miðvikudagur, maí 25, 2005

Skuggahliðin er skuggaleg!!

Ég skellti mér á Revenge of the Sith í gær og ég má nú bara til með að segja að hún var alveg skrampi góð og er ég alveg fullviss um að þeir sem eiga erfitt með að fyrirgefa George Lucas fyrir Jar Jar Binks fyrirgefa honum eftir að hafa séð þessa mynd.
Ég var vitaskuld alinn upp við Star Wars sem hluta af mínu daglega lífi, hvert sem ég fór þar var Star Wars dót, bæði frá bróður mínum og svo eitthvað sem mér hlotnaðist sjálfum og lék maður sér úti í garði með grænan njóla og var í hlutverki Loga Geimgengils, höggvandi mann og annan þar sem hann hoppaði fjórfalda hæð sína í lofti í fullum herklæðum sem samanstóð af svartri peysu og svörtum buxum og einum leðurvettlingi, þvílíkar minningar.
Ég verð bara að segja að ég fékk bara í magann og hálfgerður óhugur kom yfir mann þegar keisarinn "kom úr skápnum" ef svo má segja. Ég er að spá í að vera ekkert að segja neitt mikið meira um myndina en að mér fannst hún bara mjög góð og kláraði söguna alveg prýðilega. Þeir sem eru mér ósammála mega eiga það við sjálfa sig.

Jón, Star Wars nörd með meiru.

fimmtudagur, maí 12, 2005

Halldór hitti Bush

Alveg magnað að þetta sé svona mikið fréttaefni. Halldór Ásgrímsson staddur í Moskvu ásamt fullt af öðrum þjóðarleiðtogum á hátíð til minningar um lok Seinni Heimstyrjaldarinnar og við tölum það í fréttum að hann hafi hitt Bush!!! Jesss!!! Og ekki nóg með það, það var líka talað um það í fréttunum að Bush sé að lesa bók um sögu þorsksins......og sú bók hefur verið þýdd á íslensku!!!! Jessss!!! Svo var líka minnst á það að honum þætti athyglisverður kaflinn um þorskastríðið! Já nú líður mér miklu betur að vita þetta. Ætli hann hafi smakkað harðfisk? Alveg ótrúlegt hvað þessi þjóð er nú eitthvað sérkennileg, þarf að blaðra alltaf um eitthvað svona helvítis bull, allir verða uppveðraðir upp af einhverjum innræktuðum kúreka sem er búin að komast í gegnum efnisyfirlitið á bók um fisk. Þetta er bara fyndið!!

Vel á minnst var ég búin að segja ykkur frá því þegar ég hitti Davíð Oddsson um daginn? Jæja það var nú alveg stórmerkilegt skal ég ykkur segja. Það var nú þannig að ég var að keyra í einhverjum ranghala í Vesturbænum og það vildi nú svo heppilega til að ég keyrði inn í einhverju einstefnugötu óáfvitandi, á móti umferð vitaskuld, og hverjum haldiði að ég mæti þar á jeppanum sínum???? Nú auðvitað Davíð Oddson. Og vitið þið hvað hann gerði? Hann hló að mér þar sem ég æddi á móti honum á litla bílnum mínum og hann á stóra jeppanum sínum. Hann hló að mér þar sem að ég vék úr vegi fyrir honum. Hann hló að mér þegar hann keyrði fram hjá mér á stóra jeppanum sínum. Nú held ég að ég viti hvernig þingmönnum stjórnarandstöðunnar líði þegar þeir eru eitthvað að reyna að hafa sig upp á móti bláa fálkanum. Eða er það örn?

Jón sem hitti Davíð