Gerpi
Ég fór á vídjóleigu í gær og rakst þar á algert gerpi. Þetta gerpi var Sindri Eldon held ég að hann heiti, sonur Bjarkar Guðmunds.....gerpis. Þvílíkt gerpi hef ég sjaldan séð og hefur maður nú rekist á þó nokkur. Þeir sem hafa séð hann í sjónvarpinu vita hvað ég á við....þetta er nánast hin fullkomna ímynd gerpis. Enda er hann sonur Bjarkar sem er nú einn frægasti íslendingur seinni ára og hún er.....jú mikið rétt, algert gerpi. En það er alveg ótrúlegt hvað mörg gerpi hafa gert það gott og hluti sem eru bara ekkert svo galnir. Dæmi um gerpi sem hefur vegnað ágætlega er Jónsi, söngvarinn í Sigurrós, en hann er algert gerpi líka, rangeygur, talar ekki við neinn og einfaldlega bara stórfurðulegt gerpi, en ágætis byrjun er ein besta plata sem ég hef hlustað á. Talandi um Jónsa, en þá má nú ekki gleyma gerpinu okkar úr eurovision en hann er prýðisgerpi, en ég er nú ekki að segja að hann hafi gert neina stórkostlega hluti, eigum við ekki bara að segja að hann sé að standa sig í því að vera mágur hans Malla sem er síður en svo gerpi. Svo er það að sjálfsögðu Michael Jackson en hann er nú konungur gerpanna en það verður samt að segjast að Thriller var alveg þrælgóð plata, enda eftir gerpi. Ekki má gleyma strandargerpinu honum Brian Wilson úr Beach Boys en hann var sko eitt af aðal gerpunum í tónlistarbransanum á sínum tíma, svo mikið gerpi að Alice Cooper og Iggy Pop forðuðu sér úr partýi hjá honum sökum þess að hlutirnir hefðu verið orðnir einum of furðulegir, en þá var Brian að láta þá radda saman.....eftir sínu höfði. En Brian Wilson er engu að síður einn mesti snillingur poppsögunnar (veit ekki hvort Jóni Knúti hafi tekist að heilaþvo mig svona rosalega). Roger Waters var og er gerpi. Kraftwerk eru nördagerpi, hver sem hefur séð þá á tónleikum í ljósagöllunum sínum syngjandi "we are the robots" eru sammála því. Hallbjörn Hjartarson, kúrekinn í bleika bárujárnskofanum er eitt af mínum uppáhalds gerpum enda hæfileikaríkur með eindæmum, ég meina: kántrí 1,2,3,4,5 o.s.frv. Alger snilld. Jæja svona mætti lengi telja upp fræg gerpi sem hafa gert sniðuga hluti í tónlistinni. En ég þarf víst að láta mig hverfa. bleble
Kv. Jón Hafliði
Engin ummæli:
Skrifa ummæli