mánudagur, júní 21, 2004

Hvers á maður að gjalda?

Ég uppgötvaði mér til mikillar ánægju í gærkvöldi að ég ætti ekki að mæta í vinnuna fyrr en kl. 1600 í dag í stað 0800 eins og ég hélt. Ahhhh það yrði sko sofið ljúfum svefni.......En nei, alls ekki leikur lífið svo vel við mig, eða hvað? Ég vaknaði klukkan hálf tíu í morgun við háværa röddu fyrir utan gluggann minn. Rödd sem ég hafði ekki heyrt síðan á æskuárum mínum í Norðfirði þegar ég fór út á hverjum einasta degi til þess að leika við vini mína í Mýrunum. Venjulega þegar ég er vakinn svona að óþörfu af látum fyrir utan gluggann hjá mér þá bregst ég hinn versti við og óska þeim hinum sama sem er með þessi læti alls hins versta. En ekki í morgun. Því í morgun var ég vakinn af engum öðrum en Lilla Apa í brúðubílnum!!!!!!! Ég hélt að brúðubíllinn og Lilli Api væru löngu horfnir af sjónarsviðinu og í stað þeirra væru komnir Lilli Mús og brúðufartölvan. Alveg magnað helvíti. Ég fór bara á fætur og lagaði mér kaffi og settist í sófann og fylgdist með út um gluggann. Ég hætti því samt mjög fljótlega eftir að eitthvað foreldrið leit inn um gluggann og sá mig, sitjandi á sloppnum, í hvítum tannlæknaklossum , með kaffibolla í hendinni, horfandi á Lilla Apa og brúðubílinn.

Engin ummæli: