miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Déskotans væl er þetta!

Jæja djöfull er ég nú búin að vera slakur í blogginu undanfarið, þetta er nú bara hálf hrottafengið. Svona er þetta bara stundum, maður annaðhvort nennir ekki að blogga og andagiftin er bara ekki til staðar, annars er svo sem ekkert vesen að henda fram einhverju tómu kjaftæði. Jemm jemm jemm.

Það er alveg með ólíkindum hvað tíminn er fljótur að líða þessa önnina maður, enda búið að vera meira en nóg að gera. Ég er búin að sjá hluti sem ég átti nú ekki von á að sjá. Ótrúlegt hvað sumt fólk getur farið illa með sig, sumt lið sem byrjar snemma í rugli er orðið handónýtt líkamlega og andlega á aldrinum 25-30 ára. Stór hluti af fólkinu sem skilar sér hingað niður í skóla er svona statt, allt upp í þeim er í rusli, og þá meina ég rusli, við erum að tala um Tsjernobil. Það fer í meðferð, áttar sig á því að tannviðgerðirnar sem framundan eru fara fram úr öllum þeirra fjárhagslegu martröðum (geta sjálfsagt gert ráð fyrir því að aurinn sem farið hefur í dóp um ævina þarf að fara aftur í tannlæknakostnað). Og hvað gerir þetta fólk? Jú það kemur til okkar. Vandinn er bara sá að stundum er þetta svo svaðalegt að manni endist ekki aldur til þess að laga þetta allt. Stundum er ekkert gert meira heldur en að hreinsa tannstein í þessu liði og svo er það sent út í bæ því að þetta er nemendum ofviða. Og ég sé það nú ekki fyrir mér að í öllum þessum tilfellum þá fari fólk bara beinustu leið til tannlæknis og láti laga allt. Það lætur laga eitthvað, fellur, hættir að mæta, svo eftir svona fimm ár er nógu mikið dottið úr og ónýtt til þess að við hérna í skólanum getum smíðað heilgóm eða part upp í það. Ja hérna hér segi ég nú bara, ja hérna hér. Farið vel með ykkur gott fólk.

Jón Hafliði. Tannlæknanemi með hugsjón.

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Þú verður bara að bíta á jaxlinn í smástund!

Þetta var ég næstum því búin að segja við tannlausa manneskju um daginn þegar ég var að vinna að því að smíða upp í hana gervitennur. Ég átti erfitt með mig í smástund. En sumir hefðu sjálfsagt klárað setninguna og skammast sín í langan tíma á eftir. Ja hérna.

Er einhver búin að sjá Doom? Haldið þið að hún sé góð? Þegar ég segi góð þá meina ég í raun "hvorki meira né minna heldur en það sem maður býst við af henni, stórar byssur, skrímsli og fullt af blóði og "töff" setningum".

Kv. Jón, stundum hugsa ég áður en ég tala, en ekki alltaf.