Hólí Mólí.
Ég var að keyra í bílastæðinu hjá öryrkjabandalaginu um daginn að leita mér að stæði og þá kom þessi hugsun upp í huga minn: "Hvaða helvítis, djöfull er mikið af fatlaðra stæðum hérna". Eftir fimm sekúndur kýldi ég mig.
Jæja það styttist óðum í að skólinn byrji og þá byrjar hin dásamlega rútína skólalífsins, ég byrja á hverjum einasta degi klukkan átta og er til mest fjögur í skólanum. Eftir þetta sumar er ekki til neitt sem ég þrái meira heldur en rútína. Ástæðan? Jú ég var að vinna vaktavinnu í sumar sem var ekki með neinu rúllandi plani, heldur voru vaktirnar bara einhvern vegin. Morgunvakt-kvöldvakt-millivakt-næturvakt-næturvakt-millivakt-frí-frí-frí-frí-kvöldvakt-millivakt-morgunvakt-frí-kvöldvakt-frí-frí-næturvakt o.s.frv. Þetta gerir mann alveg ruglaðann. Ég er einn af þeim mönnum sem þrífst best við reglulegan vinnutíma og það gera flestir enda hefur það verið vísindalega sannað að það hefur ruglandi áhrif á hin ýmsu efnaskipti líkamans að lifa ekki rútíneruðu lífi. Ég tók til dæmis eftir því að ég varð stundum skrýtinn í maganum og pirraður eftir að mikið rót var búið að vera á sólahringnum. Þannig að ég kem til með að koma stálsleginn út úr þessum vetri. Rútína er holl og góð, allan sólahringinn.
Svo verður fjör um helgina því að Búálfarnir eru að fara í bústað í bindindisferð. Þar verður spilað bridds og drukkið kaffi og te og farið í sund eldsnemma á morgnanna eins og okkur einum er lagið, hver veit nema við sleppum aðeins af okkur beislinu og fáum okkur eins og einn bjór.........tíhíhíhí. Ætli það. Mikið gaman mikið fjör.
þriðjudagur, ágúst 31, 2004
mánudagur, ágúst 23, 2004
Aztekar, þjóð blóðsins.
Já Aztekarnir voru nú engin smá þjóð, og ekkert lítið biluð. Þessi þjóð réði yfir stórum hluta Mið-Ameríku og var þekkt fyrir mikla grimmd. Þetta var hirðþjóð sem kom úr norðurhluta Mið-Ameríku og réðist inn í hinar ýmsu borgir. Þeir fylgdu svo eftir spádómi sem fólst í því að þjóðin átti að flakka um þar til komið væri að erni sem væri að gæða sér á snáki ofan á vissri tegund af kaktusi. Þar skildu þeir byggja stórt hof til heiðurs þeirra æðsta guði, Huitzilopochtli, sólarguðinn. Þeir trúðu því að til þess að sólin (Huitzilopochtli) gæti komið upp að morgni þyrfti hún að heyja mikinn bardaga á hverri nóttu við illa djöfla (sem voru tunglið og stjörnurnar). Og til þess að hann fengi næga orku fyrir þann bardaga þurfti blóð og því fóru fram mannfórnir á hverjum degi. Þessar fórnir fóru þannig fram að fórnarlömbin, sem oftast voru fangar úr borgum sem þeir höfðu hertekið, gengu upp fórnaraltari, sem voru stórir pýramídar ekki ósvipaðir Maya píramídunum. Þegar upp var komið tók fórnarprestur á móti fórnarlambinu, lagði þá á steinborð og skar úr þeim hjartað og hélt því til móts við sólu og brenndu það svo í heilögum eldi sem brann í "vasa arnarins". Svo var líkunum varpað fram af pýramídunum. Við sérstök tilefni þá buðu heilagir stríðsmenn sig fram í þessar fórnir og hafa fundist bréf þar sem skrifað er: "Bróður mínum verður fórnað í dag, það er sárt en ég er stoltur af honum". Svona var þetta bara. Svo þegar verið var að biðja til regnguðsins, Tlaloc, þá var fórnað börnum.
Talið er að þegar verið var að vígja nýtt og stórt hof fyrir sólguðinn þá hafi fjórir fórnarprestar staðið í því að fórna 80000 manns. Það er mikið af blóði, ég held að reyndustu menn hafi ekki einu sinni náð að gera að 80000 þorskum um ævina........jú kannski. Það er ritað að þegar menn Cortézar réðust inn í borgina þá hafi verið eins konar hleðsla þar sem höfuðkúpum fórnarlamba hafði verið raðað á stangir og töldu menn 200000 höfuðkúpur. Það er meirihluti íslendinga.
Já þetta er rosalegt, það var sko ekkert lítið lagt á fólk til þess að sólin gæti komið upp. Ég ætla rétt að vona að íslendingar fari ekki að taka upp á þessu til þess að reyna að minnka tíðni skammdegisþunglyndis. Hver veit.

þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Do the hustle
Já þvílíkt og annað eins. Ég var að rölta um mitt heimili í einhverju reiðuleysi í morgun þegar ég stöðvaði skyndilega með svip sem gaf til kynna að ég hefði uppgötvað eitthvað hræðilegt. Ég stóð þarna á miðju eldhús/stofu gólfinu (ég bý í lítilli íbúð) og sagði við sjálfan mig: "Jón Hafliði Sigurjónsson, hvað í andskotanum er að þér?" Og ég svaraði: "Ha? Hvað?" Og ég sagði við mig aftur: "Af hverju í ósköpunum ertu að söngla Do the Hustle?" Og ég bara stóð kyrr í mínum sporum og gerði ekkert í kortér eða svo. Þegar ég var búin að jafna mig byrjaði ég aftur að rölta í reiðuleysi um íbúðina og áður en ég vissi af var ég byrjaður að söngla lagið aftur. Þá hljóp ég á vegg og rotaði mig. Þegar ég vaknaði úr rotinu eftir hálftíma eða svo þá var aðeins eitt sem kom upp í huga minn; "dedödedödehdehdödeda, do the hustle". Af hverju getur maður aldrei fengið uppáhalds lögin sín á heilann? Af hverju þarf maður alltaf að fá óþolandi lög á heilann? Hver er tilgangur lífsins? Þetta eru spurningar sem maður fær sennilega aldrei skiljanleg svör við og verður að lifa við það alla sína ævi að liggja andvaka á nóttunni og velta fyrir sér og söngla óþolandi lög þar til maður sofnar værum svefni og vaknar með nýtt, óþolandi lag á heilanum og maður veltir því fyrir sér hvað maður er í raun að gera hérna.
Diskókveðja. Dr. J.

föstudagur, ágúst 13, 2004
Jedúddamía.......................................
Úff maður, hitinn hérna er að gera út af við mig. Ég sver það, ég bara veit ekkert hvað ég á að gera í svona rosalegum hita. Auðvitað fór maður að hugsa með sér að maður yrði nú að vera úti fyrst það er svona gott veður og ég gerði það í gær, var mikið úti. Ég var semsagt í vinnunni og sat bara úti í garði og bónaði bílinn og svona og hékk bara úti frá 8-16. Svo þegar ég kom heim úr vinnunni þá var ég bara ónýtur. Síðdegissólin skein á veröndinni hjá mér og lék við hvern sinn fingur. Tilvalið að leggjast út og láta sólina gefa manni vellíðunartilfinningu og fá svo stöku sinnum svalan gust á sig....aaaaaaaaaaaa hið ljúfa líf. En nei, engin svalur gustur í gær, ó nei, heldur hlandvolgur og slæmur gustur. Ég var sko búin að fá nóg af sól í gær. Ég gat ekki hugsað mér meiri sól. Ég reyndi að vera úti.....nýta góða veðrið og svona. En ég gat það ekki. Ég bara lagðist upp í sófa og blótaði sólinni. Og horfði á Star Wars.

mánudagur, ágúst 02, 2004
Neistaflug........................
Jæja það var sko mikið fjör fyrir austan um helgina maður. Fjörið byrjaði í Neskaupstað í stúku Egils Rauða á fimmtudagskvöldinu þar sem við Búálfar störtuðum helginni af gömlum og góðum vana og var fjörið alveg með eindæmum, það mættu 160 manns á barinn og var staðurinn orðinn fullur klukkan 2200, semsagt þetta er greinilega orðin hefð sem er komin til að vera. Svo fór ég á föstudaginn og sótti Huldu til Egilstaða og vorum við þar fram eftir degi og svo spiluðum við Búálfar í svæðisútvarpinu og um kveldið þá spiluðum við á balli í Borgafirði eystri og var það að sjálfsögðu alger snilld, fullt hús af fullu fólki á öllum aldri.........alveg eins og það á að vera á balli með Búálfunum. Svo á laugardagskvöldinu spiluðum við í brúðkaupsveislu hjá Hálfdáni og Erlu og var það alveg stórkostlegt stuð, ballið var í risatjaldi og voru heybaggar út um allt og áfengið flæddi í gríðarlegu magni.....alveg eins og það á að vera á balli með Búálfunum. Svo á sunnudeginum þá var sko rifjað upp rokkið og voru Rufuz tónleikar haldnir í Blúskjallaranum og tókust þeir alveg prýðilega, þetta var hrátt og flott......alveg eins og góðir rokktónleikar eiga að vera. Svo er maður bara að jafna sig eftir helgina núna......með tvær kippur af bjór í ísskápnum sem bíða þess að vera drukknar. Skál fyrir góðri verslunarmannahelgi.