mánudagur, apríl 26, 2004

Flatus

Hvað er flatus? Hver sá sem getur svarað því hlýtur ómælda aðdáun mína til dauðadags.

Já ussussuss nú eru prófin bara á fullu, fyrsta prófið mitt verður á fimmtudaginn og verður það í lífeðlisfræði, heilsárskúrs Þar er ég að læra um samvægi í líkamanum, eða: þetta gerist af því að þessu var seytt sem einnig hafði óbein áhrif á hitt sem leiðir svo til þess að þessu misstir þú af og nú er tíminn búinn. Stórfínt fag og ætla ég að setja inn skemmtilegan dálk úr kennslubókinni á morgun, mjög svo fræðandi og gagnslaus hluti en engu að síður stórskemmtilegur.

Annars er lífið bara ágætt. Það var í umræðunni á lesstofunni í skólanum áðan að fara að lífga aðeins upp á hlutina þarna þannig að það var ákveðið að hafa ermalausa föstudaga þar til prófin eru búin og ætla ég að sjálfsögðu að taka þátt í því. Ég ætla að fara í Kolaportið og kaupa mér Motörhead bol og rífa ermarnar af, og best að fá sér einn Iron Maiden bol líka fyrst maður er nú að þessu á annað borð.

Önnur spurning, ef þið ættuð að velja á milli Lemmy í Motörhead eða Clay Aiken til þess að vera með ykkur á eyðieyju í 368 daga hvorn munduð þið velja?

Engin ummæli: