Jesús góður
Já ég fór á Passion of the christ í gær og hún var bara býsna góð, ég hef reyndar ekki lesið bókina en myndin var engu að síður býsna góð eins og ég sagði áður. Ofbeldið var þó nokkuð og ég held bara að ég hafi aldrei orðið var við eins mikla þögn í bíósal og á þessari mynd (spurning: verður maður var við þögn??). Maður hefði getað heyrt saumnál detta. Ég ætla svo sem ekkert að vera að segja ykkur frá myndinni og skemma fyrir fólki með því að segja hvernig hún endar, þið verðið bara að komast að því sjálf en það er býsna öflugt plott í lokin.
Ég fór einmitt í Smárabíó á þessa blessuðu mynd og ég fór að sjálfsögðu á klósettið og valdi mér eina góða setningu af veggnum fyrir ofan pissuskálarnar. En þarna var einmitt setning úr einhverri mögnuðustu hrollvekju allra tíma, en það er einmitt The Shining. Þetta er semsagt setning sem meistari Jack Nikulásson segir en hún hljómar svona:
"Wendy, darling. Light of my life. I´m not gonna hurt ya. I´m just gonna bash your brains in"
Rosalegt.
Annars er það í fréttum að Simon Cowel er ekki eini frægi kallinn sem er á Íslandi í dag en hann Keith Richards kom í kaffi til mín áðan og fékk kaffi og kökur og svo þegar ég svaraði honum neitandi um það hvort ég ætti heróín sprautu þá fór hann að skæla eins og smábarn og sagðist aldrei ætla að koma til Íslands aftur þannig að við getum útilokað það að Rolling Stones komi á klakann. Ég held samt að hann hafi róast aðeins þegar ég sagði bara við hann: "Hey, Keith, buddy, you can´t always get what you want and anyway time is on your site to get some satisfaction out of that sweet brown sugar". Ég held hann hafi aðeins lagast við þetta.
Blessbless
Engin ummæli:
Skrifa ummæli