Það er ískalt á toppnum og asni að reykja sígarettu!!
Fór í netta fjallgöngu í dag. Ákvað að skella mér á hið fína fjall Helgafell eða Holy Mountain eins og Tolkien hefði kosið að kalla það. Það var ekki laust við að Hringadróttinssaga hefði komið upp í hugann á þessari göngu, gríðarlega flott landslag á þessu svæði og hef ég hiklaust sett mér það markmið að kanna þetta svæði betur og lenda í skemmtilegum ævintýrum.............jájá. En allavega, ég var í góðum fíling í þessari göngu og ég er greinilega í góðu formi enda stæltur með eindæmum. Gangan gekk vel fyrir sig, ég komst upp á toppinn og hlakkaði til að setjast niður í kaldri golunni, njóta útsýnisins og anda að mér fersku fjallaloftinu. Svo kom það eins og blaut tuska í andlit mitt. Reykingastyppa........hvur andskotinn. Ég rölti á toppnum og þar sat fullorðinn maður með ljótan hýjung, ljót gleraugu og vindil. "Góðan daginn" sagði ég ómþýðri röddu og "góðan daginn" svaraði kallinn rámri röddu. Venjulega hefði ég sagt blessuð blíðan eða eitthvað álíka og blaðrað við þann einstakling sem ég rekst á á förnum vegi. En í þetta skiptið sagði ég ekkert og fór niður hundóánægður með "Vanvitann með vindilinn". Helvítis hálfviti.
Gunnlaugur Ormstunga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli