Það var, er og verður alltaf töff að vera í rokkhljómsveit!!
Ég var/er í rokkhljómsveit (góðar rokkhljómsveitir hætta aldrei, þær leggjast bara í dvala). Hún heitir Rufuz og hét þar á undan Vent! Það er tvímælalaust ein sú skemmtilegasta hljómsveit sem ég hef nokkurn tíma verið í. Ég tek undir það sem Hlynur og Orri sögðu um þessa hljómsveit. Þetta er ein af þessum hljómsveitum þar sem góðir vinir koma saman til þess að leika sér og spila tónlist sem þeir hafa gaman af og eru ekki að því fyrir neinn nema sjálfan sig. Hrein skemmtun. Þetta er svipað og þegar maður fór að leika sér að He-Man köllum þegar maður var lítill, það var einfaldlega alveg ótrúlega gaman og tíminn flaug meðan maður var að því. Við urðum nú aldrei neitt frægir en við náðum a.m.k. að taka upp heilmikið efni sem er alveg stórkostlegt að hlusta á þegar maður er lítill í sér og finnur fyrir einhverri fortíðarþrá. Á þessari síðu HÉRNA eru nokkur af þessum lögum og mæli ég eindregið með því að fólk hlusti. Þetta er mikil snilld!!!!!
K.O.R.I.T.F.W.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli