föstudagur, október 28, 2005

Óhljóðakvikindi.

Nei, ég er ekki að fara að skrifa um Bigga í Maus.

Ég fór í einhverju reiðuleysi á netið og fannst ég bara verða að gúgla upp Tasmaníudjöfulinn. Það var reyndar ekki í þeim tilgangi að fræða mig meira um þann mæta teiknimyndakarakter heldur til þess að fræðast örlítið um..........hundinn. Já, hundinn. Athyglisvert kvikindi, eflaust skildur púðluhundum þar sem þeir láta öllum illum látum og ráðast á allt og reyna að éta það, þó svo að viðkomandi dýr sé talsvert stærra. Mín kenning er sú að púðluhundar séu ekkert nema Tasmaníudjöfull með krullur!. En allaveganna þá líta þessir hundar út fyrir að vera blanda af hundi, svíni, rottu og krókódíl(þegar hann opnar kjaftinn). Svo gefur hann frá sér hryllileg óhljóð og það er nú ekki úr vegi að nefna það að hljóðin á honum minna dálítið á hljóðin sem snjódýrin í The Empire Strikes Back gáfu frá sér. Til valið fyrir Star Wars nörda að tékka á því. Annars getið þið lesið um þetta HÉR

Já svo má nú minnast á það fyrst við erum að tala um dýr hérna að ég og Knúturinn vorum á röltinu í bænum um daginn og gengum þar fram á hóp af vitleysingum. Þessir vitleysingar voru að mótmæla tilraunum á dýrum, töluðu um að á Keldum ynnu morðingjar og blablabla. Og auðvitað eru þetta allt grænmetisætur (hef ekkert á móti grænmetisætum, mér finnst grænmeti fínt). Mér datt annars í hug þar sem við horfðum upp á þessa vitlteysinga með skiltin sín að fara í næstu gæludýrabúð og kaupa nokkrar mýs, bíta af þeim hausana og kasta þeim í vitleysingana........Mér var kalt og ég var pirraður. Svo er svo skondið með þessa vitleysinga að þeir eru svo allir í ullarpeysum.....er þeim þá alveg sama þó að vesalings lömbin séu rúin á hverju ári og svo slátrað? Æ ég veit það ekki. Þetta eru nú bara svona vitleysisvangaveltur.

Hálfvitar og fífl

ble. J.H. Sigurjónsson

Engin ummæli: