Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó!!!!!
Takk fyrir, svona á þetta að vera maður, kafsnjór og hér um bil ófærð. Ég hlæ framan í þá sem ekki eru komnir á vetrardekk! Hahahahaha!!! hahahaha! Það kom yfir mig sælutilfinning þegar ég leit út um gluggann á lesstofunni í skólanum í dag. Venjulega horfi ég beint á Landspítalann en í dag sá ég hann ekki út af snjókomu og skafrenning. Svo gekk umferðin að sjálfsögðu löturhægt. Æðislegt. Yndislegt. Já það verður seint sagt að ég hati snjó. Snjór er frábær. Þvílíkur fortíðarljómi sem kom yfir mig hérna í dag þegar snjónum kyngdi niður. Svo er þetta líka fullkominn snjókúlusnjór!!! Já svei mér þá, ég held ég gefi skít í lyfjafræðiprófið!! Ég er farinn út að búa til snjókall og kasta snjókúlum í gamlar kerlingar!!
Snæfinnur Hasshaus.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli