Hvern langar í 40" breiðtjalds sjónvarp??? Ekki mig!!!!!!!
Aldrei taka þátt í sms leikjum hjá BT nema þið hafið fulla trú á því að þið vinnið. Ég tók þátt í slíkum leik í vikunni og..............ég vann að sjálfsögðu. EN!!!!!!!!! Þar sem ég hafði ekki trú á því að ég mundi vinna þá nennti ég ekkert að vera að fara niðrí BT í morgun til þess að vera viðstaddur þegar vinningshafi yrði dreginn út, því ég yrði nú ekki svo heppinn, svo var ég ekki á bíl, var þreyttur eftir næturvakt og svona og svo til þess að undirstrika það enn og aftur þá vinn ég ekkert í svona leikjum!!! Og hananú!!! En þeir í BT ákváðu að ef vinningshafinn væri ekki kominn þegar dregið væri aðalvinninginn þá yrði hringt í hann og honum sagt að hann hafi fimm mínútur til þess að komast í BT til þess að sækja vinninginn en svo yrði dregið aftur.................ég var með símann á silent því ég var að fara að sofa. En svo er mér litið á símann. 1 missed call. "Hmmmmmmmmm? Hver gæti þetta nú hafa verið?" Hugsaði ég. Ég lagði símann frá mér og ákvað að fara að sofa. "Hver ætli þetta hafi verið?" hugsaði ég aftur og ákvað að hringja í númerið. Það var svarað. "halló" sagði röddin í símanum. "halló.....það var verið að hringja í mig úr þessu númeri áðan" sagði ég. "já....er þetta 8685226?" Sagði röddin. "já" Sagði ég. Þá sagði röddinn: "Já þetta var út af aðalvinningnum í BT sms leiknum..........við biðum í fimm mínútur og hringdum svo í annan........því miður"........................................................"ó" Sagði ég og hló taugaveiklunar hlátri "EEheheahíhóhahiaaaaa" hló ég..........."jæja"............................."OK"...................................."bless".
Af hverju þurfti ég að hringja?!?!?!?!?!?! En svo hugsaði ég nú bara með mér: "Það er hvort eð er ekkert pláss fyrir þetta flykki hérna og sjónvarpið sem við erum með er alveg nógu gott..............maður fær bara augnverki og svona af því að horfa á svona stórt sjónvarp og það verður ekkert gaman að fara í bíó lengur ef maður er með svona breiðtjald heima hjá sér, svo eyðir þetta örugglega rosalegu rafmagni" Þannig að........Hvern langar í 40" breiðtjalds sjónvarp???????? Ekki mig.
laugardagur, júlí 24, 2004
þriðjudagur, júlí 20, 2004
Biribimm.....mmibiriB
Magnað. Jæja sólin virðist eitthvað vera að yfirgefa mig hérna í borginni, enda búin að skína býsna glatt undanfarið, en það er svo sem engin ástæða til þess að vera eitthvað að hætta því. Ég meina hver kannast ekki við orðatiltækið "Það er ekki mikil sól ef maður fær ekki sortuæxli á iljarnar". Þannig er það nú já.
Lenti í umræðu um daginn þar sem farið var að tala um uppáhalds plöturnar sínar. Ég áttaði mig þá á því að þó svo að ég hlusti gríðarmikið á tónlist þá á ég mér ekki neina uppáhalds plötu. Það fer bara eftir því hvenær ég er spurður hver uppáhalds platan mín er. Það er samt nokkrar sem standa alltaf uppúr og ætla ég aðeins að nefna þær helstu ykkur til gagnsleysis og þó áhuga.

- Appetite for destruction-Guns´n Roses. Ekki hægt að fá leið á henni.
- The number of the beast-Iron maiden. Fyrsta kassettann sem ég keypti, hluti af uppvextinum. Klassískt meistaraverk ef svo mætti að orði komast.
- Pet sounds-Beach boys. Tiltölulega nýuppgötvuð snilld, Brian Wilson að fara á kostum í tilvistarkreppu sem hann kemur frá sér á mjög jolly máta.
- Blood sugar sex magic-Red hot chili peppers. Einkar svöl plata.
- Kind of blue-Miles Davis. Ef menn vilja eiga djassplötu þá er þetta hún.
- Before these crowded streets-Dave Matthews. Mögnuð fushion-djass-popp-kántrý-plata.
- Hejira-Joni Mitchell. Já hippakerlingin reyndist vera snillingur. Keypti hana upphaflega af því að Jaco Pastorius var að spila á bassa á henni, alger snilld!!
- The best of Django Reinhardt. Snilldar sígauna djass, mann langar til þess að búa í hjólhýsi þegar maður hlustar á þetta.....eða nei annars.
- Buena vista social club. Þetta hvetur mann til þess að fara til Kúbu og drekka romm og reykja 24 tommu vindla.
- Ágætis byrjun-Sigurrós. Mekil snelld.
Jæja þá er því lokið. Leið svona nett eins og tónlistarnördi........og það var gott.
sunnudagur, júlí 18, 2004
Túristinn ég
Já, ég er túristi, og Hulda er tengiliðurinn minn við íslenska ferðamennsku. Það er ekki búin að líða ein fríhelgi án þess að ég fari eitthvað út á land. Í gær fórum við að skoða Gullfoss og Geysi. Geysir var reyndar með eitthvað attitute og neitaði að gjósa, eitthvað merkilegur með sig helvítið, yea, that´s right, I´m Geysir and I blow whenever I want to, because I am Geysir. Já já, helvítis prímadonnu stælar, þá er nú Strokkur miklu almennilegri þó hann sé minni, hann gýs þó á nokkura mínútna fresti. En þannig var nú Geysir einu sinni, en það var áður en hann varð stjarna, áður enn að frægðin steig honum til höfuðs. Það var fyrir einhverjum árum sem þetta fór að klikka. Um það leyti sem hann varð frægur með Led Zeppelin. Það var það sama og með aðrar stjörnur.......eiturlyf......Geysir var kominn í sápuna. Þetta var orðið það slæmt að hann gat ekki "performað" án þess að fá sápu. Það var dælt og dælt í hann sápu og Geysir gaus og gaus. Svona gekk þetta í mörg ár og Geysir var á hátindi frægðarinnar, það kom svo í ljós að Geysir man ekki einu sinni eftir hluta af þessu tímabili, svo slæmt var þetta. Svo sáu menn það að þetta gat ekki gengið svona og hann fékk ekki meiri sápu og hætti Geysir þá að gjósa af viti eins og hann gerði þegar hann var upp á sitt besta. En það var ekki allt, reiðarlagið átti eftir að koma, miklar raskanir í hans persónulega lífi áttu sér stað. Suðurlandsskjálftinn. Geysir gaus lítillega eftir þetta en svo er hann búin að vera fremur slappur undanfarið og heldur bara eitt og eitt gig. Svona getur frægðin farið með fólk og hveri.
En svo litum við á Gullfoss líka, og þvílíkir kraftur maður, ég fór vel nálægt fossinum og djöfull var maður eitthvað lítill og máttlaus við hliðina á fossinum, ég verð nú bara að segja að þarna er ekki beinlínis hylur sem maður stekkur í á hlýjum sumardegi. En jæja sól skín í heiði og ég ætla að láta sólina brenna mig og gefa mér sortuæxli. Bless bless

þriðjudagur, júlí 06, 2004
Gerpi
Ég fór á vídjóleigu í gær og rakst þar á algert gerpi. Þetta gerpi var Sindri Eldon held ég að hann heiti, sonur Bjarkar Guðmunds.....gerpis. Þvílíkt gerpi hef ég sjaldan séð og hefur maður nú rekist á þó nokkur. Þeir sem hafa séð hann í sjónvarpinu vita hvað ég á við....þetta er nánast hin fullkomna ímynd gerpis. Enda er hann sonur Bjarkar sem er nú einn frægasti íslendingur seinni ára og hún er.....jú mikið rétt, algert gerpi. En það er alveg ótrúlegt hvað mörg gerpi hafa gert það gott og hluti sem eru bara ekkert svo galnir. Dæmi um gerpi sem hefur vegnað ágætlega er Jónsi, söngvarinn í Sigurrós, en hann er algert gerpi líka, rangeygur, talar ekki við neinn og einfaldlega bara stórfurðulegt gerpi, en ágætis byrjun er ein besta plata sem ég hef hlustað á. Talandi um Jónsa, en þá má nú ekki gleyma gerpinu okkar úr eurovision en hann er prýðisgerpi, en ég er nú ekki að segja að hann hafi gert neina stórkostlega hluti, eigum við ekki bara að segja að hann sé að standa sig í því að vera mágur hans Malla sem er síður en svo gerpi. Svo er það að sjálfsögðu Michael Jackson en hann er nú konungur gerpanna en það verður samt að segjast að Thriller var alveg þrælgóð plata, enda eftir gerpi. Ekki má gleyma strandargerpinu honum Brian Wilson úr Beach Boys en hann var sko eitt af aðal gerpunum í tónlistarbransanum á sínum tíma, svo mikið gerpi að Alice Cooper og Iggy Pop forðuðu sér úr partýi hjá honum sökum þess að hlutirnir hefðu verið orðnir einum of furðulegir, en þá var Brian að láta þá radda saman.....eftir sínu höfði. En Brian Wilson er engu að síður einn mesti snillingur poppsögunnar (veit ekki hvort Jóni Knúti hafi tekist að heilaþvo mig svona rosalega). Roger Waters var og er gerpi. Kraftwerk eru nördagerpi, hver sem hefur séð þá á tónleikum í ljósagöllunum sínum syngjandi "we are the robots" eru sammála því. Hallbjörn Hjartarson, kúrekinn í bleika bárujárnskofanum er eitt af mínum uppáhalds gerpum enda hæfileikaríkur með eindæmum, ég meina: kántrí 1,2,3,4,5 o.s.frv. Alger snilld. Jæja svona mætti lengi telja upp fræg gerpi sem hafa gert sniðuga hluti í tónlistinni. En ég þarf víst að láta mig hverfa. bleble
Kv. Jón Hafliði