaður......en það breytir því ekki að Cockteil er ein allra besta mynd sem gerð hefur verið......á eftir Mars Attacks.

Jón Hafliði

laugardagur, október 07, 2006

Er til skrýtnari maður en David Caruso?

Ég horfi nú ekki mikið á sjónvarp að jafnaði en ég verð að viðurkenna það að ef ég ramba á CSI Miami þættina með David Caruso í aðalhlutverki þá eiginlega verð ég bara að horfa á þá. Ekki af því að þeir eru svo góðir, heldur af því að maðurinn er svo stórkostlega skrýtinn og, já, lélegur. En samt er það eitthvað sem gerir það að verkum að maður getur ekki hætt að horfa, ætli það séu ekki vonlausu setningarnar, eftirvæntingin eftir því hvað skildi hann segja næst? Jemmjemm, var bara að velta þessu fyrir mér. Horatio....flottur.

Var á tannlæknaþingi í gær, það sem maður fær einna mest út úr þessu sem nemandi er allt tannkremið og munnskolið sem maður fær gefins, að ég tali nú ekki um alla pennana, og nafnspjöldin sem ég skil aldrei af hverju ég tek við, ég kann sennilega bara ekki við það að segja nei, enda er það galli sem hefur fylgt mér lengi, ef sölumenn eru nægilega ágengir þá gætu þeir selt mér minn eigin saur.
Annars var megin fyrirlesarinn afar duglegur við það að segja að sumir hlutanna sem mér eru kenndir í skólanum séu "rubbish" eins og hann orðaði það. Tek því með fyrirvara. Það væri aftur á móti athyglisvert að prófa að rífa sig við kennarana þegar þeir segja mér hvað ég eigi að gera og vitna í þennan gaur, hugsa að það mundi enda með því að tungan yrði skorin úr mér og ég látin éta hana fyrir að láta eins og fífl. Best að þegja bara.

Stefni að því að labba upp á Skarðsheiði á morgun, ef veður leyfir, ekki að það skipti máli, Tindabikkjurnar ganga í hvaða veðri sem er.

Bless.....Jón Hafliði.

miðvikudagur, október 04, 2006

Bloggað í flýti!

Jæja best að fara að tjá sig eitthvað.

Það er búið að vera brjálað að gera í tannlækningunum hérna í Tanngarði og svo sem lítið annað gengið á hjá mér undanfarnar vikur.
Er að vísu búin að afreka það að fara í tvær fjallgöngur á vetrinum, eina á Vörðuskeggja á Henglinum og dró ég nokkra krakka úr skólanum með mér og var þetta hin fínasta ganga, mæli með henni fyrir alla, fjölbreytt leið og flott útsýni.
Svo fórum við Birgir og gengum á Hlöðufell á góðviðris degi, við komumst að þeirri niðurstöðu að Hlöðufell sé bara svona u.þ.b. 80% Herðubreið, brattar skriður upp á fjallið, svo tóku við stór grjót og 20 mínútna ganga að tindinum sjálfum. Bendi á Tindabikkju síðuna þar sem eru myndir frá Herðubreiðar göngunni í ágúst.

Skrapp svo austur um daginn yfir eina helgi og naut þar lífsins með Huldu, góður matur og gott vín, brunch og ég veit ekki hvað og hvað, best væri að sjálfsögðu að vera bara í fjarnámi við þessa tannlæknadeild, en það virkar víst ekki.

kv. Jón Hafliði

p.s. Getur fólk vælt endalaust út af Kárahnjúkum? Er þetta að koma í staðinn fyrir "Ísland úr NATO" ??? Þetta eru ekkert nema helvítís indjánahommar með dreadlocks og ættu bara að drullast aftur í hasskofana sína!! (ekki meint til þess að taka það bókstaflega, en þið skiljið mig sem þekkið)

föstudagur, september 15, 2006

Marsbúarnir eru lentir!!!!!!

....Kallaði Jón Hafliði í mikilli geðshræringu í rútunni á leið til Reyðarfjarðar á dögunum og ringulreið braust út í samfélaginu.

Við nánari eftirgrennslan var þetta bara nýja knattspyrnuhöllin á Reyðarfirði.

J.H.S.

miðvikudagur, september 06, 2006

Heeeeeeeere´s Johnny!!!!!!!

Þvílík setning! Þvílík mynd! Ömurleg endurgerð eftir höfði Stephen King!

Jæja þá er maður bara mættur í sorann í Rvk aftur. En ég kom vel undan sumri og þyki vera með alveg einstaklega fallega sólbrúnku eftir alla útivinnuna í sumar, ekki einhver brúnkukrems eða ljósabekkja brúnka, heldur ekta sólarbrúnka.....og já djöfull er ég fallega brúnn. Verkamannabrúnka sem takmarkast við framhandleggi, höfuð og háls. Þegar ég fer úr að ofan þá lít ég út fyrir að hafa rekið alla þessa líkamshluta upp í afturenda Fagra Blakks. FM-hnakki mundi skammast sín (ef hann hefði greind til þess).
Sumarið byrjaði á því að ég og Hulda fórum í alveg stórkostlegt frí til London, París og Rómar og voru það einhverjir bestu og skemmtilegustu 10 dagar sem ég hef upplifað. London Eye, Eiffel turninn, Louvre safnið, Notre Dam, Mont Martru (eða hvernig sem það er skrifað), Katakompur Parísar, Sigurboginn, gatan þarna í París, Trevi brunnurinn, Forum Romanum, Colosseum, Pizza Forum, Vatíkanið, Capitoline Hill, Sigurtákn Ítölsku Byltingarinnar (held ég), Pompei og ég veit ekki hvað og hvað. Ég ætla að láta það nægja að segja fólki frá þessu því ferðasagan mundi vera of löng og skemmtileg til þess að skrifa hana.
Svo fluttum við í nýja íbúð sem við keyptum á Egilsstöðum sem er alveg stórkostleg með útsýni yfir stóran hluta héraðsins. Restin af sumrinu fór mestmegnis í vinnu. Ég held svei mér þá að ég láti þetta bara duga af sumrinu, nenni ekki að útlista það, enda er ykkur sjálfsagt alveg sama. Bendi á nýja færslu á Tindabikkju síðunni frá Herðubreiðargöngunni miklu auk stórkostlegra mynda.

Kv. Jón Hafliði

p.s. Við Hulda fengum okkur kött í sumar og heitir hann Megas, stórkostlegur köttur, enginn vina minna hefur klórað mig af eins mikilli ástríðu og hann.

þriðjudagur, maí 16, 2006

Hver er maðurinn?

Um hálsinn ber hann festi með augum, magi hans er útþaninn, líkaminn beinaber og aftan úr rassi hans stendur óendanlegur strókur af sauri og lofti.

Annars erum við Húlla að fara til London-París-Róm og komum til baka þann 28.maí. Mikið gaman og mikið fjör.

kv. Jón Hafliði

P.S. Ég er sybbinn núna.

fimmtudagur, maí 11, 2006

Bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!

Jæja gott fólk, helvíti er maður nú búin að vera latur við þetta blogg. Þetta er búin að vera svipaður fasi og með uppvaskið. Maður skoðar bloggið og sér hvað það er langt síðan maður bloggaði og hugsar með sér: "ég verð nú að fara að blogga, en ég nenni því ekki núna, ég geri það á morgun því þá er betri dagur!". Og svona gengur þetta í nokkra mánuði þar til manni fer að verða sama. En eins og segir í fyrirsögninni, bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!

Annars er maður á kafi í prófum og hugurinn orðinn eins og Legoland á sýrutrippi. En til þess að róa hugann á milli prófa þá höfum ég og Birgir bekkjarfélagi minn komið á þeirri hefð að fara að loknu hverju einasta prófi að kast fyrir fisk í einhverju af þessum vötnum hérna í nánd við höfuðborgarsvæðið. Ég verð bara að segja það að það jafnast fátt á við það að standa úti í vatni í 15 stiga hita, dúnalogni, og leifarnar frá Suður Pólskri kolamengun gera sólsetrið blóðrautt sem speglast á spegilsléttum vatnsfletinum þar sem bleikjan og urriðinn vakar allt í kringum mann.
Það er alger þögn að undanskildu gargi í stöku fugli og hljóðið í línunni þegar hún leggst yfir vatnsflötinn (eða vefst um höfuðið á mér í mörgum tilfellum með tilheyrandi blóti og busli úti í vatni öðrum pirruðum höfuðborgarbúum til mikillar gleði eða pirrings).
Fór núna á þriðjudaginn í Elliðavatn. Ég hef farið þangað þrisvar sinnum en aldrei fengið neitt. En þriðjudagurinn var góður dagur, ég fékk loksins fisk í þessu blessaða vatni. 2,5 punda bleikja sem var alveg gríðarlega falleg. Ég er ekki eins og margir veiðimenn sem vilja vera voðalega göfugir og sleppa fiskinum eftir að búið er að landa honum. Ég flaka minn fisk meðan hann er ennþá spriklandi og ét hann helst hráann og syng frumsamdar vísur um hann á meðan og slurpa honum í mig. Ó já þau eru sko falleg kvöldin við vötnin.

kv. Jón Hafliði

mánudagur, mars 20, 2006

Ja hérna hér!

Ég fór í Bláa Lónið um daginn og þar var allt morandi í Bandaríkjamönnum og Svíum! Mér leið ekki vel. Hulda og móðir hennar komu líka en þær voru á einhverju öðru svæði í nuddi á meðan ég lá einhvers staðar einn, með hvíta drullu sem innihélt hár og húðleifar á andlitinu, umkringdur Bandaríkjamönnum og Svíum. Mér leið illa. Mér átti ekki að líða illa, ég meina ég var í Bláa Lóninu, mér átti að líða guðdómlega, en mér leið illa. Af hverju leið mér illa? Ég bara veit það ekki. Kanarnir og ABBAlendingarnir voru þarna bara, létu bara eins og ég væri einn af þeim, töluðu sín á milli á sænsku og væminni bandarísku og mökuðu hvítu drullunni á sig og dásömuðu landið. Ég. Ég lá þarna bara, með kísil í eyrunum, horfði upp í loftið, og hlustaði, og það fór af einhverjum ástæðum um mig þegar þeir töluðu. Mér leið svo sem ekkert skelfilega, ekki eins og ég væri að verða veikur eða eitthvað svoleiðis, ég fylltist engu vonleysi, var ekkert eirðarlaus, ég var ekkert við það að rífa af mér hárið og dýfa mér út í bannsvæðið, það fór bara einhvern vegin um mig. Svo fór ég í gufu, þar voru tveir íslendingar að spjalla saman, það fór ekkert um mig þá. Svo komu einhverjir frá Austur-Evrópu og spjölluðu saman, það fór ekkert um mig þá heldur. Hvað er málið? Getur verið að Bandaríkjamenn og Svíar séu einfaldlega bara...leiðinlegir? Ég veit það ekki, kannski var ég bara þunnur.

Kv. jón, alveg gáttaður á ástandinu.

miðvikudagur, mars 08, 2006

Hvaða helvítis hérna???????

Hvaða vitleysingur er að henda upp öllum þessum köntum út um allt? Hvert sem maður fer þar eru einhverjir helvítis kantar að þvælast fyrir manni, ég er alltaf stopp á leiðinni í skólann út af því að einhver bavíani henti upp kanti út á miðri götu. Þetta er óþolandi alveg hreint. Svo var þetta líka gert heima í Norðfirðinum, kantar út um allt. Ég vona að Raggi á gröfunni reddi þessu og rífi upp þessa kanta hið fyrsta. Annars geri ég það sjálfur.......með dínamíti.

Annars er bara fínt að frétta. Var að versla mér Blue train með John Coltrane, þrusu jazz plata þar á ferðinni. Er semsagt dottinn í einhvern jazz gír. Fékk mér líka disk sem kenndur er við Playboy Jazz festival, After Dark heitir hann. En eins og Hugh Hefner orðar það sjálfur: Turn down the lights, open a bottle of wine, let the music do the rest.
Hehehe, svona verður maður á því að vera í náttfötum allan daginn.

Johnny Jazz.

sunnudagur, mars 05, 2006

Hvað er þetta klukk??

ó jæja, ætli maður neyðist ekki til þess að taka þátt í þessu.

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
Verkamaður í saltfiskverkun
Verkamaður í netagerð
Stuðningsfulltrúi á sambýli (var mér sagt)
Verkamaður í byggingarvinnu

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Lord of the Rings myndirnar
Starwars myndirnar
Life of Brian
Forrest Gump

4 staðir sem ég hef búið á:
Gauksmýri 2, Neskaupstað
Heimavist MA, Akureyri
Eyrarlandsvegur 12, Akureyri
Eggertsgata 20 stúdentagörðum, Reykjavík

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
Simpsons fjölskyldan
Friends
Cheers voru bara snilld
24

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Krít
Vestfjarðarkjálkinn
Glasgow
Danmörk

4 heimasíður sem ég skoða daglega:
Það eru ekki nægilega margar heimasíður sem ég skoða daglega, en hér eru nokkrar sem ég skoða reglulega
Alls kyns blogg
mbl.is
Fender heimasíðan
hi.is

4 máltíðir sem ég held upp á:
Pítsurnar í nýja pítsuofninum
Purusteik
Lambalæri
Súpurnar hennar Huldu

4 bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
Hringadróttinssaga
Hitchiker´s guide to the galaxy
Ævisaga Jaco Pastorius
Andrés blaðasafnið heima jafnast á við margar bækur

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
Ítalía
Danmörk með bjór í hönd
Á einhverjum fjallstindi
Neskaupstaður

Og hananú. Ég klukka Huldu og alla hennar vini.

laugardagur, febrúar 25, 2006

Varðandi DaVinci lykilinn:

Jæja ég geri nú bara ráð fyrir því að nánast allir séu´búnir að lesa þessa blessuðu bók sem var reyndar alveg þrælskemmtileg. En nú er að fara að koma út mynd sem gerð hefur verið eftir þessari bók og er Tom Hanks í aðalhlutverkinu sem táknfræðingurinn Robert Langdon. Þegar ég byrjaði að lesa bókina þá var nú eitthvað farið að heyrast á götunni að það ætti að gera mynd eftir bókinni og ég fór þá vitaskuld að reyna að sjá einhverja leikara fyrir mér í hinum ýmsu karakterum bókarinnar. Og af einhverjum ástæðum þá gat ég bara ekki séð neinn annan fyrir mér en Christopher Lambert í hlutverki Robert Langdons!!! Og þar af leiðandi held ég að það sé búið að eyðileggja þessa mynd fyrir mér, a.m.k. verður Tom Hanks að gera betur heldur en í Forrest Gump og Philadelphia til þess að vera trúverðugur í þessari mynd. Fyrir þá sem ekki vita hver Christopher Lambert er þá lék hann í the Highlander, Tarzan, The Fortress, Druids og alls kyns öðrum myndum. Jemm jemm svona er þetta nú.

jon

sunnudagur, janúar 29, 2006

Það er haf og sjór þarna á milli!!

Bubbi Morthens.......þú ert snillingur.

Ég er orðinn hálf leiður á öllum þessum söngvakeppnum...nema Rock Star INXS...en það er búið.
Líst samt vel á að senda Sylvíu Nótt, eitthvað aðeins frumlegara í gangi þar. En hvað um það, ég er samt orðinn leiður á öllum þessum söngvakeppnum...nema Rock Star INXS...en það er búið.

Ég er samt ekki leiður á fjallgöngum...þær eru skemmtilegar og töff. Nánar um það á Tindabikkjunum.

Á morgun rótfylli ég fyrstu tönnina mína í lifandi manneskju. Það á eftir að veita mér einhverja gleði en þó einnig eitthvað stress...en samt meiri gleði.

Langar dálítið í Carl Thompson bassa. En hann kostar samt full mikið, og svo þarf ég að bíða í 2 ár eftir honum, hann yrði nefnilega sérsmíðaður handa mér...af Carl Thompson.

Þá er nú ekki úr vegi að minnast á það að ég á afmæli 1. maí...á hverju ári.

Kv. Jón. Skýrt og skorinort.

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Jææææææja

Það er komin ný bloggsíða í gagnið. Sú síða er bloggsíða Tindabikkjanna, sem er nafn yfir félagskap sem gengur á fjöll og hefur gaman af, þetta er einvalalið úrvalsfjallgöngumanna......held við höfum samt aldrei verið fleiri en þrír í hverri göngu, en það má alltaf draga fleiri með. Endilega að tékka á þessu.

Annars nenni ég ekki að blogga meir núna, blogga kannski seinna...en fylgist með Tindabikkjunum.

Kv. Jón Hafliði.....Tindabikkja

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Döðlur.

Allt frá því að ég var lítið barn hef ég ekkert haft nein sérstakan áhuga á því að smakka döðlur. Það næsta sem ég komst döðluneyslu var að lesa um ásókn eins Bjarnabófanna í þær er ég las andrésblöðin. Minnir að það hafi verið 167-761. Er þó ekki viss og biðst ég afsökunar á því. En rétt fyrir jólin þegar ég og Hulda tókum okkur til og bjuggum til jólakonfektið þá sá ég um það að skera í döðlur og fylla þær með marsípani. Ég hafði miklar efasemdir um þetta sælgæti sem ég var að útbúa einmitt út af vantrú minni á döðlur. Svo þegar ég var búin að fylla 36 döðlur af marsípani og var um það bil að húða þær með hvítu súkkulaði þá ákvað ég nú að gefa þeim tækifæri og smakka eina. Það var ekki aftur snúið. Þvílíkt góðgæti. Ég lýg því ekki að Hulda þurfti að stöðva mig svo að ættingjar og vinir fengju að njóta góðgætisins líka. Þetta er eitt af því besta sælgæti sem ég hef smakkað. Og ég hafði ekki einu sinni húðað þetta með súkkulaði. Núna finnst mér döðlur mjög góðar og ég neita því nú ekki að þegar ég leit í heimsókn til Valdimars bróður míns um jólin þá sá ég eina af döðlunum sem ég hafði búið til inn á milli gómsætra súkkulaði bomba í skál á stofuborðinu...og ég átti bara mjög erfitt með mig, það var erfitt að stela ekki þessari döðlu. En ég lét mig hafa það. Ekki sniðugt að háma í sig sælgæti sem maður hefur gefið ættingjum sínum. En ég verð bara að segja eins og er. Sælgætið okkar var bara helvíti gott. Ég bara get ekki neitað því, hér get ég bara ekki verið með einhverja tilgangslausa hógværð, það væri bara heimskulegt, og viss hræsni.
Svo er nú gama að segja frá því að Hippocrates tók eftir því að fólk sem borðaði mikið af döðlum var með meiri tannskemmdir að jafnaði en aðrir. Þannig að...ekki borða mikið af döðlum...komið með þær til mín.

kv. Jón. Engin hræsni á þessum bæ...bæ.

mánudagur, janúar 02, 2006

2006

Gleðilegt nýtt ár gott fólk. Tvöþúsundogsex er komið. Þvílík ljósadýrð sem að var hérna í rvk á miðnætti þegar tvöþúsundogsex rann í garð. Ég var eins og lítill krakki þegar ég sá allar þessar sprengjur...ég hef reyndar verið eins og lítill krakki á hverjum áramótum síðan ég hætti að vera lítill krakki. Það er gaman að vera lítill krakki. Og það er gaman að sprengja. Ég hef alltaf haft alveg gríðalega gaman af því að sprengja gamla árið í burtu og ég hef verið mjög heppinn með það að sleppa við það að slasa mig, því að ég neita því nú ekki að maður hefur nú tekið ófáa flugeldana í sundur og reynt að gera þá öflugari með því að hella fjórfalt meira púðri í þá o.s.frv. Ég hef bara einu sinni meitt mig eitthvað við það að fikta með flugelda, það var reyndar ekki einu sinni flugeldur, ég meiddi mig á stjörnublysi þegar ég var lítill krakki...það gæti reyndar alveg eins hafa verið fyrir tveimur dögum miðað við litla haminn sem ég fer í á hverjum áramótum...en jææææææja...ég var sex ára og ákvað að slökkva á stjörnublysinu á sama hátt og ég slökkti á kertinu inni í stofunni fyrir fimm mínútum...dásamleg uppgötvun sem leiddi það af sér að ekkert kerti í Gauksmýri 2 fékk að loga lengur en í svona 10 mínútur óuppgötvað án þess að ég kæmi og slökkti á því...það var nefnilega sá stórkostlegi galdur að slökkva eld...með puttunum. Öskrin voru ólýsanleg.

Gleðilegt ár...Jón Hafliði

p.s. það slokknaði ekki á stjörnublysinu