Ég er þessi týpa sem fæ algera dellu fyrir sumum hlutum. En oftast líður þessi della hjá á nokkrum dögum og er ég hættur að taka þessar flugur alvarlega. Núna er ég með æði fyrir "rómantískum" kvæðum og stefnan er að safna þessum kvæðum í bók og gefa út fyrir jól. Ég tek sjálfan mig ekki alvarlega á slíkum stundum og fæ mér þess í stað bara kaffibolla og hlæ að kjánaskapnum í mér. En ég ætla að deila með bloggheimum einu slíku kvæði og endilega hendið fram einhverju kvæði í þessum stíl í commentin ef þið eigið þau til. (Mig vantar nefnilega kvæði í bókina sem ég ætla að gefa út).
Þórólfur með þéttan pung
þrammar eftir velli
Á honum eistun eru þung
átján pund með belli
Limur Eistnaskáld
Engin ummæli:
Skrifa ummæli