Smooooooooooooke on the waaaaater
Ja hérna þvílík og önnur eins snilld. Þvílíkir tónleikar maður. En fyrir þá sem ekki vita þá vorum við Hulda á tónleikum með Deep Purple í laugardalshöllinni í gærkvöldi og voru þeir hreint út sagt stórkostlegir. Ég var dálítið skeptískur þar sem það eru jú 30 ár síðan þeir voru uppá sitt besta og svo voru Ritchie Blackmore og Jon Lord ekki með lengur. En guð minn almáttugur, þeir sem voru í aðalhlutverki á þessum tónleikum voru einmitt Steve Morse sem var á gítarinn í staðinn fyrir Blackmore og Don Airey á Hammondinn fyrir Lord og að sjálfsögðu Ian Gillan. Það er ekkert venjulegt hvað maðurinn getur öskrað ennþá og er hann að verða sextugur kallinn. Þeir tóku bæði gömul og klassísk lög eins og Black Knight, Smoke on the Water, Hush og Strange Kind of Woman. Svo tóku þeir líka ný lög af Bananas plötunni sem mig minnti að hefðu verið frekar slöpp, að minnsta kosti það litla sem ég hafði heyrt af henni en svo var þetta bara þrælflott á tónleikunum. Svo má nú ekki gleyma upphitunarhljómsveitinni, Mánum, sem hafa ekki spilað í þrjátíu ár og þeir voru samt alveg magnaðir, þetta er hljómsveit sem er alger synd að maður hafi ekki uppgötvað fyrr en það var ekki laust við að ég hafi fengið dágóða gæsahúð þegar þeir fluttu gömlu snilldina.
Semsagt, tær snilld.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli