laugardagur, mars 27, 2004

Fiðlufæði

Það verður seint sagt að Ólafur Egilsson sé ekki höfðingi heim að sækja en maðurinn var einmitt að bjóða Búálfunum í mat í gær og var það ekki í fyrsta sinn og vonandi ekki í það síðasta. Síðast þegar ég fór í mat til hans þá var ég svo sprunginn af ofneyslu nautakjöts, rauðvíns, eplaböku, kaffis, koníaks, viskís og sjálfsagt bjórs líka að ég held svei mér þá að það hafi verið slegið heimsmet í seddu!!! Og ekki nóg með það þá hefur hann líka verið að bjóða upp á dýrindis bjórsmakk handa okkur og eru það sannkallaðar guðaveigar sem maðurinn bíður upp á, enda ekki við öðru að búast af honum. Sem sagt hrósið í dag fær Ólafur Egilsson.

En það eru ekki allir svona vel gerðir eins og hann Óli vinur minn. Ég man eftir því þegar ég var talsvert yngri en ég er núna en þó ekki mikið minni að ónefndur vinur minn tók upp á því að prófa að baka. Það skyldi vera bökuð skúffukaka. Þetta lofaði allt góðu, ilmurinn var dásamlegur, kakan var girnileg og svo síðast en ekki síst þá bragðaðist hún mjög vel og ekki sakaði að það var boðið upp á nýmjólk með. Um það bil 3 tímum seinna gerðist það. Gríðarlegur sársauki kom í magann, eins og það hefði nagdýr skriðið inn í kviðinn á mér og byrjað að narta í magann á mér með bitlausum tönnum. Alger hryllingur. Svo fór gríðarleg munnvatnsframleiðsla af stað í kjaftinum á mér og ég vissi nákvæmlega hvað var að fara að gerast........Kakan var á leiðinni upp. Og viti menn, ég held að hvert einasta gramm af köku sem ég át hafi sullast út um kjaftinn á mér ásamt öllu öðru sem ég hafði borðað um daginn. Matareitrun frá helvíti. Ég held að þessi einstaklingur hafi ekki bakað köku síðan en ef hann tekur upp á því aftur þá ætla ég nú samt ekki að særa hann með því að segja; "nei takk ég er á bíl". Ég ætla að fá mér sneið....og biðja til guðs.

kv. Jón Hafliði.

fimmtudagur, mars 25, 2004

Ljóðafár

Já nú líst mér á þetta, menn farnir að yrkja eins og brjálæðingar. Orri svaraði með prýðisgóðu ljóði og skoraði á Burra og er hann strax búin að svara og skora á Guðgeir, þetta gengur eins og í sögu. Alveg hreint með ólíkindum. Það á eftir að vera alveg gríðarlega spennandi að fylgjast með þessu. Best væri ef einhver mundi setja saman dróttkvæði en þeim kastar maður held ég ekkert fram einn tveir og þrír. Ég man reyndar ekkert hvernig þau eru, man bara að þau voru flókin.

Nú er mikið í umræðunni að taka upp skólagjöld í Háskóla Íslands. Ég hef svo sem ekki mikið velt þessu fyrir mér en mér finnst alveg ágætt að þurfa ekkert að borga þau og vona að ég þurfi ekkert að gera það. Hvað finnst norðfirskum háskólanemendum um þetta mál? Endilega kastið fram skoðunum ykkar á commentin mín. Fræðið mig.

En annars má ég eiginlega ekkert vera að þessu, þarf að læra fyrir munnlegt próf í frumulíffræði sem er næsta miðvikudag. Betra að geta kastað fram fróðleik um stofnfrumur og krabbamein eins og að segja góðan daginn til þess að verða góður tannlæknir.

Spurning: Mundir þú þora að koma í stólinn til mín? Ef nei, af hverju? Ef já, þá skil ég það alveg.

kv. Herr Jon von Haffenleider

sunnudagur, mars 21, 2004

Jebb ég er sko farinn að blogga eins og brjálæðingur. Ég held þetta líði samt rólega hjá. Eins og allir sjá þá er liturinn grænn ráðandi á þessari síðu, en það var einmitt hún Vala Matt sem ráðlagði mér að hafa síðuna græna því að hún..........lýsti karakter mínum svo vel og svo er warwick 5 strengja fortress 1 bassinn minn einmitt líka grænn. Já hún Vala klikkar ekki.

Búálfarnir tóku upp lag fyrir viku síðan og þetta lag er talsvert öðruvísi heldur en more beer sem við gáfum einmitt út fyrir akkúrat ári síðan. Þetta er einhvern vegin í áttina að Pogues en einnig toga The Chieftains aðeins í og svo smá keimur af afrískum fílaveiðimönnum þarna. Já. ég held að það lýsi laginu nokkuð vel. Við ætlum aðeins að bíða með að setja lagið á netið en þeir sem vilja ólmir heyra lagið geta haft samband við okkur og við bjóðum upp á kaffi og viskí og leyfum ykkur að heyra. Þeir sem drekka hvorki kaffi né viskí eru óvelkomnir.

Það er kalt úti núna þó það sé sól og rigning (bara á Íslandi). Þannig að ég held bara að ég fari og kaupi mér nýja húfu þar sem ég er búin að týna öllum gömlu góðu húfunum mínum.

Allt er vænt sem vel er grænt

laugardagur, mars 20, 2004

jedúddamía þvílíkar breytingar, var aðeins að fikta með litina í þessu dóti. Þetta er aðeins skárra. ég held ég láti þetta bara vera svona. Öllum er frjálst að koma með skoðanir af því að ég er kominn með svona svaka fínt komment dót. Alveg ótrúlegt hvað ég er fljótur að aðlaga mig að nýrri tækni. ja hérna.

Jæja ég ætla að fara að gera ritgerð um beinþynningu og Paget´s kvilla. Það er einmitt athyglisvert að segja frá því að það er talið að Egill Skallagrímsson hafi verið með Paget´s kvilla. Það á víst að vera hægt að lesa það úr ljóðum sem hann gerði á sínum seinni árum. Það var kannski ekki skrýtið að hann hafi átt það til að ganga berserksgang. Ég myndi verða býsna pirraður ef ég væri með þennan sjúkdóm. Ef ég kynni að setja inn mynd á þetta dót þá myndi ég gera það. Hauskúpan lítur út fyrir að vera úr litla bróður fílamannsins og svo eru lappirnar eins og bjúgverpill og mjöðmin eins og vænn vaskur frá IKEA. Býsna ljótur sjúkdómur. Og ef þið viljið ekki fá Paget´s eða beinþynningu eða fá ljótar tennur þá skuluð þið vera dugleg að drekka mjólk.

Mjólk er góð

Jón Hafliði kveður að sinni
Heimskur er ég. ég botnaði sjálfan mig. þá verður orri bara að svara þessu og skora á einhvern annan með alvöru fyrriparti.

Skálda-Jón

föstudagur, mars 19, 2004

Langt er síðan bloggað var
blogga mun ég frekar lítið
hvernig á að byrja bloggið
ég held þetta sé nógu skrýtið

Allt of lítið er gert af því að kveða ljóð á Íslandinu góða og finnst mér að því ætti að vera breytt. Legg ég því til að bloggarar Norðfjarðar fari að kveðast á í gegnum bloggið. Er ég viss um af að því fæst bæði gagn og einnig eilítið gaman.
ÞANNIG AÐ.........ég er að hugsa um að skora á góðvin minn hann Orra Smárason til þess að botna þennan fyrri part:

Trommar pjakkur dag og nótt
Gefur engum frið
Hann heldur ekki takti þótt
hann borði bara svið

Þetta er almennilegt! Svaraðu nú og skoraðu á einhvern annan Orri. Þetta gæti orðið gamaldags.