Eins og mér sé ekki sama!/Nick Cave
Jóakim og frú voru að skilja...............eins og mér sé ekki sama!
Rut Reginalds er komin með nýtt útlit...............eins og mér sé ekki sama!
Það gengur á með skúrum í Ameríku............eins og mér sé ekki sama!
Nick Cave var að gefa út nýja plötu.................AHA, það er mér ekki sama um! Ég er nú reyndar enginn ofsafenginn aðdáandi og ég á bara einn disk með honum og er það Murder Ballads sem er algert snilldarverk sem fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um morð og slíkan sora og stendur þar lagið "Stagger Lee" upp úr þar með línum eins og: "Well, those were the last words that the barkeeper said ´Cause Stag put four holes in his motherfucking head". Og svo er það líka lagið sem allir þekkja, en það er "where the wild roses grow" þar sem Cave syngur á móti Kylie Minogue. En mér skilst að nýja platan hans sé ekkert nema tær snilld og er því alveg tilvalið að verla hann. Já svei mér þá ég held ég drífi bara í því.
Bad motherfucker called Stagger Lee!!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli