Mikilmennskubrjálæði??
Ég held ekki! Ég var að fá lánaðar nótur hjá góðvini mínum Óla Egils, a.k.a. Óla Fiðlu, að lagi eftir Paganini og ég ætla að spila þetta lag á bassann!! Þetta eru fjórar blaðsíður af nótum, lagið er í allegro, eða 120-160 slög á mínútu (held ég), og þetta eru um 180 taktar og eingöngu 16 parts nótur!!! Mikilmennskubrjálæði? Kannski....en ég held ekki. Maður getur að minnsta kosti sagt að maður hafi reynt. Ég man ekki alveg hvað þetta lag heitir, þetta er einhver opus 11. Stórskemmtilegt alveg, er að spá í að safna síðu hári og hafa það allt upp í loftið, kannski verð ég þannig sjálfkrafa við það að liggja yfir þessu lagi, vakna bara einn daginn með sítt hár og allt upp í loftið, alveg eins og brjálað tónskáld. Ég sé þetta alveg fyrir mér......ég labbandi niður Laugarveginn með hárið allt upp í loftið og hummandi lagið. Svo öskra ég á pottaplöntur og segi þeim að hætta að hæða mig. Ég er farinn heim að æfa mig og öskra á pottaplöntur.
Kv. J.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli