föstudagur, mars 25, 2005

Jón Hafliði
-sem heyrði í einkaþotu Bobby Fischers lenda á Reykjavíkurflugvelli!

Ég held svei mér þá að þetta sé ein stærsta stund lífs míns, fyrir utan daginn sem Bobby Fischer varð Íslendingur.......alveg eins og ég!!!!! Magnað........alveg ótrúlega magnað...........................

Nei annars, mér gæti ekki verið meira sama!!

Jæja þá er maður bara kominn í páskafrí og legg ég af stað austur eftir tvo klukkutíma. Gaman af því. Ég geri passlega ráð fyrir því að skella mér í eins og eina fjallgöngu og hver veit nema maður líti við á Rauða Torgið og fái sér eina Pepsi Max og spili pílu í nokkra klukkutíma, svo verður kannski nartað í smá Suður-Amerískar flögur í leiðinni. Ekki leiðinlegt það!!!

Ég er að ganga í gegnum algert blúsæði þessa dagana, hlusta á Muddy Waters út í gegn og er búin að vera að hlusta eilítið á Robert Johnson og Howlin Wolf í gegnum veraldarvefinn. En ég verð nú samt að viðurkenna það að ég fór ekki á eina einustu blústónleika á blúshátíð Reykjavíkur sem var á dögunum. Ástæðan? Jahhhhh bara eintómur galgopaháttur og gáleysi. Ekkert annað. En það breytir því ekki að maður fílar blúsinn alltaf vel maður. Ég hef bara spilað einu sinni á blústónleikum um ævina og var það svokallað session spil og ég verð nú bara að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vel við það að spila á tónleikum. En þeir tónleikar fóru fram í Blúskjallaranum í Neskaupstað og var spilað blús fram á rauða nótt og drukkið viskí úr kaffibolla þar til maður fann hvorki fyrir tám né fingrum lengur. Blúsinn bara flæddi fram......Hindrunarlaust. Óóóóóóóóóóóóóóójeeeaahhhhh!

jæja best að láta þetta bara duga þar til eftir páska.

Gleðilega páska allir saman.

þriðjudagur, mars 22, 2005

Páskafrí = Háskafrí?

Ég veit það ekki maður. Nú eru blessaðir páskarnir að koma og stefnan er tekin austur. Býst við gríðarlegu bloggleysi meðan ég verð þar en hver veit nema maður komist í tölvu og bloggi aðeins eins og vitleysingur. Hver veit hver veit.

Já þetta ár verður viðburðaríkt og skemmtilegt, það er ég alveg viss um. Það er að minnsta kosti búið að vera skrambi skemmtilegt hingað til og mér sýnist á öllu að það sé ekkert að fara að hætta því. Ég fór um síðustu helgi í óvissuferð með skólanum og var farið í Leifstöð og fólk látið hlaupa eitthvað eins og vitleysingar, nema ég, ég fékk það mikilvæga hlutverk að vera keila og stóð mig með einstakri prýði. Svo var farið eftir það í Sandgerði, það er nú magnaður staður skal ég ykkur segja, en þar einmitt hún Hulda upprunnin því að í herbergi með hornglugga í húsi í Sandgerði fæddist drengur fyrir tæpum 50 árum sem heitir Guðni. Og það vill einmitt svo skemmtilega til að þessi Guðni er faðir Huldu og þar af leiðandi er hann tengdapabbi minn. Þannig að ég á býsna sterkar taugar þangað. Já! Þá vitið þið það!
Í Sandgerði var farið í eitthvað danshús og allir látnir fíflast eins og fífl og eftir það var farið á hinn mikla eðal pítsustað Mama Mia Pizzaria og ég held ég verði nú bara að segja eins og er að þarna eru bornar fram alveg eðal pítsur og mun ég eflaust gera mér ferð þangað dag einn til þess einungis að fá mér pítsu. Og ég mæli með því að þið gerið slíkt hið sama, þetta er ekki langur rúntur fyrir góða pítsu!!
Jæja nóg um það. Það er ýmislegt sem ég bara verð að koma frá mér. Til dæmis sú staðreynd að 7. júní verða tónleikar með hinni stórkostlegu hljómsveit Iron Maiden í Egilshöll og að sjálfsögðu voru keyptir miðar á þessa tónleika. Ég þurfti ekki einu sinni að pína Huldu til þess að koma með! Hana langar virkilega til þess að fara á þessa tónleika! Svona er maður nú vel giftur! Það má eiginlega segja að ég sé búin að vera að bíða eftir þessu alla mína ævi. En eins og flestir sem mig þekkja þá er ég og hef alltaf verið svæsinn Iron Maiden aðdáandi og má lesa um það einhvers staðar í gömlu bloggunum mínum. Já, ég bara held ég hafi fullan rétt á að vitna í hann Jesú vin minn; "Það er fullkomnað!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!".
Svo er nú ekki nóg með það. Þann 19. maí verður frumsýnd á Íslandi myndin sem lokar Star Wars seríunni og það kemur endanlega í ljósi hvernig Anakin Skywalker verður að hinum alvonda (en þó ekki alveg) Svarthöfða. Sú mynd ber nafnið Revenge of the Sith og er hægt að sjá trailerinn á kvikmyndir.is. Ó jess, ég ætla að sjálfsögðu að fara á þá mynd í lúxus sal enda starwars nörd og stoltur af því!!!

Megi Mátturinn vera með ykkur.

laugardagur, mars 19, 2005

Eyrnasneplar og nasavængir

Jæja þá er komið að enn einu blogginu. Ég get nú ekki sagt að ég sé ánægður með afköst mín í bloggi undanfarnar vikur, þetta er reyndar bara ekkert nema skammarlegt. Og það er nú ekki nógu gott á þessum síðustu og verstu tímum, en ég tel að blómaskeiði bloggsins hjá norðfirðingum sé senn að ljúka, Hlynur er hættur, Sævar er hættur, Barði hverfur í tíma og ótíma og ég er farinn að verða latur við þetta og ég veit ekki hvað og hvað. Ég man þá tíma þegar maður tók bloggrúntinn mörgum sinnum á dag til þess að skoða blogg og fylgjast með commentunum auk þess sem maður dundaði sér við það að blogga sjálfur, stundum marga daga í röð. Blogspot, blogdrive, blog.central.is! Allt eru þetta hlutir sem voru svo spennandi og skemmtilegir, ég tel sjálfan mig vera dálítið af gamla skólanum í þessum málum þar sem að ég er með blogspot en æ fleiri hafa farið að notast við blog.central.is! If it´s not broken why fix it?......eða eitthvað svoleiðis. En þó eru þó nokkrir sem enn eru duglegir við þetta og er það hið besta mál. Ég hyggst bæta mig og blogga jafnvel tvisvar í viku héðan í frá (if you reach for the stars you might grap the moon).

Annars er það að frétta af mér að ég fór í klippingu um daginn og hef held ég aldrei verið svona stutthærður, hálfgerður kiwi fíolingur á manni ef svo má segja. En ég er engu að síður með örlitla bartlinga sem vonandi einn daginn verða að risastórum kótelettum. Hver veit?

kv. Jón Hafliði Sigurjónsson, sons Valdemars, sons Andrésar.

p.s. Vissuð þið að litur á eyrnasneplum hæna ákvarðar lit eggjaskurnarinnar? Ég vissi það ekki...........þar til um daginn.

fimmtudagur, mars 03, 2005

The Idiot Strikes Back!

Jæja best að blogga eitthvað. Undanfarið hef ég bara haft gríðarlega lítinn tíma og nenn til þess að blogga en núna hef ég aftur á móti tíma en í rauninni þá nenni ég því ekki. Stundum er það bara þannig í þessu lífi að maður verður að gera hlutina þó maður nenni því ekki, þetta sagði ég sjálfum mér.
Já það er ýmislegt búið að gerast síðasta mánuðinn. Í fyrsta lagi þá lágum við Hulda í flensu í fimm daga í upphafi febrúar mánaðar. Það er ömurlegt að vera með flensu, maður getur ekki gert neitt án þess að veina eins og alger aumingi. Það erfiðasta sem ég gerði allan daginn meðan á þessu stóð var að standa upp úr rúminu, grípa sængina, labba með hana fram, leggjast í sófann og kveikja á sjónvarpinu. Alger pína, en svona var flensan í hnotskurn auk þess sem maður borðaði stundum.
Svo eftir flensuna þá lá leiðin til Danmerkur þar sem við Búálfarnir vorum að spila á þorrablóti fyrir stórskemmtilega íslendinga í Sönderborg sem er syðst á Jótlandi og liggur þar með við landamæri Danmerkur og Þýskalands. Þegar við komum til bæjarins þá komum við við í matvöruverslun og ég er að segja ykkur það að það greip um sig einhver hópæsingur í hljómsveitinni þegar við sáum hvað kassinn af bjór kostaði og leiddi það til þess að við keyptum okkur allir einn kassa. Svo þegar við komum í híbýli okkar þá biðu okkar tveir bjórkassar í viðbót. 7 kassar. Þeir kláruðust. Með djúpsteiktri svínapuru.
Svo má líka taka það fram að við keyrðum til Þýskalands og sat ég við stýrið með fjóra fulla backseat drivers með mér sem leiddi til þess að þegar við ætluðum að komast frá Þýskalandi þá keyrðum við bara lengra inn í landið og ég fékk þýskt taugaáfall við aksturinn því að skilti sem sagði Danemark endaði bara í einhverjum smábæ þar sem einhvers konar lífsform með aflitað hár, sítt að aftan og í þröngum leðurbuxum gekk um göturnar. Þá vissum við að við værum komnir djúpt inn í Þýskaraland og ef við ætluðum að komat aftur heim án þess að aflitast þá yrðum við að finna einhvern sem talaði ensku, sem er ekki auðvelt í Norður-Þýskalandi, svo við gætum fundið leiðina heim, í bjórinn og svínapuruna. Eini einstaklingurinn sem gat talað við okkur var stelpa frá Kosovo sem seldi okkur bjór.......en ekki svínapuru. En allt er gott sem endar vel og vitaskuld komumst við aftur til Danmerkur, en sökum sálræns ástands míns eftir þessa keyrslu þá vildi ég ekki koma við í einni einustu af öllum þeim sex-shops sem voru við landamærin. Það segir sitt um hvurnig skapið var eftir þessa keyrslu. En strákarnir fyrirgáfu mér það og gáfu mér bjór og svínapuru og allt varð gott.
Jæja þetta blogg er orðið nógu langt en samt eitt í viðbót:
Búálfarnir verða að spila á Stúdentakjallaranum á morgun, föstudaginn 4. mars, og er frítt inn á staðinn og endilega mega sem flestir láta sjá sig. Bless bless.

Kv. Klaus