mánudagur, nóvember 01, 2004

Kannt þú ekki að nota tannþráð???

Ég áttaði mig á því um daginn að ég á mér leiðindakarakter sem kemur fram öðru hvoru. Þessi karakter er tannlæknaneminn sem ætlar að hafa vit fyrir öllum. Þessi karakter býr í öllum tannlæknanemum og er sérstaklega áberandi við fyrstu árin í námi, svo dregur aðeins úr honum, en hann kemur alltaf fram öðru hvoru, jafnvel að námi loknu.
Það sem einkennir þennan leiðindakarakter er einstök þráhyggja sem lýsir sér í því að maður spyr alla sem maður þekkir hvort þeir noti ekki tannþráð reglulega!! Og það sem verra er, þessi karakter veit aldrei hvort hann sé búin að spyrja að þessu áður og líður eins og hann verði að sinna sínu starfi og minna fólk á það að nota tannþráðinn. Í verstu tilfellunum þá byrjar tannlæknaneminn að vera með eins konar sýnikennslu í því að nota tannþráðinn, sem felst í því að hann notar fingurna til þess að lýsa hreyfingum þráðsins milli tannanna og hvernig hann strýkur yfirborð þeirra. En það eru einna helst þeir sem eru nákomnir tannlæknanemanum sem verða fyrir þessum hryllingi, en sýnikennslan kemur venjulega í beinu framhaldi af því þegar einstaklingur nákominn tannlæknanemanum segir við hann að hann noti tannþráðinn reglulega. Betra væri að segja bara við tannlæknanemann að maður noti tannþráð ekki reglulega og finnist það leiðinlegt. Þá verður tannlæknaneminn venjulega orðlaus eða segir að það eigi að nota þráðinn a.m.k. 3 sinnum í viku og labbar í burtu mumlandi eitthvað um tannholdsbólgu og loftfælnar bakteríur, svo eftir svona 3-5 mínútur þá er hann horfinn og allt fellur í dúnalogn.

Kv. Jón Hafliði.


Engin ummæli: