Ég er í erfiðri klemmu!
Nú er ég eins og flestir vita bassaleikari og frekar mikið bassanörd svona almennt litið. Ég er t.d. áskrifandi að Bass Player, á tvo bassa, á hundleiðinlega diska með frægum bassanördum og svo fer ég reglulega inn á síður ýmissa fyrirtækja sem framleiða bassa. Nú er svo komið fyrir mér að mig langar í 6 strengja bassa. Af hverju? Spyrja eflaust margir. Af hverju ætti ég að vilja fá mér 6 strengja bassa? Svarið? Bara! Það er töff og býður upp á aðeins fleiri möguleika fyrir mig sem bassanörd. Ég get þá spilað fleiri bassanördalög sem enginn þekkir nema hann sé bassanörd. Og það er frábært. Ég veit að ég kaupi mér 6 strengja bassa einn daginn, ég bara veit ekkert hvenær. En ef ég skildi taka upp á því að kaupa mér 6 strengja bassa fljótlega þá verð ég að vita hvurnig tegund. Ég á Warwick 5 strengja bassa og mér finnst frábært að spila á hann þannig að mögulegt er að kaupa sér 6 strengja Warwick. Svo er til merki sem heitir Pedulla og það er líka mjög fallegir bassar og fá frábæra dóma í Bass Player. Svo er það Yamaha. En ég held að allir helstu bassanördarnir sem spila á 6 strengja bassa spili á Yamaha. Hvað á ég að gera. Ég ætla að nýta mér tæknina og henda inn myndum af þessum bössum og sjá hvað ykkur finnst. En lúkkið er 95% af þessu þegar maður er með 6 strengja bassa. Þeir eru allir góðir. En hver er flottastur? og hver færi mér best. Hugsið um það þegar þið skoðið gripina!
![]()
Það var bara til mynd af 5 strengja týpunni af þessum.

kv. Jón
8 ummæli:
Allt flottir bassar...en ég held að sá efsti sé mest í þínum stíl. Það er mjög milvægt að skapa sér sinn stíl. Og vera síðan trúr sínum stíl.
Þannig að ég kýs þennan efsta. Lifi stíllinn!!
Ég er að hugsa um að gerast stílisti.
Viltu ráða mig??
Hér með ert þú, Orri, orðin minn eigin persónulegi stílisti. Eigum við að fara að versla?
LET'S GO SHOPPING, BABY!!
Vá ég held að ég sé gáfaðri eftir að hafa lesið um bassana þína.. ég mæli með að þú haldir þig við Warwick.. hilsen frá Kaupmannahöfn..
Mér finnst þeir svo fínir sem þú átt fyrir!
Knús,
Húlla
Ég vil meina að sá efsti sé afburða flottastur, það er warwick er það ekki? Allavega er ég sammála orra í því að þú tækir þig best út með hann!
Alltaf rekst maður á nýja fýra hérna á alheimsnetinu. Gaman að því...
Klárlega þessi efsti. Hann er svona verkamanna... hinir eru eitthvað svo kellingarlegir...
Bigs
Skrifa ummæli