þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Hver er tilgangur bloggsins?

Ég veit það ekki. Mér finnst bara gaman að skrifa einhverja vitleysu á stafrænt blað. Mig langar til þess að skrifa um skemmtilega atburði sem gerast í mínu lífi en því miður er líf tannlæknanemans fremur fábrotið, nema þið viljið lesa um svæsin tannholdsbólgu tilfelli eða hvernig lyfjaform henta best fyrir fólk sem er t.d. meðvitundarlaust. En ég efast um að fólk hafi gaman af því að lesa það. Því hentar mér best að segja frá mínu fábrotna lífi með miklu aukalegu kryddi. Að vísu er allt sem ég hef sagt um mína stórkostlegu líkamsbyggingu staðreynd, ég er algert hönk, það er staðreynd og það vita það allir sem hafa séð mig. Ég er alveg hreint stórkostlegur náungi og í óravíddum alheimsins þá er ég marktæk stærð eitthvað annað en venjulegt fólk sbr. Orra. Hversu stórkostlegur getur einn maður verið??? Jú jú, mikið rétt, svona stórkostlegur. (ég ætla ekki að setja inn mynd af mér því að fegurðarljómi hennar gæti ollið yfirliði eða einhverju þeim mun verra!!)

Kv. Hafliðinn

Engin ummæli: