föstudagur, febrúar 16, 2007

Veit ekki af hverju ég er að blogga núna........veit reyndar ekkert af hverju ég blogga yfirleitt!

Ok, ein....nei tvær samviskuspurningar fyrir alla aðdáendur mína þarna úti.

Hvort finnst ykkur lagið One flottara með U2 eða Johnny Cash?
Hvort finnst ykkur lagið Rusty Cage flottara með Soundgarden eða Johnny Cash?

Fékk tannstein í augað á þriðjudaginn, sá fyrir mér að augað leystist upp á fáeinum dögum. Í einum dropa með tannstein, blóði og bakteríum eru um 1200000000 bakteríur......sennilega fleiri, þetta var stór köggull og stór dropi. Þetta ætti að kenna mér að gleyma ekki helvítis hlífðargleraugunum næst þegar ég fer að skrapa tannstein.

Kv. J.H. Sigurjónsson

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

djöfull væri samt töff að vera eineygði tannlæknirinn!!

Nafnlaus sagði...

Mér fanst One alltaf flottast með Yukon, Ekki spurning

Nafnlaus sagði...

OJJJJJJJ!!!!!!

Hlífðargleraugu eru möst. punktur. ;)

Varstu ekki annars veikur í gær? hmmm....einhver tengsl þar á milli?!

Nafnlaus sagði...

Jonny Cash er alltaf flottastur! Og þú þarna í sófanum mjög flottur, blanda af pabba þínum og Axel;)

Nafnlaus sagði...

One er betra með U2 en Rusty cage er betra með Cash.

Jón Knútur.

Nafnlaus sagði...

One er býsna gott hjá Johnny, en finnst samt U2 útgáfan betri og Rusty cage er miklu betra með Soundgarden, það er eiginlega bara frekar slappt hjá Johnny Cash.

Nafnlaus sagði...

Jemm Jemm, ég verð að segja að mér finnst One flottara með Cash, svo er Rusty Cage með Soundgarden og Rusty Cage með Cash varla sama lagið, nema þegar þeir syngja "break my rusty cage....." Svo eru þetta bara einhver allt önnur lög með sama texta þar á milli.

Jón Hafliði

Nafnlaus sagði...

Lögin eru öll góð á sinn hátt og það er bara svoleiðis, ekki reyna að andmæla!!!

Annars er Hurt með Johnny karlinum mun betra en orginallinn með Honum Trent Reznor í NIN. Það er líka staðreynd.

Synd að Johnny Cash sé fallinn frá. RIP

Nú ætla ég að gráta