föstudagur, júní 10, 2005

Mikið gaman, mikið grín og alls kyns dóterí!!

Jæja ég nenni nú ekki að vera eitthvað að afsaka það hvað ég blogga sjaldan þannig að þið megið bara bíta í punginn á ykkur sem eruð eitthvað ósátt!!! Aahhhh þetta var nú alveg gríðar góð útrás.

Það hefur nú ýmislegt drifið á daga mína síðan síðast var skrifað hérna inn. Ég fór um síðustu helgi austur á bekkjarmót og það var alveg hreint út sagt hrikalega gaman, alveg magnað hvað fólki kom vel saman þarna og allir voru í góðum fílíng. Svo var alveg vitaskuld gaman að hitta gamla Mýrargengið + 1 Bakkabúa sem samanstendur af mér, Ólafi, Hjalta, Kobba og svo var Haukur þarna líka, Bakkabúi. Þetta var ekkert nema vel heppnuð nostalgía eins og hún gerist best!!!!!
Jæja svo er nú ekki nóg með það að ég hafi farið á bekkjarmót um helgina, en síðasta þriðjudag rættist hjá mér gamall draumur. Ég fór á tónleika með Iron Maiden. Þetta var nánast óraunverulegt að vera þarna eftir að hafa horft á tónleika með þessum snillingum síðan ég var 7 ára gamall!! Þarna var maður gólandi með þar sem Bruce Dickinson stjórnaði skaranum eins og herforingi. Ég vissi upp á hár hvað þeir myndu taka eftir hlé, en það var syrpan þar sem þeir taka Sanctuary og svo Running Free þar sem gríðarlegur hópsöngur á sér stað og hopp og læti. Eins og ég segi, þetta var nánast óraunverulegt en þó svo stórkostlegt að ég held ég láti þetta duga í bili. Ég er farinn austur í afmæli.

Jón, sáttur við tilveruna og lífið líka