Fjer ferir eystan
Já við Hulda skelltum okkur austur síðustu helgi og höfðum af því gagn og einnig nokkurt gaman. Alltaf gott að líta á heimaslóðir og slaka aðeins á. Ég lét loksins verða af því að skella mér á Rauða Torgið sem er nýja kráin í bænum í gamla Gilshúsinu eða gömlu Bakkabúðinni eins og það er víst kallað og djöfull er þetta óþægilegur stóll sem ég sit í.......svona búin að skipta um stól. Já ég leit þangað með Knútnum áður en haldið var á trúbadorahátíð og verð ég bara að segja að þetta er alger snilldar staður og alveg tilvalið að fara þangað þegar mann langar í bjór eða kaffi. Þarna eru þægilegir stólar, ódýr bjór, koníakshorn og síðast en ekki síst breiðtjald til þess að horfa á eitthvað skemmtilegt eins og t.d. tónleika með Deep Purple eða leik í meistaradeildinni. Já ég held bara að maður láti Stúkuna eiga sig í flestum tilfellum héðan í frá. Gaman að því.
Svo fór maður á tónleika með hinum ýmsu trúbadorum og það var gaman. Nenni ekki að segja neitt meira frá því....þetta var bara gaman...ekkert svakalegt......bara gaman........OK?
Svo var að sjálfsögðu litið í fjallið og svona og var það alveg stórkostlegt að sjálfsögðu, en fyrir þá sem það ekki vita þá finnst mér gaman að labba upp á fjöll og reyni að gera það sem oftast og hef ég því miður alltof lítið gert af því hérna í suddanum í Rvk. Þannig að ef einhver ætlar í fjallgöngu fyrir sunnan þá má sá hinn sami hafa samband og bjóða mér með, ég kem kannski.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang og Goggi greyið er sjálfsagt orðinn býsna þreyttur en ég er búin að vera að spæna upp í honum tennur og rífa þær úr á víxl og setja nýjar í staðinn, og svo spæna meira og rífa út og sulla amalgami út um allt, að ég tali nú ekki um það þegar tennurnar brenna út af bornum, en það er nú ekkert alvarlegt. Ferðir til tannlæknis eiga ekkert að vera eins og spa meðferð í Laugum, það veit fólk vel og það er ástæða þess að því er ekkert sama um það að fara til tannlæknis. Ég ætla ekkert að vera að rembast við það að vera þessi "mjúki" tannlæknir. Ég er bara það sem fólk býst við af mér. Fólk kemur ekki frá mér og segir: "Þetta var alveg æðislegt, það var rifið úr mér tvær tennur og ég fann ekki neitt, hann Jón er alveg æðislegur". Þegar fólk kemur frá mér þá segir það bara: "Æ, þú veist hvernig þetta er". Þannig er maður ekkert að vekja neitt umtal, maður er bara tannlæknir og það finnst engum frábært að koma og ekkert hræðilegt heldur, því er bara ekki sama.
Kv. Jón Hafliði. Tannlæknirinn á horninu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli