Er til skrýtnari maður en David Caruso?
Ég horfi nú ekki mikið á sjónvarp að jafnaði en ég verð að viðurkenna það að ef ég ramba á CSI Miami þættina með David Caruso í aðalhlutverki þá eiginlega verð ég bara að horfa á þá. Ekki af því að þeir eru svo góðir, heldur af því að maðurinn er svo stórkostlega skrýtinn og, já, lélegur. En samt er það eitthvað sem gerir það að verkum að maður getur ekki hætt að horfa, ætli það séu ekki vonlausu setningarnar, eftirvæntingin eftir því hvað skildi hann segja næst? Jemmjemm, var bara að velta þessu fyrir mér. Horatio....flottur.
Var á tannlæknaþingi í gær, það sem maður fær einna mest út úr þessu sem nemandi er allt tannkremið og munnskolið sem maður fær gefins, að ég tali nú ekki um alla pennana, og nafnspjöldin sem ég skil aldrei af hverju ég tek við, ég kann sennilega bara ekki við það að segja nei, enda er það galli sem hefur fylgt mér lengi, ef sölumenn eru nægilega ágengir þá gætu þeir selt mér minn eigin saur.
Annars var megin fyrirlesarinn afar duglegur við það að segja að sumir hlutanna sem mér eru kenndir í skólanum séu "rubbish" eins og hann orðaði það. Tek því með fyrirvara. Það væri aftur á móti athyglisvert að prófa að rífa sig við kennarana þegar þeir segja mér hvað ég eigi að gera og vitna í þennan gaur, hugsa að það mundi enda með því að tungan yrði skorin úr mér og ég látin éta hana fyrir að láta eins og fífl. Best að þegja bara.
Stefni að því að labba upp á Skarðsheiði á morgun, ef veður leyfir, ekki að það skipti máli, Tindabikkjurnar ganga í hvaða veðri sem er.
Bless.....Jón Hafliði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli