fimmtudagur, desember 22, 2005

Talandi um Stokkhólmsheilkennið...eruð þið búin að sjá King Kong?

Fórum á hana í gær. Þrusumynd, hef nú því miður ekki séð upprunalegu myndina en þessi var a.m.k. mjög góð. Mæli eindregið með henni. Eitt ógeðslegasta atriðið í myndinni er helvítis skordýraatriðið, liðið lendi ofan í einhverri stórri sprungu og þar er allt morandi í einhverjum risastórum pöddum og möðkum og ég veit ekki hvað og hvað. En það sem gerir þetta atriði en ógeðslegara er tónlistin...eða öllu heldur skorturinn á henni, það heyrist eiginlega ekkert nema bara einhver slepju og klikk hljóð og angistaróp í mönnunum sem þar eru. Peter Jackson kann sko sitt fag. Skellið ykkur á þessa mynd sem allra fyrst.

Gleðileg jól gott fólk og hafið það sem allra best.

jólakveðjur...Jón Hafliði.

Engin ummæli: