miðvikudagur, október 27, 2004

Skrýtinn endir.

Hvað dettur manni í hug þegar orðasamsetningin "Skrýtinn endir" kemur einhvers staðar fram? Mér dettur helst í hug bók/mynd eftir Stephen King (hef aldrei lesið bók eftir hann en hef aftur á móti séð fjölmargar myndir sem byggðar eru á bókum hans). Þessar myndir eru langoftast alveg þrælskemmtilegar og óhuggulegar (fæ ennþá martraðir út af IT). En mér finnst alveg agalega algengt í þessum sögum að endirinn sé bara einhver alger þvæla, eða bara stórfurðulegur. Það er eins og hann sé búin að skrifa alveg frábæra sögu og búinn að vera að brainstorma alveg svakalega og allt er alveg hreint stórkostlegt og þá.........dettur hann í það til þess að fagna því að hann sé næstum því búin að klára eina bestu bók allra tíma og þynnkan varir í marga daga. Og á þessum dögum þá er það eina sem hann hugsar: "Hvernig í andskotanum á ég eiginlega að klára þessa djöfulsins bók?" Svo býr hann til einhverja algera þvælu og það eina sem kemur upp í hugann er: "OK.....skondið....aha".

The Gunslinger

P.S. ..........Nei annars sleppum því.

Engin ummæli: