mánudagur, júní 07, 2004

Sköpun bloggsins

Í upphafi skapaði Guð tölvur og internetið. Internetið var þá autt og tómt, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi guðs sveif yfir módemunum. Guð sagði: "Verði blogg!" og það varð blogg. Guð sá, að bloggið var gott og guð greindi bloggið frá klámsíðunum.

Einmitt

Jæja mikið er maður nú búin að vera latur að blogga upp á síðkastið. Það er nú margt búið að vera um að vera síðan ég bloggaði síðast og djöfull er fíflið með sláttuvélina fyrir utan gluggann hjá mér óþolandi, veit hann ekki að ég er að reyna að hlusta á Jeff Buckley?!?!? Ég skrapp austur og spilaði í sextugsafmæli þar síðustu helgi og Greb Ramidlav gaf mér næstum því hjartaáfall. Mjög lymskufullt og illt af honum. Svo fórum við Hulda vestur á Hólmavík um helgina og var það bara nokkuð gaman, tókum svokallaðann Drangsnes hring, sem liggur frá Hólmavík og yfir Bjarnafjarðarháls niður í Bjarnafjörð og þaðan fer maður til Drangsnes, sem er svefnbær, og svo aftur til Hólmavíkur. Það er allt morandi í þjóðsögum þarna fyrir vestan, ein var um stóran stein sem var eins og selshöfuð í laginu. Þarna var víst eitthvað par á röltinu fyrr á öldum og það bara gat ekki hamið kynhvötina og fullnægðu hvort öðru undir þessum stein. Jæja, stúlkan varð ólétt og þau viltu víst ekki að þetta kæmist upp svo þau tóku nýfædd barnið og skyldu það eftir undir þessum steini, hvort að krakkinn hafi verið eitthvað fatlaður í framan man ég ekki en það hlýtur samt að vera því að þegar hjónin ætluðu að fara að tékka á barninu daginn efir þá var það horfið!!!!! Svo gengu sögur af því mörgum árum seinna að kona væri á flakki þarna á heiðinni með höfuð eins og selur og væri að éta rollur og lömb og hrella fólk sem væri þarna á flakki!!! Ja há!!! Þannig var það nú.

bimbirimm

Engin ummæli: