föstudagur, júní 18, 2004

Hver er þessi Valdi Dauði?

Athyglisverð spurning sem ég fékk einu sinni og ég vissi ekkert hverju ég átti að svara því ég vissi bara ekkert hvað vinur minn var að tala um þegar hann spurði að þessu. Jú þá var, ef ég man rétt (sem er mjög líklega vitlaust), hann Hjálmar vinur minn, vel í glasi, að fara að fá sér eina sígarettu og á sígarettupakkanum stóð þessi eignarlýsing: Sígarettur Valda Dauða! Sígarettur Valda Dauða?!? Hver er þessi Valdi Dauði? Spurði Hjálmar og úr því hlóðust upp fleiri spurningar í huga mínum. Hvaðan kemur hann? Er hann sölumaður dauðans? Ber hann ábyrgð á dauða frægra dægurlagasöngvara og annara góðra manna? Eða er hann bara goðsögn? Eða er ég bara að missa vitið? Svei mér þá ég bara veit það ekki hugsaði ég og fékk mér smók og hóstaði eins og berklasjúklingur og Valdi Dauði glotti við tönn.

P.s. Ég reyki ekki! Smókurinn sem ég tek í sögunni er einungis grá skrautfjöður í þessa stuttu frásögn. Mig vantaði endi. Og ég klúðraði honum.

Engin ummæli: