I feel so violated.Jæja, síðasta helgi var alveg þrælgóð. Hulda kom í bæinn en hún átti afmæli auk þess sem það var konudagur og gerðum við okkur því glaðan dag......eða svona að mestu leyti. Hún hafði gefið mér í bóndadagsgjöf nudd í Mecca spa sem var nýtt sér þessa helgi og fékk hún sér að sjálfsögðu nudd líka. Hulda er nautnaseggur og hefur þar af leiðandi nokkrum sinnum farið í nudd og er því vön, en ég engu að síður er tiltölulega sjálfum mér nægur og hef þar af leiðandi aldrei farið í nudd á minni ævi, í besta falli nudda ég stundum bakinu utan í tré eða stóran stein í fjallgöngum. En nú var komið að því, fyrsta, klassíska, íslenska heilnuddið. Ég neita því ekki að ég var dálítið spenntur, því Hulda talar um það að nudd sé gífurlega góð aðferð til þess að slaka á, og það er búið að vera mikið um að vera um dagana og nudd því ekki óvelkomin kostur til slökunar. Svo kom að því, við vorum komin í sloppana og inniskóna og biðum eftir nuddurunum í rólegheitum. Skyndilega arka inn tveir karlmenn.....annar er massaður indverji og hinn kínverskur rindill. Massaði indverjinn vatt sér að mér og kynnti sig........ég man ekkert hvað hann heitir, hugur minn var annars staðar......svo fylgdi hann mér inn í nuddherbergið og sagði mér að leggjast á magann á bekk sem þarna var sem ég og gerði. Herbergið var lítið, dauf lýsing var þarna inni og Friðrik Karlsson á fóninum. "
nú skal slaka á maður" hugsaði ég með mér. Svo byrjar nuddið. Massaði indverjinn er búin að maka volgri olíu á bakið á mér og byrjar að nudda........jújú þetta var þokkalegt bara. Hann nuddar axlirnar, bakið og vinnur sig neðar þar til........helvítis gaurinn dregur sundskýluna mína niður á hálfar rasskinnar og nuddar á mér rasskinnarnar með volgri olíunni!!!!!
"
Neineineineineineineinei, hvað gengur nú á?" hugsaði ég með mér og tilhugsunin um að slaka á og jafnvel sofna var farin til fjandans og ekki á leiðinni til baka.
Svo þegar hann fór að nudda á mér lappirnar þá strengdi hann sundskýluna upp eins og G-streng svo hann gæti nuddað á mér rasskinnarnar aftur!!!!
"
Er þetta eðlilegt? hvernig í andskotanum á ég að slaka á við svona aðstæður???" hugsaði ég með mér. Ég er ekki frá því að ég hafi heyrt hann anda sérstaklega djúpt þegar hann nuddaði þetta svæði........kannski var það ímyndun......nei andskotinn hann naut þess helvítis perrinn.
Næsta hálftímann nuddaði hann hér um bil hvern einasta flöt líkama míns að undanskildum kynfærunum og endaþarmsopinu en hugsanir mínar snerust um það þennan hálftíma hvernig ég skyldi drepa manninn ef hann skildi voga sér þangað með olíubornum fingrunum.
Eftir nuddið fór ég í heita pottinn og fannst Mecca Spa ekki lengur vera kósi og notalegur staður heldur subbulegt stóðlífis perrabæli. Slísí hola.
Hulda kom álíka hissa (en ekki eins mikið enda vanur nuddþegi), úr nuddinu því að kínverski rindillinn lét það ekki duga að nudda hana heldur hoppaði hann ofan á bakinu á henni og togaði í hár hennar þannig að þegar hún kom út úr nuddinu leit hún út eins og Tina Turner á góðum degi.
Það sem gerði þennan dag góðan var gott kaffi, kökur og fínerí sem við fengum okkur í góðu yfirlæti og svo enduðum við daginn á Fosshóteli á Nesjavöllum þar sem við fengum okkur góðan mat og rauðvín og enduðum svo kvöldið í heitum potti og fögnuðum dátt þegar í ljós kom að Eiríkur Hauksson vann undankeppni Eurovision. Um nóttina sváfum við eins og ungabörn.
Ef það er eitthvað sem ég lærði af þessu er það að ég ætla aldrei aftur í svona nudd! Tré og grjót verða látin duga héðan af og kannski leyfi ég Huldu að nudda mig þegar ég verð búin að jafna mig eftir hryllinginn í Mekka Spa.
kv. Jón Hafliði