Jæja já
Jæja já þá eru prófin bara alveg að verða búin, eitt próf eftir, laugardaginn 15. maí, örveru og ónæmisfræði, klukkan 0900-1200, aðalbyggingu háskóla Íslands, stofu.......ég man það ekki. Þetta á eftir að vera skemmtilegur dagur, það bendir allt til þess að það verði allsherjar partý hjá deildinni (sem þýðir að það koma um 20 manns, þetta er lítil deild) með tilheyrandi pítsuáti, bjórdrykkju og júróvisjón glápi og að sjálfsögðu ótæpilegrar ölvunar af minni hálfu sem og annarra. Ætla reyndar ekki að vera gjörsamlega út úr kortinu, ég þarf nefnilega að fara í flug daginn eftir og ég nenni nú ekki að vera þunnur ú fluginu, það er óhollt fyrir líkama og sál.
En hvernig ætli júróvisjón fari? Ég verð nú bara að viðurkenna það að mér finnst þetta lag bara alveg ágætt, mér finnst yfirleitt þetta helvítis froðupopp sem er alltaf sent svo hrottalega leiðinlegt að það nær engri átt!!! Angel er tvímælalaust eitt hryllilegasta "lag" sem samið hefur verið, lagið í fyrra var alger horror líka, tell me var engan veginn ásættanlegt o.s.frv. Ég er semsagt ekki neinn voðalegur júróvisjón fan, en maður horfir samt alltaf á þetta, það er bara stimplað í mann og mér finnst stemmningin í kringum þetta bara alveg þrælskemmtileg, þetta er svona eins og áramótaskaupið, það er yfirleitt ekkert sérstakt, en samt er af einhverjum ástæðum gaman að fylgjast með þessu. Þetta er undarlegt, kannski getur Orri útskýrt þessa hegðun fyrir mér......eða hvað? Hann ætlar líka að horfa, er hann þá marktækur? Orri?
Jæja ég ætla að fara að lesa um streptococcus og staphylococcus sýkingar og þá sérstaklega um staphylococcus aureus og streptococcus mutans sem hafa mjög klínískt vægi innan tannlækninganna.
Yamas.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli