Neistaflug........................
Jæja það var sko mikið fjör fyrir austan um helgina maður. Fjörið byrjaði í Neskaupstað í stúku Egils Rauða á fimmtudagskvöldinu þar sem við Búálfar störtuðum helginni af gömlum og góðum vana og var fjörið alveg með eindæmum, það mættu 160 manns á barinn og var staðurinn orðinn fullur klukkan 2200, semsagt þetta er greinilega orðin hefð sem er komin til að vera. Svo fór ég á föstudaginn og sótti Huldu til Egilstaða og vorum við þar fram eftir degi og svo spiluðum við Búálfar í svæðisútvarpinu og um kveldið þá spiluðum við á balli í Borgafirði eystri og var það að sjálfsögðu alger snilld, fullt hús af fullu fólki á öllum aldri.........alveg eins og það á að vera á balli með Búálfunum. Svo á laugardagskvöldinu spiluðum við í brúðkaupsveislu hjá Hálfdáni og Erlu og var það alveg stórkostlegt stuð, ballið var í risatjaldi og voru heybaggar út um allt og áfengið flæddi í gríðarlegu magni.....alveg eins og það á að vera á balli með Búálfunum. Svo á sunnudeginum þá var sko rifjað upp rokkið og voru Rufuz tónleikar haldnir í Blúskjallaranum og tókust þeir alveg prýðilega, þetta var hrátt og flott......alveg eins og góðir rokktónleikar eiga að vera. Svo er maður bara að jafna sig eftir helgina núna......með tvær kippur af bjór í ísskápnum sem bíða þess að vera drukknar. Skál fyrir góðri verslunarmannahelgi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli