Ég sá myndbandið með Guðmundi í Byrginu og ég get sko sagt ykkur það að ég er ekki betri maður fyrir vikið!
Af hverju sækist maður í að sjá svona ósóma? Þetta er eitthvað í okkur, kannski getur Orri útskýrt það nánar..........en kannski er þetta bara perraskapur í manni.
Ég vil eiginlega ekkert spá meira í þetta. Var reyndar að spá í hvort að stúlkan sé menntaður rafvirki, þetta var óttalegt snúru og rafskautaflóð þarna.......asskotans hrotti maður.
Er ekki búin að fara í eina einustu fjallgöngu á árinu! Þetta er afleit frammistaða. Nú eru tvö fjöll sem ég stefni á að ganga á á árinu, þ.e. þau eru á toppnum, ætla að sjálfsögðu að ganga á fleiri.
Hekla er númer eitt. Maður verður bara að fara þarna upp að hliði helvítis.
Skarðsheiði, gargar á mig í hvert einasta skipti sem það er gott skyggni hérna í súldinni fyrir sunnan!
Jæja best að fá sér kaffi, klukkan er 0750 og það er siðlaust að fá sér ekki kaffi ef maður er á fótum á þessum tíma sólahringsins.
Jón Hafliði
6 ummæli:
Ertu ekki bara perri? :)
Auðvitað ertu bara svona Hobbí PERRI. Jón í Byrginu HAHHAH
Þetta er bara perraskapur í þér. Þú ert sá eini sem horfðir á þetta nefnilega.
Já....mér datt það í hug, var bara í afneitun.
Já, skal játa það að ég náði mér í myndina. Mér fannst hún full langdregin og já, bara full hversdagsleg. Eins og þau væru að gera þetta í milljónasta skiptið.
Svo fannst mér agalega eitthvað lummó þegar hún var endalaust að hysja upp um sig brækurnar. Af hverju var hún ekki með axlabönd?
Jón Knútur.
Það er nú bara yfirhöfuð siðlaust að vera vakandi á þessum tíma!
Þetta hefur kannski eitthvað með perraskapinn að gera
Skrifa ummæli