Hver er maðurinn?
Um hálsinn ber hann festi með augum, magi hans er útþaninn, líkaminn beinaber og aftan úr rassi hans stendur óendanlegur strókur af sauri og lofti.
Annars erum við Húlla að fara til London-París-Róm og komum til baka þann 28.maí. Mikið gaman og mikið fjör.
kv. Jón Hafliði
P.S. Ég er sybbinn núna.
þriðjudagur, maí 16, 2006
fimmtudagur, maí 11, 2006
Bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!
Jæja gott fólk, helvíti er maður nú búin að vera latur við þetta blogg. Þetta er búin að vera svipaður fasi og með uppvaskið. Maður skoðar bloggið og sér hvað það er langt síðan maður bloggaði og hugsar með sér: "ég verð nú að fara að blogga, en ég nenni því ekki núna, ég geri það á morgun því þá er betri dagur!". Og svona gengur þetta í nokkra mánuði þar til manni fer að verða sama. En eins og segir í fyrirsögninni, bloggið bloggar sig víst ekki sjálft!
Annars er maður á kafi í prófum og hugurinn orðinn eins og Legoland á sýrutrippi. En til þess að róa hugann á milli prófa þá höfum ég og Birgir bekkjarfélagi minn komið á þeirri hefð að fara að loknu hverju einasta prófi að kast fyrir fisk í einhverju af þessum vötnum hérna í nánd við höfuðborgarsvæðið. Ég verð bara að segja það að það jafnast fátt á við það að standa úti í vatni í 15 stiga hita, dúnalogni, og leifarnar frá Suður Pólskri kolamengun gera sólsetrið blóðrautt sem speglast á spegilsléttum vatnsfletinum þar sem bleikjan og urriðinn vakar allt í kringum mann.
Það er alger þögn að undanskildu gargi í stöku fugli og hljóðið í línunni þegar hún leggst yfir vatnsflötinn (eða vefst um höfuðið á mér í mörgum tilfellum með tilheyrandi blóti og busli úti í vatni öðrum pirruðum höfuðborgarbúum til mikillar gleði eða pirrings).
Fór núna á þriðjudaginn í Elliðavatn. Ég hef farið þangað þrisvar sinnum en aldrei fengið neitt. En þriðjudagurinn var góður dagur, ég fékk loksins fisk í þessu blessaða vatni. 2,5 punda bleikja sem var alveg gríðarlega falleg. Ég er ekki eins og margir veiðimenn sem vilja vera voðalega göfugir og sleppa fiskinum eftir að búið er að landa honum. Ég flaka minn fisk meðan hann er ennþá spriklandi og ét hann helst hráann og syng frumsamdar vísur um hann á meðan og slurpa honum í mig. Ó já þau eru sko falleg kvöldin við vötnin.

mánudagur, mars 20, 2006
Ja hérna hér!
Ég fór í Bláa Lónið um daginn og þar var allt morandi í Bandaríkjamönnum og Svíum! Mér leið ekki vel. Hulda og móðir hennar komu líka en þær voru á einhverju öðru svæði í nuddi á meðan ég lá einhvers staðar einn, með hvíta drullu sem innihélt hár og húðleifar á andlitinu, umkringdur Bandaríkjamönnum og Svíum. Mér leið illa. Mér átti ekki að líða illa, ég meina ég var í Bláa Lóninu, mér átti að líða guðdómlega, en mér leið illa. Af hverju leið mér illa? Ég bara veit það ekki. Kanarnir og ABBAlendingarnir voru þarna bara, létu bara eins og ég væri einn af þeim, töluðu sín á milli á sænsku og væminni bandarísku og mökuðu hvítu drullunni á sig og dásömuðu landið. Ég. Ég lá þarna bara, með kísil í eyrunum, horfði upp í loftið, og hlustaði, og það fór af einhverjum ástæðum um mig þegar þeir töluðu. Mér leið svo sem ekkert skelfilega, ekki eins og ég væri að verða veikur eða eitthvað svoleiðis, ég fylltist engu vonleysi, var ekkert eirðarlaus, ég var ekkert við það að rífa af mér hárið og dýfa mér út í bannsvæðið, það fór bara einhvern vegin um mig. Svo fór ég í gufu, þar voru tveir íslendingar að spjalla saman, það fór ekkert um mig þá. Svo komu einhverjir frá Austur-Evrópu og spjölluðu saman, það fór ekkert um mig þá heldur. Hvað er málið? Getur verið að Bandaríkjamenn og Svíar séu einfaldlega bara...leiðinlegir? Ég veit það ekki, kannski var ég bara þunnur.
Kv. jón, alveg gáttaður á ástandinu.

miðvikudagur, mars 08, 2006
Hvaða helvítis hérna???????
Hvaða vitleysingur er að henda upp öllum þessum köntum út um allt? Hvert sem maður fer þar eru einhverjir helvítis kantar að þvælast fyrir manni, ég er alltaf stopp á leiðinni í skólann út af því að einhver bavíani henti upp kanti út á miðri götu. Þetta er óþolandi alveg hreint. Svo var þetta líka gert heima í Norðfirðinum, kantar út um allt. Ég vona að Raggi á gröfunni reddi þessu og rífi upp þessa kanta hið fyrsta. Annars geri ég það sjálfur.......með dínamíti.
Annars er bara fínt að frétta. Var að versla mér Blue train með John Coltrane, þrusu jazz plata þar á ferðinni. Er semsagt dottinn í einhvern jazz gír. Fékk mér líka disk sem kenndur er við Playboy Jazz festival, After Dark heitir hann. En eins og Hugh Hefner orðar það sjálfur: Turn down the lights, open a bottle of wine, let the music do the rest.
Hehehe, svona verður maður á því að vera í náttfötum allan daginn.
Johnny Jazz.

sunnudagur, mars 05, 2006
Hvað er þetta klukk??
ó jæja, ætli maður neyðist ekki til þess að taka þátt í þessu.
4 störf sem ég hef unnið um ævina:
Verkamaður í saltfiskverkun
Verkamaður í netagerð
Stuðningsfulltrúi á sambýli (var mér sagt)
Verkamaður í byggingarvinnu
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Lord of the Rings myndirnar
Starwars myndirnar
Life of Brian
Forrest Gump
4 staðir sem ég hef búið á:
Gauksmýri 2, Neskaupstað
Heimavist MA, Akureyri
Eyrarlandsvegur 12, Akureyri
Eggertsgata 20 stúdentagörðum, Reykjavík
4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
Simpsons fjölskyldan
Friends
Cheers voru bara snilld
24
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Krít
Vestfjarðarkjálkinn
Glasgow
Danmörk
4 heimasíður sem ég skoða daglega:
Það eru ekki nægilega margar heimasíður sem ég skoða daglega, en hér eru nokkrar sem ég skoða reglulega
Alls kyns blogg
mbl.is
Fender heimasíðan
hi.is
4 máltíðir sem ég held upp á:
Pítsurnar í nýja pítsuofninum
Purusteik
Lambalæri
Súpurnar hennar Huldu
4 bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
Hringadróttinssaga
Hitchiker´s guide to the galaxy
Ævisaga Jaco Pastorius
Andrés blaðasafnið heima jafnast á við margar bækur
4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
Ítalía
Danmörk með bjór í hönd
Á einhverjum fjallstindi
Neskaupstaður
Og hananú. Ég klukka Huldu og alla hennar vini.

laugardagur, febrúar 25, 2006
Varðandi DaVinci lykilinn:
Jæja ég geri nú bara ráð fyrir því að nánast allir séu´búnir að lesa þessa blessuðu bók sem var reyndar alveg þrælskemmtileg. En nú er að fara að koma út mynd sem gerð hefur verið eftir þessari bók og er Tom Hanks í aðalhlutverkinu sem táknfræðingurinn Robert Langdon. Þegar ég byrjaði að lesa bókina þá var nú eitthvað farið að heyrast á götunni að það ætti að gera mynd eftir bókinni og ég fór þá vitaskuld að reyna að sjá einhverja leikara fyrir mér í hinum ýmsu karakterum bókarinnar. Og af einhverjum ástæðum þá gat ég bara ekki séð neinn annan fyrir mér en Christopher Lambert í hlutverki Robert Langdons!!! Og þar af leiðandi held ég að það sé búið að eyðileggja þessa mynd fyrir mér, a.m.k. verður Tom Hanks að gera betur heldur en í Forrest Gump og Philadelphia til þess að vera trúverðugur í þessari mynd. Fyrir þá sem ekki vita hver Christopher Lambert er þá lék hann í the Highlander, Tarzan, The Fortress, Druids og alls kyns öðrum myndum. Jemm jemm svona er þetta nú.
jon

sunnudagur, janúar 29, 2006
Það er haf og sjór þarna á milli!!
Bubbi Morthens.......þú ert snillingur.
Ég er orðinn hálf leiður á öllum þessum söngvakeppnum...nema Rock Star INXS...en það er búið.
Líst samt vel á að senda Sylvíu Nótt, eitthvað aðeins frumlegara í gangi þar. En hvað um það, ég er samt orðinn leiður á öllum þessum söngvakeppnum...nema Rock Star INXS...en það er búið.
Ég er samt ekki leiður á fjallgöngum...þær eru skemmtilegar og töff. Nánar um það á Tindabikkjunum.
Á morgun rótfylli ég fyrstu tönnina mína í lifandi manneskju. Það á eftir að veita mér einhverja gleði en þó einnig eitthvað stress...en samt meiri gleði.
Langar dálítið í Carl Thompson bassa. En hann kostar samt full mikið, og svo þarf ég að bíða í 2 ár eftir honum, hann yrði nefnilega sérsmíðaður handa mér...af Carl Thompson.
Þá er nú ekki úr vegi að minnast á það að ég á afmæli 1. maí...á hverju ári.
Kv. Jón. Skýrt og skorinort.

fimmtudagur, janúar 26, 2006
Jææææææja
Það er komin ný bloggsíða í gagnið. Sú síða er bloggsíða Tindabikkjanna, sem er nafn yfir félagskap sem gengur á fjöll og hefur gaman af, þetta er einvalalið úrvalsfjallgöngumanna......held við höfum samt aldrei verið fleiri en þrír í hverri göngu, en það má alltaf draga fleiri með. Endilega að tékka á þessu.
Annars nenni ég ekki að blogga meir núna, blogga kannski seinna...en fylgist með Tindabikkjunum.
Kv. Jón Hafliði.....Tindabikkja

fimmtudagur, janúar 12, 2006
Döðlur.
Allt frá því að ég var lítið barn hef ég ekkert haft nein sérstakan áhuga á því að smakka döðlur. Það næsta sem ég komst döðluneyslu var að lesa um ásókn eins Bjarnabófanna í þær er ég las andrésblöðin. Minnir að það hafi verið 167-761. Er þó ekki viss og biðst ég afsökunar á því. En rétt fyrir jólin þegar ég og Hulda tókum okkur til og bjuggum til jólakonfektið þá sá ég um það að skera í döðlur og fylla þær með marsípani. Ég hafði miklar efasemdir um þetta sælgæti sem ég var að útbúa einmitt út af vantrú minni á döðlur. Svo þegar ég var búin að fylla 36 döðlur af marsípani og var um það bil að húða þær með hvítu súkkulaði þá ákvað ég nú að gefa þeim tækifæri og smakka eina. Það var ekki aftur snúið. Þvílíkt góðgæti. Ég lýg því ekki að Hulda þurfti að stöðva mig svo að ættingjar og vinir fengju að njóta góðgætisins líka. Þetta er eitt af því besta sælgæti sem ég hef smakkað. Og ég hafði ekki einu sinni húðað þetta með súkkulaði. Núna finnst mér döðlur mjög góðar og ég neita því nú ekki að þegar ég leit í heimsókn til Valdimars bróður míns um jólin þá sá ég eina af döðlunum sem ég hafði búið til inn á milli gómsætra súkkulaði bomba í skál á stofuborðinu...og ég átti bara mjög erfitt með mig, það var erfitt að stela ekki þessari döðlu. En ég lét mig hafa það. Ekki sniðugt að háma í sig sælgæti sem maður hefur gefið ættingjum sínum. En ég verð bara að segja eins og er. Sælgætið okkar var bara helvíti gott. Ég bara get ekki neitað því, hér get ég bara ekki verið með einhverja tilgangslausa hógværð, það væri bara heimskulegt, og viss hræsni.
Svo er nú gama að segja frá því að Hippocrates tók eftir því að fólk sem borðaði mikið af döðlum var með meiri tannskemmdir að jafnaði en aðrir. Þannig að...ekki borða mikið af döðlum...komið með þær til mín.
kv. Jón. Engin hræsni á þessum bæ...bæ.

mánudagur, janúar 02, 2006
2006
Gleðilegt nýtt ár gott fólk. Tvöþúsundogsex er komið. Þvílík ljósadýrð sem að var hérna í rvk á miðnætti þegar tvöþúsundogsex rann í garð. Ég var eins og lítill krakki þegar ég sá allar þessar sprengjur...ég hef reyndar verið eins og lítill krakki á hverjum áramótum síðan ég hætti að vera lítill krakki. Það er gaman að vera lítill krakki. Og það er gaman að sprengja. Ég hef alltaf haft alveg gríðalega gaman af því að sprengja gamla árið í burtu og ég hef verið mjög heppinn með það að sleppa við það að slasa mig, því að ég neita því nú ekki að maður hefur nú tekið ófáa flugeldana í sundur og reynt að gera þá öflugari með því að hella fjórfalt meira púðri í þá o.s.frv. Ég hef bara einu sinni meitt mig eitthvað við það að fikta með flugelda, það var reyndar ekki einu sinni flugeldur, ég meiddi mig á stjörnublysi þegar ég var lítill krakki...það gæti reyndar alveg eins hafa verið fyrir tveimur dögum miðað við litla haminn sem ég fer í á hverjum áramótum...en jææææææja...ég var sex ára og ákvað að slökkva á stjörnublysinu á sama hátt og ég slökkti á kertinu inni í stofunni fyrir fimm mínútum...dásamleg uppgötvun sem leiddi það af sér að ekkert kerti í Gauksmýri 2 fékk að loga lengur en í svona 10 mínútur óuppgötvað án þess að ég kæmi og slökkti á því...það var nefnilega sá stórkostlegi galdur að slökkva eld...með puttunum. Öskrin voru ólýsanleg.
Gleðilegt ár...Jón Hafliði
p.s. það slokknaði ekki á stjörnublysinu

fimmtudagur, desember 22, 2005
Talandi um Stokkhólmsheilkennið...eruð þið búin að sjá King Kong?
Fórum á hana í gær. Þrusumynd, hef nú því miður ekki séð upprunalegu myndina en þessi var a.m.k. mjög góð. Mæli eindregið með henni. Eitt ógeðslegasta atriðið í myndinni er helvítis skordýraatriðið, liðið lendi ofan í einhverri stórri sprungu og þar er allt morandi í einhverjum risastórum pöddum og möðkum og ég veit ekki hvað og hvað. En það sem gerir þetta atriði en ógeðslegara er tónlistin...eða öllu heldur skorturinn á henni, það heyrist eiginlega ekkert nema bara einhver slepju og klikk hljóð og angistaróp í mönnunum sem þar eru. Peter Jackson kann sko sitt fag. Skellið ykkur á þessa mynd sem allra fyrst.
Gleðileg jól gott fólk og hafið það sem allra best.
jólakveðjur...Jón Hafliði.

fimmtudagur, desember 08, 2005
Munið þið eftir Bjarna Tryggvasyni geimfara?
Ég man eftir honum.
Jæja þá er maður nú endanlega að verða snarvitlaus á þessum próflestri. Allt fer í taugarnar á manni. Njaaaah, kannski ekki alveg allt. En ég veit hvað er að fara mikið í taugarnar á mér þessa dagana. Það er alveg gríðarlegur ófrumleiki íslenskra tónlistarúfgefanda sem og tónlistarmanna. Þó verður nú að viðurkennast að gróskan er líka alveg gríðarleg og skemmtileg, en þetta eykst í andstæða átt líka. Hvað í andskotanum skyldi ég nú vera að tala um núna? Jú, þá staðreynd að það eru alveg skelfilega margir diskar að koma út núna um jólin þar sem íslenskir tónlistarmenn eru að gera afspyrnu lélega karókí diska. Í fyrsta lagi er það einhver jóladiskur þar sem Jónsi, Heiða og eitthvað lið er að taka gömul og gild jólalög og setja þau í sinn búning (nennir enginn að semja lengur??(smá þversagnakennd hegðun hjá mér, þá vísa ég í síðasta blogg þar sem ég set út á það hversu léleg jólalög íslendingar eru að semja í dag)), svo er það einhver alger skelfing sem kallast Heitar Lummur þar sem útbrunnar og lélegar Idol stjörnur eru að taka gamla íslenska slagara, svo er einhver diskur með fíflinu í Sóldögg þar sem hann er að slefa úr sér einhverjum íslenskum dægurlögum á arfaslæman hátt. Ja hérna hér.........ég er að gleyma einhverju. Jú!!!!! Mikið rétt, Helgi Björns erkitöffarinn sjálfur ákvað að skemma uppáhalds lögin sín eftir hann Magga Eiríks, ég bendi fólki frekar á að kaupa sér frekar Braggablús, tvöfaldan safndisk með lögunum hans Magga eins og hann gerði þau. Þar er góður diskur á ferðinni.
Svo er ég viss um það að Páll Rósinkrans kemur öllum á óvart og gefur út þúsundasta karókí diskinn sinn rétt fyrir jól ("ég bara gat ekki sleppt því, þjóðarinnar vegna" segir Páll sjálfsagt.............fífl).
Þetta eru allt saman plötur sem eru ekki ómissandi í safnið. Endilega bendið mér á eitthvað sem ég er að gleyma, ég elska að pirra mig á þessu.
Jón, sífellt hamingjusamur.

laugardagur, desember 03, 2005
Þá eru blessuð jólin að koma!
Jemm Jemm Jemm. Ég get nú ekki neitað því að ég er algert jólanörd og ég virðist bara alltaf hlakka jafn mikið til jólanna. Jemm Jemm Jemm. Ég verð nú samt að viðurkenna það að andi jólanna er ekki alltaf yfir mér þegar ég er að hengja upp jólaseríurnar, sérstaklega ekki þegar helvítis draslið tollir ekki uppi, þá gæti ég hengt heilagann Nikulás í seríunni, sérstaklega ef hann tæki upp á því að birtast og segja: "hóhóhó og gleðileg jól", á meðan ég er eins og kripplingur uppi í gluggakistu að vesenast við seríurnar. En svo þegar seríurnar eru komnar upp, þá verður Jón glaður og setur jólalögin á. Já jólalögin. Tölum aðeins um þau.
Þar sem maður er nú jólanörd og tónlistarnörd þá er nú ekki úr vegi að minnast á það að maður hefur nú vissar skoðanir á góðri jólatónlist. Ég á mér ekkert uppáhalds jólalag, öll jólalög sem eru vönduð og minna á jólin eru einfaldlega bara nógu góð. En ég þoli ekki þegar einhverjir fávitar reyna að semja jólalög bara til þess að hafa samið jólalög, eða þá setja jólalög í sinn búning(til hins verra þ.e.a.s.), eða það sem verra er, taka erlend lög sem ekki eru jólalög og íslenska þau yfir í jólalög!!!!! Hvaða helvítis kjaftæði er það.
Byrjum á liðinu sem semja jólalög til þess eingöngu að semja jólalög. Hræðilegasta jólalag sem ég hef heyrt er hið hörmulega "Jólin eru að koma" með Í svörtum fötum. Hvaða hryllingur er það, þetta hljómar eins og þeir hafi allir sprautað sinnepi í rassgatið á sér og áttað sig svo skyndilega á því að jólin væru að koma og gargað það í kór á sársaukafullan máta, alger fokkings hryllingur!!!
Og hvað í andskotanum var Stefán Hilmarson að gera með lagið hans Cat Stevens, hvað í andskotanum??? Eða Bo með djente dí mare? æ æ æ æ æ æ æ.
Þessa daganna er ég að hlusta á Christmas with the Beach Boys sem Hulda gaf mér í skóinn í fyrra, þar er vandaður jóladiskur á ferðinni og mjög svo skemmtilegur. Svo er diskur sem heitir "Í hátíðarskapi" sem er líka alger snilld. Strumpajól er líka alger snilld og svo mætti lengi telja. Jemm Jemm Jemm.
Jól Hafniði
P.S. ég er enn að bíða eftir því að Iron Maiden gefi út jóladisk, hann yrði örugglega alger hörmung, en ég mundi engu að síður hampa honum.

miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Déskotans væl er þetta!
Jæja djöfull er ég nú búin að vera slakur í blogginu undanfarið, þetta er nú bara hálf hrottafengið. Svona er þetta bara stundum, maður annaðhvort nennir ekki að blogga og andagiftin er bara ekki til staðar, annars er svo sem ekkert vesen að henda fram einhverju tómu kjaftæði. Jemm jemm jemm.
Það er alveg með ólíkindum hvað tíminn er fljótur að líða þessa önnina maður, enda búið að vera meira en nóg að gera. Ég er búin að sjá hluti sem ég átti nú ekki von á að sjá. Ótrúlegt hvað sumt fólk getur farið illa með sig, sumt lið sem byrjar snemma í rugli er orðið handónýtt líkamlega og andlega á aldrinum 25-30 ára. Stór hluti af fólkinu sem skilar sér hingað niður í skóla er svona statt, allt upp í þeim er í rusli, og þá meina ég rusli, við erum að tala um Tsjernobil. Það fer í meðferð, áttar sig á því að tannviðgerðirnar sem framundan eru fara fram úr öllum þeirra fjárhagslegu martröðum (geta sjálfsagt gert ráð fyrir því að aurinn sem farið hefur í dóp um ævina þarf að fara aftur í tannlæknakostnað). Og hvað gerir þetta fólk? Jú það kemur til okkar. Vandinn er bara sá að stundum er þetta svo svaðalegt að manni endist ekki aldur til þess að laga þetta allt. Stundum er ekkert gert meira heldur en að hreinsa tannstein í þessu liði og svo er það sent út í bæ því að þetta er nemendum ofviða. Og ég sé það nú ekki fyrir mér að í öllum þessum tilfellum þá fari fólk bara beinustu leið til tannlæknis og láti laga allt. Það lætur laga eitthvað, fellur, hættir að mæta, svo eftir svona fimm ár er nógu mikið dottið úr og ónýtt til þess að við hérna í skólanum getum smíðað heilgóm eða part upp í það. Ja hérna hér segi ég nú bara, ja hérna hér. Farið vel með ykkur gott fólk.
Jón Hafliði. Tannlæknanemi með hugsjón.

fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Þú verður bara að bíta á jaxlinn í smástund!
Þetta var ég næstum því búin að segja við tannlausa manneskju um daginn þegar ég var að vinna að því að smíða upp í hana gervitennur. Ég átti erfitt með mig í smástund. En sumir hefðu sjálfsagt klárað setninguna og skammast sín í langan tíma á eftir. Ja hérna.
Er einhver búin að sjá Doom? Haldið þið að hún sé góð? Þegar ég segi góð þá meina ég í raun "hvorki meira né minna heldur en það sem maður býst við af henni, stórar byssur, skrímsli og fullt af blóði og "töff" setningum".
Kv. Jón, stundum hugsa ég áður en ég tala, en ekki alltaf.

föstudagur, október 28, 2005
Óhljóðakvikindi.
Nei, ég er ekki að fara að skrifa um Bigga í Maus.
Ég fór í einhverju reiðuleysi á netið og fannst ég bara verða að gúgla upp Tasmaníudjöfulinn. Það var reyndar ekki í þeim tilgangi að fræða mig meira um þann mæta teiknimyndakarakter heldur til þess að fræðast örlítið um..........hundinn. Já, hundinn. Athyglisvert kvikindi, eflaust skildur púðluhundum þar sem þeir láta öllum illum látum og ráðast á allt og reyna að éta það, þó svo að viðkomandi dýr sé talsvert stærra. Mín kenning er sú að púðluhundar séu ekkert nema Tasmaníudjöfull með krullur!. En allaveganna þá líta þessir hundar út fyrir að vera blanda af hundi, svíni, rottu og krókódíl(þegar hann opnar kjaftinn). Svo gefur hann frá sér hryllileg óhljóð og það er nú ekki úr vegi að nefna það að hljóðin á honum minna dálítið á hljóðin sem snjódýrin í The Empire Strikes Back gáfu frá sér. Til valið fyrir Star Wars nörda að tékka á því. Annars getið þið lesið um þetta HÉR
Já svo má nú minnast á það fyrst við erum að tala um dýr hérna að ég og Knúturinn vorum á röltinu í bænum um daginn og gengum þar fram á hóp af vitleysingum. Þessir vitleysingar voru að mótmæla tilraunum á dýrum, töluðu um að á Keldum ynnu morðingjar og blablabla. Og auðvitað eru þetta allt grænmetisætur (hef ekkert á móti grænmetisætum, mér finnst grænmeti fínt). Mér datt annars í hug þar sem við horfðum upp á þessa vitlteysinga með skiltin sín að fara í næstu gæludýrabúð og kaupa nokkrar mýs, bíta af þeim hausana og kasta þeim í vitleysingana........Mér var kalt og ég var pirraður. Svo er svo skondið með þessa vitleysinga að þeir eru svo allir í ullarpeysum.....er þeim þá alveg sama þó að vesalings lömbin séu rúin á hverju ári og svo slátrað? Æ ég veit það ekki. Þetta eru nú bara svona vitleysisvangaveltur.
Hálfvitar og fífl
ble. J.H. Sigurjónsson

sunnudagur, október 23, 2005
Hver finnst ykkur fyndnastur í Monty Python hópnum?
Og svarið nú!
Mér finnst Michael Palin fyndnastur. Þegar hann er að leika Pílatus í Life of Brian er eitt það fyndnasta atriði í bíómynd sem ég veit um!! "thvow im to the floov". Dásamlegt. " What´s so funny about.........Biggus......Diggus?" O.s.frv. Hrein og klár snilld.
J.H.S.A.

föstudagur, október 14, 2005
Viltu veita mér þann heiður að þiggja þessa rós?
NEI!!!!!!!! NEI!!!!! NEI!!!!!!!NEI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hvað er að verða um þetta land. Heilagur saur maður. Þessi nýi þáttur þarna á Skjá Einum...............NEI!!!!!! Uss maður þetta er alveg skelfilegt. Þetta er kannski svaka skemmtilegt í Bandaríkjunum þar sem menn í Harvard eru nógu heimskir til þess að taka þátt í svona. En á Íslandi eru einu gaurarnir sem eru nógu vitlausir til þess að fara í svona einhverjir dópistar og saklaus landsbyggðarstrákur sem vinnur í Bónus á Nesinu. Og auðvitað hleypa þeir saklausa, vöðvastælta drengnum inn. Heyri ég "Sveitapiltsins draumur" óma í fjarska???? Ja hérna hér. Ef hann er að grínast þá er hann snillingur, ef ekki..........jahhhh.
Ég er nú samt ekki berjandi í borðið alveg brjálaður þegar ég horfi á þetta (já ég hef horft á þetta þrátt fyrir allt), heldur ligg ég með teppi yfir hausnum og hlæ geðsýkislegum hlátri og garga eins og gamall hani sem nýbúið er að reyta. Þetta er bara svo......bara svo.......ég veit það ekki.......pínlegt? Hallærislegt? Asnalegt? Allt þetta og meira til? Svona á ekki að gera hérna, við erum stoltari en það ekki satt? Ekki satt? Kannski er ég bara klikkaður. En svo er einhver þáttur að byrja sem kallast Ástarfleyið!!! En hræðilegt maður. Íslenskar ruslútgáfur af bandarísku rusl sjónvarpsefni. Æ Æ Æ Æ Æ. Mig verkjar í skrokkinn. En ég vona samt að Steini finni konu drauma sinna........sveitapiltsins drauma.
Jón, trylltur með bros á vör.

fimmtudagur, september 29, 2005
I Wish I Was in New Orleans
hmmmmmm ætli Björn Málmkvist hafi verið að hlusta á Small Changes með Tom Waits þegar hann var beðinn um að fljúga til New Orleans í kjölfar hamfarana þar? Eitthvað hlýtur að hafa kallað á hann. Ekki hefði ég viljað fara þangað. Hef alltaf viljað fara þangað en......bara ekki núna.
Annars er stefnan tekin á Hvalfell við Hvalvatn í botni Hvalfjarðar um helgina. Svo er Glymur þarna víst líka. Þetta verður gaman.
Jón Halðiðirijriði............þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það var erfitt fyrir mig að læra að bera fram mitt eigið nafn þegar ég var krakki.

föstudagur, september 23, 2005
Staðreyndirnar 5. Söguleg skáldsaga
Ja hérna hér, þetta staðreyndadót er nú meira dótið. En best að gera sitt besta.
1. Meira en helming ævi minnar hef ég verið forfallinn Iron Maiden aðdáandi og er enn. Gerði í því að þvinga vini mína til þess að vera það líka með vel útfærðum heilaþvotti. Það tókst ekkert svakalega vel.
2. Ég tala mikið við sjálfan mig í huganum þegar ég er undir einhverju álagi. T.d. ef ég er eitthvað stressaður í skólanum við einhverja tannlæknavinnu þá gæti ég hugsað eitthvað á þennann veginn: "ætti ég að gera þetta svona?..........já drífðu í því, hvað gæti svo sem komið fyrir?"...........Ekkert gerist. "Svona ekkert rugl, það hjálpar ekkert að vera eitthvað að stressa sig á þessu"....."það sakar kannski ekkert að spyrja kennarann"........."nei það á að gera þetta svona...það er alveg á hreinu". Svo þagnar allt.
3. Ég laug því að meirihluta vina minna þegar ég var lítill, að ég þekkti apa sem byggi í steinahrúgunni fyrir neðan skógræktina. Þessi api hét, eða heitir ef einhvern trúir en á hann, Kalli Karamella. Reglulega voru farnir leiðangrar upp í fjall til þess að ég gæti kynnt vini mína fyrir þessum apa og fylgdu því langar leitir í skógræktinni. Hér með bið ég alla þá sem þurftu að koma með í þessa leiðangra afsökunar. En Kalli er enn til.......í hjörtum okkar.
4. Ég á tvo bassa, einn 5 strengja Warwick, hann er grænn og er gjarnan kallaður Græna Slumman. Okkar samband hefur staðið í 9 ár. Hinn bassinn er 4 strengja bandalaus Godin bassi. Venjulega bara kallaður "Þessi Bandalausi". Það samband hefur staðið í 3 ár.
5. Ég nenni ekki að koma með fimmtu staðreyndina. Þær ættu bara að vera fjórar.....eins og frumefnin.
Svo fór um sjóferð þá. Klukka Húllu, Huga, Hlynsa Ben, Helga Már o.fl. o.fl.
Kv. Jón Hafliði