Bloggbloggedíblogg
Ja hérna hér segi ég nú bara svona gjörsamlega að ástæðulausu. Nú er prófstressið að byrja að hellast yfir okkur vesælu háskólanemana og því fylgja móðursýkisköst þar sem fólk fer að velta fyrir sér hvort það ætti ekki bara að hætta þessu rugli; ég ræð ekkert við þetta, þetta er of mikið, þetta er vonlaust, af hverju er ekki komið sumarfrí, af hverju er ég í þessu námi, af hverju byrjaði ég ekki að læra fyrr eru hugsanir sem ásækja fólk á hverju vori og rétt fyrir jól. Iss segi ég nú bara, iss bara, aumingjavæl!!! Próf eru skemmtilegur tími, maður hefur afsökun fyrir því að vera ruglaður og bulla einhverja vitleysu, vera skítugur og labba um með brjálæðislegan glampa í augunum. Fólk hugsar með sér: þessi er nú eitthvað klikkaður en svo áttar það sig á því að þetta er bara háskólanemi í prófum, fullkomlega eðlilegt. Það er eitt sem er alltaf gert hérna niðri í Tanngarði í prófum, eða ekki gert, það er bannað að raka sig! Sumir skilja eftir gullfallegt og karlmannlegt yfirvaraskegg eftir prófin þar til kærustur þeirra hóta að fara frá þeim. Ég aftur á móti ætla að láta það eiga sig þar sem skeggvöxtur minn bíður ekki upp á það að herma eftir Tom Selleck. Ég mundi meira líta út eins og Jörgen, færeyski tannlæknaneminn, og það vil ég ekki. Í dag lít ég út eins hálfviti, ég er ekki beinlínis með skegg, heldur er þetta meira eins og einhvers konar andlitshár eins og voru á forsögulegum mönnum. Mjög fallegt.
Það er eitt sem ég þoli ekki prófum. En það er týpa sem allir kannast við. Það er týpan sem vælir og vælir rétt fyrir prófið, segist ekkert kunna, segist ekkert vera búin að læra, segist bókað vera fallinn þegar komið er úr prófinu og það lítur út fyrir að himnarnir séu að hrynja!!!! Maður hugsar með sér; Vá og ég sem hélt að ég væri ekki vel undirbúin, aumingja manneskjan. Svo er helvítis fíflið hæst í bekknum, brillerar alveg hreint. Iss iss iss.
(tek það fram að í sumum tilfellum er þetta heiftarlegur prófkvíði sem hrjáir svona fólk og er ætlunin á engan hátt að tala niðrandi til þeirra sem af því þjást)
Jón "australopithecus" Hafliði
Engin ummæli:
Skrifa ummæli