þriðjudagur, desember 07, 2004

Íslendingar hljóta að vera stórskrýtnir!!!

Já mér líst ekkert á þetta. Var að lesa í fréttablaðinu í morgun um Sigurrós. En sú blessaða hljómsveit er að fara að setja eitt lagið sitt í mynd með Bill Murray. Ekkert að því, Bill er snillingur. En það vakti mig til umhugsunar. Viljum við að Sigurrós verði frægir? Það er of seint að spyrja að þessu því að þeir eru þegar orðnir nokkuð frægir en hefðum við ekki átt að spyrja að þessu? Var ekki nóg að okkar frægasti Íslendingur væri Björk? Hún er stórkostlegur tónlistarmaður og allt það en hún er líka alveg hreint stórskrýtin, meira en lítið furðuleg. Og hún er ein stærsta landkynning sem við eigum!! Og hún er stórskrýtin (fæ aldrei nóg af þessu orði). Svo koma Sigurrós! Það þarf engan eldflaugasérfræðing til þess að sjá það að þeir gætu alveg eins verið nýskriðnir úr einhverri holu þar sem þeir hafa verið aldir upp af rassálfum (ég sá þá labba út af Prikinu um daginn). Þarna er okkar næst stærsta landkynning. Hvað á fólk út í heimi eftir að hugsa? "wwoooh, those Icelanders are extremely weird!!". "Let´s go take a look at them". Túristar eiga eftir að koma hingað í massavís, en ekki til þess að skoða Ísland, heldur til þess að sjá heilu hjarðirnar af Björkum og Sigurrósar-holubúum!! En svo koma þeir hingað og hvað? Engin Björk, engin Sigurrósar-rotta! Fullt af venjulegu, hversdagslegu fólki! Ef þeir verða heppnir þá sjá þeir Megas og fá meira heldur en þeir borguðu fyrir. Jahhh jedúddamía.

J.

Engin ummæli: