Hvern langar í 40" breiðtjalds sjónvarp??? Ekki mig!!!!!!!
Aldrei taka þátt í sms leikjum hjá BT nema þið hafið fulla trú á því að þið vinnið. Ég tók þátt í slíkum leik í vikunni og..............ég vann að sjálfsögðu. EN!!!!!!!!! Þar sem ég hafði ekki trú á því að ég mundi vinna þá nennti ég ekkert að vera að fara niðrí BT í morgun til þess að vera viðstaddur þegar vinningshafi yrði dreginn út, því ég yrði nú ekki svo heppinn, svo var ég ekki á bíl, var þreyttur eftir næturvakt og svona og svo til þess að undirstrika það enn og aftur þá vinn ég ekkert í svona leikjum!!! Og hananú!!! En þeir í BT ákváðu að ef vinningshafinn væri ekki kominn þegar dregið væri aðalvinninginn þá yrði hringt í hann og honum sagt að hann hafi fimm mínútur til þess að komast í BT til þess að sækja vinninginn en svo yrði dregið aftur.................ég var með símann á silent því ég var að fara að sofa. En svo er mér litið á símann. 1 missed call. "Hmmmmmmmmm? Hver gæti þetta nú hafa verið?" Hugsaði ég. Ég lagði símann frá mér og ákvað að fara að sofa. "Hver ætli þetta hafi verið?" hugsaði ég aftur og ákvað að hringja í númerið. Það var svarað. "halló" sagði röddin í símanum. "halló.....það var verið að hringja í mig úr þessu númeri áðan" sagði ég. "já....er þetta 8685226?" Sagði röddin. "já" Sagði ég. Þá sagði röddinn: "Já þetta var út af aðalvinningnum í BT sms leiknum..........við biðum í fimm mínútur og hringdum svo í annan........því miður"........................................................"ó" Sagði ég og hló taugaveiklunar hlátri "EEheheahíhóhahiaaaaa" hló ég..........."jæja"............................."OK"...................................."bless".
Af hverju þurfti ég að hringja?!?!?!?!?!?! En svo hugsaði ég nú bara með mér: "Það er hvort eð er ekkert pláss fyrir þetta flykki hérna og sjónvarpið sem við erum með er alveg nógu gott..............maður fær bara augnverki og svona af því að horfa á svona stórt sjónvarp og það verður ekkert gaman að fara í bíó lengur ef maður er með svona breiðtjald heima hjá sér, svo eyðir þetta örugglega rosalegu rafmagni" Þannig að........Hvern langar í 40" breiðtjalds sjónvarp???????? Ekki mig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli