laugardagur, maí 01, 2004

Jón Ungi

Jæja þá er maður búin að raka viðbjóðinn úr andlitinu á sér, en ég skildi nú smá eftir. Ég skildi eftir gullfallegar kótilettur til þess að undirstrika karlmennsku mína (ekki að það hafi verið þörf á því). Þetta eru ekkert ósvipaðar kótilettur og á Neil Young (það verður einhver að fara að kenna mér að setja inn myndir á þetta dót). Neil Young er mikill snillingur en ég skammast mín mikið fyrir það að eiga enga plötu með kappanum.
Annars er bara fjör í prófunum og klárast þau 15. maí og þá verður mikið fjör. Hulda klárar prófin á mánudaginn 3. maí, 3. maí????? Sumt fólk er ekki einu sinni byrjað í prófunum þá, þetta er rosalegt.

En já nú er bara komin maí. 1. maí. Ég á afmæli í dag. 23 ára gamall, magnað. Við erum nú nokkrir félagarnir sem eigum afmæli í maí, ég man að það var alltaf gósentíð í afmælunum í maí. Fyrst átti ég afmæli, svo kom hann Haukur Ingvar 4. maí og svo Ólafur Arnar 13. maí, svo skömmu seinna kom Ölver 22. maí. Þetta var sko magnaður mánuður í den tíð og klikkaði það yfirleitt ekki að það var farið í fótbolta í lokin á hverju einasta afmæli og það var slegist um hver yrði með afmælisbarninu í liði sem leiddi ávallt til þess að liðið sem afmælisbarnið var í vann, enda kom ekkert annað til greina, að tapa fótboltaleik á afmæisdaginn hefði getað eyðilagt allan mánuðinn sem hefði getað endað með því að einhverjum yrði ekki boðið í afmælið að ári liðnu, sem var að sjálfsögðu það versta sem maður gat sagt við nokkurn mann þegar maður var barn. Ég býð þér ekki í afmælið mitt!!! Þetta stingur í hjartað.

Jæja óskið mér til hamingju með daginn.

Engin ummæli: