mánudagur, október 04, 2004

Grebesknepes

Jæja kæru blogglendingar, þá er bara komin mánudagur og svei mér þá ef haustið er ekki komið líka, allavega fuku nokkur þurr laufblöð í smettið á mér rétt áðan og skildu eftir sig djúpa skurði í mínu annars lýtalausa andliti, auk þess sem það er aðeins farið að kólna. Helvítis mánudagar.
Annars fór helgin ágætlega, ég stóð mest allan tímann útí Hvíta í Borgarfirði með stöng í einni og ekkert í annarri og veiddi hvorki meira né minna en heila tvo fiska á Black ghost flugu sem er umtalsvert meira en ég hef veitt á flugu hingað til. Þannig að þetta er allt að genga prýðilega. Annars nenni ég ekki að blogga meira núna.
En það má til gamans geta að Hulda er nú farin að blogga og er slóðin http://www.blog.central.is/hulle

bleble

Engin ummæli: