miðvikudagur, febrúar 21, 2007

I feel so violated.

Jæja, síðasta helgi var alveg þrælgóð. Hulda kom í bæinn en hún átti afmæli auk þess sem það var konudagur og gerðum við okkur því glaðan dag......eða svona að mestu leyti. Hún hafði gefið mér í bóndadagsgjöf nudd í Mecca spa sem var nýtt sér þessa helgi og fékk hún sér að sjálfsögðu nudd líka. Hulda er nautnaseggur og hefur þar af leiðandi nokkrum sinnum farið í nudd og er því vön, en ég engu að síður er tiltölulega sjálfum mér nægur og hef þar af leiðandi aldrei farið í nudd á minni ævi, í besta falli nudda ég stundum bakinu utan í tré eða stóran stein í fjallgöngum. En nú var komið að því, fyrsta, klassíska, íslenska heilnuddið. Ég neita því ekki að ég var dálítið spenntur, því Hulda talar um það að nudd sé gífurlega góð aðferð til þess að slaka á, og það er búið að vera mikið um að vera um dagana og nudd því ekki óvelkomin kostur til slökunar. Svo kom að því, við vorum komin í sloppana og inniskóna og biðum eftir nuddurunum í rólegheitum. Skyndilega arka inn tveir karlmenn.....annar er massaður indverji og hinn kínverskur rindill. Massaði indverjinn vatt sér að mér og kynnti sig........ég man ekkert hvað hann heitir, hugur minn var annars staðar......svo fylgdi hann mér inn í nuddherbergið og sagði mér að leggjast á magann á bekk sem þarna var sem ég og gerði. Herbergið var lítið, dauf lýsing var þarna inni og Friðrik Karlsson á fóninum. "nú skal slaka á maður" hugsaði ég með mér. Svo byrjar nuddið. Massaði indverjinn er búin að maka volgri olíu á bakið á mér og byrjar að nudda........jújú þetta var þokkalegt bara. Hann nuddar axlirnar, bakið og vinnur sig neðar þar til........helvítis gaurinn dregur sundskýluna mína niður á hálfar rasskinnar og nuddar á mér rasskinnarnar með volgri olíunni!!!!!
"Neineineineineineineinei, hvað gengur nú á?" hugsaði ég með mér og tilhugsunin um að slaka á og jafnvel sofna var farin til fjandans og ekki á leiðinni til baka.
Svo þegar hann fór að nudda á mér lappirnar þá strengdi hann sundskýluna upp eins og G-streng svo hann gæti nuddað á mér rasskinnarnar aftur!!!!
"Er þetta eðlilegt? hvernig í andskotanum á ég að slaka á við svona aðstæður???" hugsaði ég með mér. Ég er ekki frá því að ég hafi heyrt hann anda sérstaklega djúpt þegar hann nuddaði þetta svæði........kannski var það ímyndun......nei andskotinn hann naut þess helvítis perrinn.
Næsta hálftímann nuddaði hann hér um bil hvern einasta flöt líkama míns að undanskildum kynfærunum og endaþarmsopinu en hugsanir mínar snerust um það þennan hálftíma hvernig ég skyldi drepa manninn ef hann skildi voga sér þangað með olíubornum fingrunum.
Eftir nuddið fór ég í heita pottinn og fannst Mecca Spa ekki lengur vera kósi og notalegur staður heldur subbulegt stóðlífis perrabæli. Slísí hola.
Hulda kom álíka hissa (en ekki eins mikið enda vanur nuddþegi), úr nuddinu því að kínverski rindillinn lét það ekki duga að nudda hana heldur hoppaði hann ofan á bakinu á henni og togaði í hár hennar þannig að þegar hún kom út úr nuddinu leit hún út eins og Tina Turner á góðum degi.
Það sem gerði þennan dag góðan var gott kaffi, kökur og fínerí sem við fengum okkur í góðu yfirlæti og svo enduðum við daginn á Fosshóteli á Nesjavöllum þar sem við fengum okkur góðan mat og rauðvín og enduðum svo kvöldið í heitum potti og fögnuðum dátt þegar í ljós kom að Eiríkur Hauksson vann undankeppni Eurovision. Um nóttina sváfum við eins og ungabörn.
Ef það er eitthvað sem ég lærði af þessu er það að ég ætla aldrei aftur í svona nudd! Tré og grjót verða látin duga héðan af og kannski leyfi ég Huldu að nudda mig þegar ég verð búin að jafna mig eftir hryllinginn í Mekka Spa.

kv. Jón Hafliði

föstudagur, febrúar 16, 2007

Veit ekki af hverju ég er að blogga núna........veit reyndar ekkert af hverju ég blogga yfirleitt!

Ok, ein....nei tvær samviskuspurningar fyrir alla aðdáendur mína þarna úti.

Hvort finnst ykkur lagið One flottara með U2 eða Johnny Cash?
Hvort finnst ykkur lagið Rusty Cage flottara með Soundgarden eða Johnny Cash?

Fékk tannstein í augað á þriðjudaginn, sá fyrir mér að augað leystist upp á fáeinum dögum. Í einum dropa með tannstein, blóði og bakteríum eru um 1200000000 bakteríur......sennilega fleiri, þetta var stór köggull og stór dropi. Þetta ætti að kenna mér að gleyma ekki helvítis hlífðargleraugunum næst þegar ég fer að skrapa tannstein.

Kv. J.H. Sigurjónsson

föstudagur, febrúar 09, 2007

Ég sá myndbandið með Guðmundi í Byrginu og ég get sko sagt ykkur það að ég er ekki betri maður fyrir vikið!

Af hverju sækist maður í að sjá svona ósóma? Þetta er eitthvað í okkur, kannski getur Orri útskýrt það nánar..........en kannski er þetta bara perraskapur í manni.
Ég vil eiginlega ekkert spá meira í þetta. Var reyndar að spá í hvort að stúlkan sé menntaður rafvirki, þetta var óttalegt snúru og rafskautaflóð þarna.......asskotans hrotti maður.

Er ekki búin að fara í eina einustu fjallgöngu á árinu! Þetta er afleit frammistaða. Nú eru tvö fjöll sem ég stefni á að ganga á á árinu, þ.e. þau eru á toppnum, ætla að sjálfsögðu að ganga á fleiri.
Hekla er númer eitt. Maður verður bara að fara þarna upp að hliði helvítis.
Skarðsheiði, gargar á mig í hvert einasta skipti sem það er gott skyggni hérna í súldinni fyrir sunnan!

Jæja best að fá sér kaffi, klukkan er 0750 og það er siðlaust að fá sér ekki kaffi ef maður er á fótum á þessum tíma sólahringsins.

Jón Hafliði

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Changes

Ég tók mig til og breytti um útlit á síðunni, síðan er ekki lengur sérstök, ég veit það, en græni liturinn heldur sér og ég er búin að læra að setja inn myndir sem ég hyggst nýta mér eitthvað í framtíðar bloggum. Hér til hægri er mynd af mér og kettinum okkar Huldu, Megasi. En þessi köttur er norskur skógarköttur og honum finnst gott að narta í tær sofandi fólks og kann að opna bjórdósir, hann hefur ekki ennþá sýnt neinum gosdrykkjadósum áhuga, bara bjórdósum. Jemm jemm jemm, gott hjá honum. En hér er semsagt meðfylgjandi mynd af kettinum.


Svona, þá kann ég það.

Jón Hafliði.


fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Fífl!!!

Maður í USA skaut önd sér og fjölskyldu sinni til matar. Hann skaut hana tvisvar til að vera viss um að hún væri dauð. Hann setur hana í ísskápinn og liggur öndin þar í tvo daga. Svo þegar kona mannsins ætlar að taka öndina úr ísskápnum til þess að afhausa hana og gera hana tilbúna til átu þá er öndin lifandi!! Kraftaverk!!!
Eðlilegt fólk hefði snúið öndina úr hálsliðnum og svo haldið áfram að undirbúa gómsæta matarveislu. En nei....þetta fólk er fífl.
Þau fara með öndina á dýraspítala og reyna að koma lífi í fiðurféð......og það tekst....þeim og öðrum bandarískum fíflum til mikillar gleði. Helvítis öndin fékk meira að segja nafn!!!! Perky!!!Öndin Perky er nú uppáhaldsönd bandarísku þjóðarinnar og skyggir nú mikið á gamla góða Andrés að mínu mati!!!! Sem er nú bara hreint ekki gott. Hvað fær fólk til þess að vera svona miklir hálfvitar. Manngæska????? Nei!!! Þetta er eitthvað hvítt hyski sem þráir fjölmiðlaathygli eins og venjulegt amerískt barn þráir hamborgara í hvert mál!!! Og gefa öndinni nafn!!!

Fífl!!!

Jón.......aldeilis ekki sáttur við hjartalag hvíts hyskis.

mánudagur, janúar 29, 2007

Af brókakaupum

Skellti mér í Hagkaup um helgina og ákvað að sniðugt væri að kaupa sér þrjár brækur í pakka á útsölu, eðal bómullar boxer brækur, mjúkar og góðar, blá, grá og hvít. Fullkomið.
Skellti mér í nýju brækurnar í morgun, þessar hvítu. Svo þegar ég var að tefla við páfann í hádeginu og leit niður á brækurnar blasti við mér þessi text:
100% COTTON
Keep away from fire!
Vonbrigðin við það að sjá þessa viðvörun voru gífurleg, ég sem ætlaði að fara að sveifla mér á logandi krossi útataður í olíu á sunnudaginn............í þessari brók.
Jón Hafliði

laugardagur, janúar 20, 2007

Brain Damage

Eins og áður sagði er ég byrjaður að fara í líkamsrækt og gengur það prýðilega. Það er að bjarga mér að ég er með iPod við þessa iðju því að tónlistin sem alla jafna er spiluð á þessum líkamsræktarstöðvum er svo leiðinleg að maður þráast við að mæta. En núna er ég komin með tæp 10GB af músík sem ég get valið úr og hlustað á. Það getur þó komið í bakið á manni.
Eins og oft áður þá kom ég mér fyrir á hlaupabretti í Laugum , með WorldClass handklæði utan um hálsin. Ég ákvað að í dag skildi ég hlusta á The Dark Side of the Moon með Pink Floyd. Ég byrjaði að skokka, fyrstu tónar plötunnar fóru af stað og ég fór að hlaupa hraðar og hraðar og hraðar. Djöfull skildi ég taka á því í dag.
Næsta sem ég vissi þá voru síðustu tónar Eclipse að deyja út og vöðvastælt kona var að berja í hægri öxlina á mér, ég sá yfir öxlina á henni stóra kraftajötna með tómt en þó órótt augnaráð. Þá hékk ég eins og letidýr i lóðstöng hnébeygjustöðvarinnar og var að "mönsja" á síðustu fersentímetrum Nike íþróttabolsins míns sem ég var nýbúin að kaupa á útsölu í Útilíf í Glæsibæ. Ég var í einum skó og var mumlandi einhverja þvælu. Vöðvastælta konan hætti að berja mig í hægri öxlina þegar hún sá að ég opnaði augun og leifarnar af bolnum mínum duttu á gólfið.
"viltu vinsamlegast fara" sagði vöðvastælta konan.
"" sagði ég.
Ég prílaði niður úr hnébeygjustöðinni og labbaði rólega út....svefndrukkinn og kveikti á Villa Vill í iPodinum.
Héðan af ætla ég bara að hlusta á Red Hot Chili Peppers þegar ég fer i ræktina til þess að koma í veg fyrir að svona lagað eigi sér stað.

Jon

föstudagur, janúar 19, 2007

Jææææja!

Þá er bara allt komið á fullt í skólanum og svona.........eins og ykkur sé ekki skítsama.
Ég uppgötvaði það snilldarráð um daginn að fara út og starta bílnum þegar ég vaknaði svo að hann verði orðin heitur þegar ég er búin að fá mér að borða og svona. Mesta snilldarráð sem komið hefur fram síðan Gustavsberg klósettinn voru hönnuð.
Annars er maður bara byrjaður í þessu nýársátaki sem hálf þjóðin er í. Það er spurning hvað maður endist lengi í þetta skiptið. Alltaf skal maður sigra heiminn og verða eins flottur og Brad Pitt, en svo þegar maður lítur ennþá út eins og Jack Nicholson eftir tvær vikur þá verður oft úr manni allur vindur. En ekki núna!!!!! Kannski.
Það telst gott ef æfingatímabilið nær að spanna tvo mánuði, því tel ég best að byrja 28.janúar, og hætta svo 3.feb. Þá getur maður allavega sagt hálfan sannleika með því að hafa æft eins og skepna í jan og feb, en svo byrjaði undirbúningur fyrir próf í skólanum og verkefnaskil og svona. Og fólk kinkar kolli á móti, og segir: "nákvæmlega sama í gangi hér maður", "en maður náði þó að hrista af sér jólaslenið".
Kjaftæði. Kjaftæði segir ég.

Jón.

laugardagur, desember 30, 2006

Fokkings helvíti!

Var búin að skrifa þvílíku ritgerðina í tilefni jólanna, áramótanna, átsins og ég veit ekki hvað og hvað. Neinei svo bara neitar helvítis tölvan eða eitthvað að birta það og það er týnd.

Gleðilegt ár. Harma það liðna.

Jón

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Er Guð kaldhæðinn?

Flugvél Icelandair sem var að koma frá Frankfurt varð fyrir eldingu. Um borð í vélinni voru 13 manns sem voru að koma af flughræðslunámskeiði.

Ég held að það þurfi ekki að segja meira.

Jón

fimmtudagur, október 19, 2006

Kill Will.....y!

Jæja þá er búið að leyfa hvalveiðar að nýju sem ég held að sé nú bara fínu lagi, alveg óþolandi að hlusta á þessa ræfla sem eru að væla yfir því að við veiðum einn og einn hval og svo eru aðrar þjóðir að moka honum á land. Þetta er góð ástæða fyrir því að ég get ekki sagt að Paul McCartney sé snillingur þó hann sé skemmtilegur bassaleikari og allt það, hann er bara hvalavinur og ég fíla það bara ekki neitt!!! Helvítis væl alltaf (mæli samt með því að þið hlustið á bassann í Something, alger snilld).
Nú fær maður loksins að smakka súrsað hvalspik sem hefur víst verið sárt saknað á þorratrogunum, ekki það að ég hafi eitthvað sérstaklega verið að bíða eftir því, en......bara.
Held að ég geri mér ferð í Hvalfjörðinn og fylgist kannski með því þegar eitt stykki hvalur er verkaður, ég er viss um að það er stórkostleg sjón, eru menn ekki með eins konar atgeira við þetta, risastórar sveðjur á prikum eða eitthvað álíka? Margir margir lítrar af blóði og gori, þvílíkar vambir og ég veit ekki hvað og hvað.
Það var nú samt grátbroslegt að Hvalur 9 hafi sigld úr landi við mikinn fögnuð, lagt á miðin með það markmið að drepa einn hval sigri hrósandi......svo bilaði hann og það þurfti að draga hann á land. Það hefur verið skömmustuleg stund. jemmjemm.

Það er frost í lofti þessa dagana sem kallar á skaf og kalda morgna í bílnum. En það þýðir líka það að skemmtilegar fjallgöngur eru framundan, en mér þykir mun skemmtilegara að ganga á veturna í frostinu og snjónum en á sumrin......það er bara einhvern vegin meira töff og vel falsaðar myndir geta gert mann að fjallgönguhetju!! Þá er bara að munda pelann, taka til harðfiskinn og þristinn og ganga af stað!

bleble

föstudagur, október 13, 2006

En ein helvítis vikan að líða undir lok.........

Þetta var góð vika, það var mikið að gera, mikið borað, kallinn dró sínar fyrstu tennur og allt gekk upp......næsta vika verður eflaust alger hörmung með tilheyrandi taugatitringi og andvökunóttum, kannski strunsar einhver sjúklingurinn út í fússi með kjaftinn fullan af drasli...maður veit aldrei, en ég held það sé betra að vera bara bjartsýnn......nei annars.

Það er oktoberfest í háskólanum í kvöld, ég hef sett mér það markmið að fara einhvern tíman til Munchen á oktoberfest, sötra ógrynni af bjór, éta þýskar mörpylsur í öll mál og jóðla þar til ég verð viðurkenndur sem einn af þeim. Það jafnast ekkert á við hágæða týróla músík til þess að hressa sig við á síðkvöldum, að ég tali ekki um til þess að bjarga heiminum frá innrás Marsbúana eins og var svo stórkostlega gert í myndinni Mars Attacks sem er einhver stórkostlegasta mynd sem gerð hefur verið, ekki hefði Tom Cruise eða Richard Burton fattað upp á því!!!
En hvað er þetta með Tom Cruise, er hann búin að vera? Það sem hann hefur verið að halda fram maður, ætlaði hann ekki að éta fylgjuna þegar krakkin hans fæddist? Hvað gerir hann eiginlega þegar konan hans deyr....stoppar hana upp? Brennir líkið og tekur öskuna í nefið? Hann er klikkaður......en það breytir því ekki að Cockteil er ein allra besta mynd sem gerð hefur verið......á eftir Mars Attacks.

Jón Hafliði

laugardagur, október 07, 2006

Er til skrýtnari maður en David Caruso?

Ég horfi nú ekki mikið á sjónvarp að jafnaði en ég verð að viðurkenna það að ef ég ramba á CSI Miami þættina með David Caruso í aðalhlutverki þá eiginlega verð ég bara að horfa á þá. Ekki af því að þeir eru svo góðir, heldur af því að maðurinn er svo stórkostlega skrýtinn og, já, lélegur. En samt er það eitthvað sem gerir það að verkum að maður getur ekki hætt að horfa, ætli það séu ekki vonlausu setningarnar, eftirvæntingin eftir því hvað skildi hann segja næst? Jemmjemm, var bara að velta þessu fyrir mér. Horatio....flottur.

Var á tannlæknaþingi í gær, það sem maður fær einna mest út úr þessu sem nemandi er allt tannkremið og munnskolið sem maður fær gefins, að ég tali nú ekki um alla pennana, og nafnspjöldin sem ég skil aldrei af hverju ég tek við, ég kann sennilega bara ekki við það að segja nei, enda er það galli sem hefur fylgt mér lengi, ef sölumenn eru nægilega ágengir þá gætu þeir selt mér minn eigin saur.
Annars var megin fyrirlesarinn afar duglegur við það að segja að sumir hlutanna sem mér eru kenndir í skólanum séu "rubbish" eins og hann orðaði það. Tek því með fyrirvara. Það væri aftur á móti athyglisvert að prófa að rífa sig við kennarana þegar þeir segja mér hvað ég eigi að gera og vitna í þennan gaur, hugsa að það mundi enda með því að tungan yrði skorin úr mér og ég látin éta hana fyrir að láta eins og fífl. Best að þegja bara.

Stefni að því að labba upp á Skarðsheiði á morgun, ef veður leyfir, ekki að það skipti máli, Tindabikkjurnar ganga í hvaða veðri sem er.

Bless.....Jón Hafliði.

miðvikudagur, október 04, 2006

Bloggað í flýti!

Jæja best að fara að tjá sig eitthvað.

Það er búið að vera brjálað að gera í tannlækningunum hérna í Tanngarði og svo sem lítið annað gengið á hjá mér undanfarnar vikur.
Er að vísu búin að afreka það að fara í tvær fjallgöngur á vetrinum, eina á Vörðuskeggja á Henglinum og dró ég nokkra krakka úr skólanum með mér og var þetta hin fínasta ganga, mæli með henni fyrir alla, fjölbreytt leið og flott útsýni.
Svo fórum við Birgir og gengum á Hlöðufell á góðviðris degi, við komumst að þeirri niðurstöðu að Hlöðufell sé bara svona u.þ.b. 80% Herðubreið, brattar skriður upp á fjallið, svo tóku við stór grjót og 20 mínútna ganga að tindinum sjálfum. Bendi á Tindabikkju síðuna þar sem eru myndir frá Herðubreiðar göngunni í ágúst.

Skrapp svo austur um daginn yfir eina helgi og naut þar lífsins með Huldu, góður matur og gott vín, brunch og ég veit ekki hvað og hvað, best væri að sjálfsögðu að vera bara í fjarnámi við þessa tannlæknadeild, en það virkar víst ekki.

kv. Jón Hafliði

p.s. Getur fólk vælt endalaust út af Kárahnjúkum? Er þetta að koma í staðinn fyrir "Ísland úr NATO" ??? Þetta eru ekkert nema helvítís indjánahommar með dreadlocks og ættu bara að drullast aftur í hasskofana sína!! (ekki meint til þess að taka það bókstaflega, en þið skiljið mig sem þekkið)

föstudagur, september 15, 2006

Marsbúarnir eru lentir!!!!!!

....Kallaði Jón Hafliði í mikilli geðshræringu í rútunni á leið til Reyðarfjarðar á dögunum og ringulreið braust út í samfélaginu.

Við nánari eftirgrennslan var þetta bara nýja knattspyrnuhöllin á Reyðarfirði.

J.H.S.

miðvikudagur, september 06, 2006

Heeeeeeeere´s Johnny!!!!!!!

Þvílík setning! Þvílík mynd! Ömurleg endurgerð eftir höfði Stephen King!

Jæja þá er maður bara mættur í sorann í Rvk aftur. En ég kom vel undan sumri og þyki vera með alveg einstaklega fallega sólbrúnku eftir alla útivinnuna í sumar, ekki einhver brúnkukrems eða ljósabekkja brúnka, heldur ekta sólarbrúnka.....og já djöfull er ég fallega brúnn. Verkamannabrúnka sem takmarkast við framhandleggi, höfuð og háls. Þegar ég fer úr að ofan þá lít ég út fyrir að hafa rekið alla þessa líkamshluta upp í afturenda Fagra Blakks. FM-hnakki mundi skammast sín (ef hann hefði greind til þess).
Sumarið byrjaði á því að ég og Hulda fórum í alveg stórkostlegt frí til London, París og Rómar og voru það einhverjir bestu og skemmtilegustu 10 dagar sem ég hef upplifað. London Eye, Eiffel turninn, Louvre safnið, Notre Dam, Mont Martru (eða hvernig sem það er skrifað), Katakompur Parísar, Sigurboginn, gatan þarna í París, Trevi brunnurinn, Forum Romanum, Colosseum, Pizza Forum, Vatíkanið, Capitoline Hill, Sigurtákn Ítölsku Byltingarinnar (held ég), Pompei og ég veit ekki hvað og hvað. Ég ætla að láta það nægja að segja fólki frá þessu því ferðasagan mundi vera of löng og skemmtileg til þess að skrifa hana.
Svo fluttum við í nýja íbúð sem við keyptum á Egilsstöðum sem er alveg stórkostleg með útsýni yfir stóran hluta héraðsins. Restin af sumrinu fór mestmegnis í vinnu. Ég held svei mér þá að ég láti þetta bara duga af sumrinu, nenni ekki að útlista það, enda er ykkur sjálfsagt alveg sama. Bendi á nýja færslu á Tindabikkju síðunni frá Herðubreiðargöngunni miklu auk stórkostlegra mynda.

Kv. Jón Hafliði

p.s. Við Hulda fengum okkur kött í sumar og heitir hann Megas, stórkostlegur köttur, enginn vina minna hefur klórað mig af eins mikilli ástríðu og hann.

þriðjudagur, maí 16, 2006

Hver er maðurinn?

Um hálsinn ber hann festi með augum, magi hans er útþaninn, líkaminn beinaber og aftan úr rassi hans stendur óendanlegur strókur af sauri og lofti.

Annars erum við Húlla að fara til London-París-Róm og komum til baka þann 28.maí. Mikið gaman og mikið fjör.

kv. Jón Hafliði

P.S. Ég er sybbinn núna.

fimmtudagur, maí 11, 2006

Bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!

Jæja gott fólk, helvíti er maður nú búin að vera latur við þetta blogg. Þetta er búin að vera svipaður fasi og með uppvaskið. Maður skoðar bloggið og sér hvað það er langt síðan maður bloggaði og hugsar með sér: "ég verð nú að fara að blogga, en ég nenni því ekki núna, ég geri það á morgun því þá er betri dagur!". Og svona gengur þetta í nokkra mánuði þar til manni fer að verða sama. En eins og segir í fyrirsögninni, bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!

Annars er maður á kafi í prófum og hugurinn orðinn eins og Legoland á sýrutrippi. En til þess að róa hugann á milli prófa þá höfum ég og Birgir bekkjarfélagi minn komið á þeirri hefð að fara að loknu hverju einasta prófi að kast fyrir fisk í einhverju af þessum vötnum hérna í nánd við höfuðborgarsvæðið. Ég verð bara að segja það að það jafnast fátt á við það að standa úti í vatni í 15 stiga hita, dúnalogni, og leifarnar frá Suður Pólskri kolamengun gera sólsetrið blóðrautt sem speglast á spegilsléttum vatnsfletinum þar sem bleikjan og urriðinn vakar allt í kringum mann.
Það er alger þögn að undanskildu gargi í stöku fugli og hljóðið í línunni þegar hún leggst yfir vatnsflötinn (eða vefst um höfuðið á mér í mörgum tilfellum með tilheyrandi blóti og busli úti í vatni öðrum pirruðum höfuðborgarbúum til mikillar gleði eða pirrings).
Fór núna á þriðjudaginn í Elliðavatn. Ég hef farið þangað þrisvar sinnum en aldrei fengið neitt. En þriðjudagurinn var góður dagur, ég fékk loksins fisk í þessu blessaða vatni. 2,5 punda bleikja sem var alveg gríðarlega falleg. Ég er ekki eins og margir veiðimenn sem vilja vera voðalega göfugir og sleppa fiskinum eftir að búið er að landa honum. Ég flaka minn fisk meðan hann er ennþá spriklandi og ét hann helst hráann og syng frumsamdar vísur um hann á meðan og slurpa honum í mig. Ó já þau eru sko falleg kvöldin við vötnin.

kv. Jón Hafliði

mánudagur, mars 20, 2006

Ja hérna hér!

Ég fór í Bláa Lónið um daginn og þar var allt morandi í Bandaríkjamönnum og Svíum! Mér leið ekki vel. Hulda og móðir hennar komu líka en þær voru á einhverju öðru svæði í nuddi á meðan ég lá einhvers staðar einn, með hvíta drullu sem innihélt hár og húðleifar á andlitinu, umkringdur Bandaríkjamönnum og Svíum. Mér leið illa. Mér átti ekki að líða illa, ég meina ég var í Bláa Lóninu, mér átti að líða guðdómlega, en mér leið illa. Af hverju leið mér illa? Ég bara veit það ekki. Kanarnir og ABBAlendingarnir voru þarna bara, létu bara eins og ég væri einn af þeim, töluðu sín á milli á sænsku og væminni bandarísku og mökuðu hvítu drullunni á sig og dásömuðu landið. Ég. Ég lá þarna bara, með kísil í eyrunum, horfði upp í loftið, og hlustaði, og það fór af einhverjum ástæðum um mig þegar þeir töluðu. Mér leið svo sem ekkert skelfilega, ekki eins og ég væri að verða veikur eða eitthvað svoleiðis, ég fylltist engu vonleysi, var ekkert eirðarlaus, ég var ekkert við það að rífa af mér hárið og dýfa mér út í bannsvæðið, það fór bara einhvern vegin um mig. Svo fór ég í gufu, þar voru tveir íslendingar að spjalla saman, það fór ekkert um mig þá. Svo komu einhverjir frá Austur-Evrópu og spjölluðu saman, það fór ekkert um mig þá heldur. Hvað er málið? Getur verið að Bandaríkjamenn og Svíar séu einfaldlega bara...leiðinlegir? Ég veit það ekki, kannski var ég bara þunnur.

Kv. jón, alveg gáttaður á ástandinu.

miðvikudagur, mars 08, 2006

Hvaða helvítis hérna???????

Hvaða vitleysingur er að henda upp öllum þessum köntum út um allt? Hvert sem maður fer þar eru einhverjir helvítis kantar að þvælast fyrir manni, ég er alltaf stopp á leiðinni í skólann út af því að einhver bavíani henti upp kanti út á miðri götu. Þetta er óþolandi alveg hreint. Svo var þetta líka gert heima í Norðfirðinum, kantar út um allt. Ég vona að Raggi á gröfunni reddi þessu og rífi upp þessa kanta hið fyrsta. Annars geri ég það sjálfur.......með dínamíti.

Annars er bara fínt að frétta. Var að versla mér Blue train með John Coltrane, þrusu jazz plata þar á ferðinni. Er semsagt dottinn í einhvern jazz gír. Fékk mér líka disk sem kenndur er við Playboy Jazz festival, After Dark heitir hann. En eins og Hugh Hefner orðar það sjálfur: Turn down the lights, open a bottle of wine, let the music do the rest.
Hehehe, svona verður maður á því að vera í náttfötum allan daginn.

Johnny Jazz.