fimmtudagur, apríl 15, 2004

Með viskí í einni og veiðistöng í annarri

Síðastliðinn laugardagsmorgun var ég félagsherbergi FÍT að laga mér kaffi sem oftar. Ég sat þarna rólegur og beið eftir því að hinn himneski drykkur yrði tilbúinn. Þá skyndilega komu þrír nemar af klínísku árunum inn, með fluguhnýtingargræjur með sér. Ég botnaði ekkert í þessu og spurði eins og fífl: hva, eruð þið að fara að hnýta flugur?. Þá tjáðu þeir mér það að þeir væru að fara á hálfgert námskeið í hnýtingum, þeir fengu einhvern strák sem er víst Íslandsmeistari í fluguhnýtingum (vissi ekki einu sinni að það væri til!) til að koma að sýna sér tökin. Ég settist niður og fór að fylgjast með og ég verð bara að segja eins og er, ég fékk bara skyndilegan áhuga á því að fara á stangveiðar, ekki það að maður hafi aldrei velt því fyrir sér en þessar hnýtingar litu bara út fyrir að vera helvíti skemmtilegt dund. Ég er einmitt að fara í veiði með pabba hennar Huldu í haust, en ég komst að því núna um daginn þegar ég sagði Huldu frá þessu að hún er bara með smá reynslu í því að hnýta flugur og stangveiði. Hún kannaðist við flugur eins og peacock, killer og orange nobler sem er eitthvað sem ég hafði aldrei nokkurn tíman heyrt um fyrr en síðasta laugardag. Ég held að þetta sé alveg fínt, reyndar hef ég ekki hugmynd um hvernig veiðin sjálf er (mér skilst að fluguveiði og bryggjudorg sé eins og svart og hvítt!!!) en hnýtingarnar litu út fyrir að vera þrælskemmtilegar. Ég sé þetta alveg fyrir mér, ég baslandi í Norðfjarðará með viskí í einni og veiðistöng í annarri og engan fisk að fá.

Gone fishing, Jón Hafliði

Engin ummæli: