Bloggaholic.
Ég bara varð að blogga, þetta er eins og þegar mann klæjar í nefið í miðri samræðu við einhvern mikilvægan um eitthvað mikilvægt, nefið hefur forgang, maður getur bara ekki sleppt því að bora vísifingri eins langt upp í nefið og mögulegt er til þess að klóra sér. Þá vitið þið það.
Já ég verð nú bara að vera sammála Elton John varðandi þessa endurútgáfu af Band Aid jólalaginu. Mér finnst þetta bara ekkert sérstök endurútgáfa, reyndar bara frekar slöpp. Þá fannst mér nú George Michael og Boy George koma þessu betur frá sér og er þetta eflaust í fyrsta og síðasta skipti sem ég segi að þeir séu betri en einhver (þó svo að ég geti ekki neitað því að Last Christmas sér stórkostlegasta jólalag allra tíma) þar sem þeir falla tvímælalaust undir gerpa-categoríuna hjá mér, og mundi ég skilgreina þá sem neikvæð gerpi. Þá vitið þið það.
Mig langar til þess að drepa nágranna mína. Menn sem spila helvítis hjálpræðis lagið með Eiríki Hauks, Eyjólfi Kristjáns og öllum hinum fíflunum í botni fimm sinnum í röð eiga á engan hátt rétt á því að lifa. SAMEINUMST HJÁLPUM ÞEIM, SEM MINNA MEGA SÍN!!!!! Jesús Kristur segi ég nú bara. SAMEINUMST SLÁTRUM ÞEIM, SEM SPILA ÞETTA LAGFIMMSINNUMÍRÖÐÍBOTNI!!!! AAARRRRRRRG. Þá vitið þið það.
Knúturinn var eitthvað að tauta um að maður ætti að koma með eitthvað svona topp fimm afþreyingarefni á árinu. Jújú, ég er að spá í að kasta fram svona topp fimm afþreyingarefni, bækur, tónlist og myndir. Sumt gamalt annað nýtt, skelli þessu bara í eina súpu.
1: Ég verð að byrja á nýja disknum með Nick Cave; Apattoir Blues/The Lyre of Orpheus, fannst Lyre of Orpheus betri, vel rólegur og flottur, alveg stórkostlegur diskur alveg hreint.
2: Ég las Hitch Hikers Guide to the Galaxy í ár og fannst hún alveg hreint stórkostleg, hrein hrein snilld.
3: KillBill myndirnar fannst mér líka alveg stórskemmtilegar, mjög töff eins og flest sem Tarantino gerir.
4: Shrek 2, ég verð bara að setja hana þarna, alveg endalaust fyndin mynd.
5: Ég held ég láti þetta bara duga.
Þá vitið þið það. Hóhó fucking hó.
miðvikudagur, desember 22, 2004
miðvikudagur, desember 15, 2004
Hver setti allt þetta hor í nefið á mér??
Jæja þá styttist óðum í jólin og síðasta prófið mitt er á morgun. Núna get ég talað um 30-40 mismunandi æxli í munni, 23 belgmein, heilan helling af veirusýkingum og að ég tali nú ekki um alls kyns meðfædda galla eins og smákjálka! Æðislegt.
Já, ég er staddur í vesturbænum og það er kalt sagði einhver. Og kulda fylgir ósjaldan kvef. Ótrúlegt þetta kvef, maður fer að sofa í góðum fíling, alveg heill heilsu og svo þegar maður vaknar og byrjar að reyna að tala eitthvað þá hljómar maður eins og Andrés Önd á hassi! Hvað er málið? Örfáir klukkutímar og nefið á mér er fullt af hori! Ég held að ég sé búin að snýta svona tuttugu lítrum síðan í morgun og er kominn með sár á nefið sökum ofsnýtingar og u.þ.b. eitt jólatré er búið að taka við horinu og fara beinustu leið í ruslið. Maður ætti kannski að setja á markaðinn eins konar neflegg sem seldur er í apótekum svo fólk þurfi ekki alltaf að vera að standa upp og snýta sér. Hmmm einkaleyfið á þessari hugmynd gæti tryggt mér og mínum bjarta framtíð. 50 lítra hólkur á bakinu fullur af hori........Nei annars, ég held ekki.
Ég held að ég láti þetta vera mitt síðasta blogg fram að jólum. Vér sjáumstum á nýju ári. Trýtilbuxi óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. blebleble.

þriðjudagur, desember 07, 2004
Íslendingar hljóta að vera stórskrýtnir!!!
Já mér líst ekkert á þetta. Var að lesa í fréttablaðinu í morgun um Sigurrós. En sú blessaða hljómsveit er að fara að setja eitt lagið sitt í mynd með Bill Murray. Ekkert að því, Bill er snillingur. En það vakti mig til umhugsunar. Viljum við að Sigurrós verði frægir? Það er of seint að spyrja að þessu því að þeir eru þegar orðnir nokkuð frægir en hefðum við ekki átt að spyrja að þessu? Var ekki nóg að okkar frægasti Íslendingur væri Björk? Hún er stórkostlegur tónlistarmaður og allt það en hún er líka alveg hreint stórskrýtin, meira en lítið furðuleg. Og hún er ein stærsta landkynning sem við eigum!! Og hún er stórskrýtin (fæ aldrei nóg af þessu orði). Svo koma Sigurrós! Það þarf engan eldflaugasérfræðing til þess að sjá það að þeir gætu alveg eins verið nýskriðnir úr einhverri holu þar sem þeir hafa verið aldir upp af rassálfum (ég sá þá labba út af Prikinu um daginn). Þarna er okkar næst stærsta landkynning. Hvað á fólk út í heimi eftir að hugsa? "wwoooh, those Icelanders are extremely weird!!". "Let´s go take a look at them". Túristar eiga eftir að koma hingað í massavís, en ekki til þess að skoða Ísland, heldur til þess að sjá heilu hjarðirnar af Björkum og Sigurrósar-holubúum!! En svo koma þeir hingað og hvað? Engin Björk, engin Sigurrósar-rotta! Fullt af venjulegu, hversdagslegu fólki! Ef þeir verða heppnir þá sjá þeir Megas og fá meira heldur en þeir borguðu fyrir. Jahhh jedúddamía.
J.