föstudagur, október 14, 2005

Viltu veita mér þann heiður að þiggja þessa rós?

NEI!!!!!!!! NEI!!!!! NEI!!!!!!!NEI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hvað er að verða um þetta land. Heilagur saur maður. Þessi nýi þáttur þarna á Skjá Einum...............NEI!!!!!! Uss maður þetta er alveg skelfilegt. Þetta er kannski svaka skemmtilegt í Bandaríkjunum þar sem menn í Harvard eru nógu heimskir til þess að taka þátt í svona. En á Íslandi eru einu gaurarnir sem eru nógu vitlausir til þess að fara í svona einhverjir dópistar og saklaus landsbyggðarstrákur sem vinnur í Bónus á Nesinu. Og auðvitað hleypa þeir saklausa, vöðvastælta drengnum inn. Heyri ég "Sveitapiltsins draumur" óma í fjarska???? Ja hérna hér. Ef hann er að grínast þá er hann snillingur, ef ekki..........jahhhh.
Ég er nú samt ekki berjandi í borðið alveg brjálaður þegar ég horfi á þetta (já ég hef horft á þetta þrátt fyrir allt), heldur ligg ég með teppi yfir hausnum og hlæ geðsýkislegum hlátri og garga eins og gamall hani sem nýbúið er að reyta. Þetta er bara svo......bara svo.......ég veit það ekki.......pínlegt? Hallærislegt? Asnalegt? Allt þetta og meira til? Svona á ekki að gera hérna, við erum stoltari en það ekki satt? Ekki satt? Kannski er ég bara klikkaður. En svo er einhver þáttur að byrja sem kallast Ástarfleyið!!! En hræðilegt maður. Íslenskar ruslútgáfur af bandarísku rusl sjónvarpsefni. Æ Æ Æ Æ Æ. Mig verkjar í skrokkinn. En ég vona samt að Steini finni konu drauma sinna........sveitapiltsins drauma.

Jón, trylltur með bros á vör.

Engin ummæli: