Sagði einhvern blogg?
Jæja!! Þá er bara kominn sunnudagur......það rignir...að sjálfsögðu.
Fór á oktoberfest/grímuball með tannlæknadeildinni á föstudaginn og klæddi mig upp sem arabi. Fékk einhverja mussu og svona blómapottahatt hjá Helga vini mínum. Ég ákvað að láta búninginn duga og ekkert vera að fara í einhvern karakter, því ef ég hefði gert það þá hefði fyrirsögnin í fréttunum í gær verið: Sjálfsmorðsárás í sal Slysavarnarfélags kvenna seint í gærkveldi. Ég ákvað þess í stað að vera bara fullur og skemmtilegur eins og ég er alltaf, þar til einhver hellti rauðvíni yfir mig, þá var ég bara fullur og fúll. En það entist bara í smástund því ég var ekki lengi að taka gleði mína á ný, þar til einhver asni kom og var einfaldlega hundleiðinlegur, þá varð ég fúll aftur og benti manninum á það hversu leiðinlegur hann væri.........hann varð ekkert skemmtilegari fyrir vikið. Hreinskilni bara borgar sig ekki.
Smile er góður diskur. Brian Wilson og co. fara á kostum á þessari plötu. Lögin renna öll saman í eitt og mynda heilsteypt og flott verk. Finnst t.d. mjög flott melódían: Child, child, child, the child, the child vera mjög töff, en hún kemur fyrir í fleiri heldur en tveimur lögum. Það veit ábyggilega enginn hvað ég er að tala um. En best að fara að renna plötunni aftur í gegn.
kv. Jón Hressi
Engin ummæli:
Skrifa ummæli