miðvikudagur, maí 26, 2004

Jæææææja

Jæja þá eru prófin löngu búin og það er orðið helvíti langt síðan ég skrifaði eitthvað af viti hérna............nei bíddu ég hef aldrei skrifað neitt af viti hérna.....best að vera ekkert að því. Já síðast þegar ég skrifaði þá var ekki ennþá búið að afhausa bandaríkjamanninn þarna úti í írak, en nú er það búið að eiga sér stað og ég fór auðvitað mjög fljótlega eftir að ég frétti að það væri komið á netið að leita myndbandinu. Ég fann það ekki, og af hverju ekki? Nú ég hætti að leita!! Ég hugsaði með mér meðan ég var að leita þessu: "hvað er eiginlega að mér? Ég er hérna að leita að myndbandi þar sem hausinn er sagaður af saklausum manni!!!" Djöfull getur maður verið sjúkur stundum. Ég er eiginlega bara nokkuð ánægður með það að hafa ekki séð þetta myndband því að þeir sem hafa séð það segja að þeir hefðu alveg viljað sleppa því að sjá þetta. En nóg um það.

Ég skellti mér á Troy um daginn og ég verð nú bara að segja að mér fannst hún bara nokkuð góð, ég vissi samt ekki að Akkiles hefði verið svona mikill hrokagikkur. Ég hef nú aldrei lesið Ilíóns kviðu eða Oddyseifskviðu en maður á sjálfsagt einhvern tíma eftir að lesa þær þar sem við Hulda keyptu þær báðar á 250 kall í bóksölu stúdenta, alger snilldarsala í gangi þar þessa dagana, klassískar bókmenntir á spottprís, við keyptum góðan bunka af bókum, t.d. las ég The journey to the center of the earth eftir Jules Verne fyrir stuttu og var hún bara alveg þrælskemmtileg og mæli með því að sem flestir lesi hana.

Jæja nóg af bulli í bili. Piff. Jón Hafliði

Engin ummæli: