miðvikudagur, apríl 23, 2008

Hvað gerist eiginlega næst???

Það er bara allt að verða vitlaust í þessum vörubílstjóramálum! Það er meira að segja reynt að blanda Palestínu inn í þetta rugl, eða svona þannig.
Ég sé alveg fyrir mér næsta stóratburð í þessu hjá vörubílstjórum. Löggan verður komin þarna, Sturla froðufellandi af einhverjum flóknum taugafræðilegum ástæðum, ungmenni í nasistabúningum, grjótkast, táragas og bara algjör ringulreið. Þá kemur aðvífandi risastór, rauður og blár vörubíll. Þögn slær á hópinn. Vörubíllinn stöðvar á miðjum gatnamótum kringlumýrarbrautar og miklubrautar. Hann er ekki með neitt bílnúmer, einhver ræfillinn bendir á þá ómerkilegu staðreynd. Þvílíkur trukkur hefur aldrei sést á gaufslitnu malbiki Reykjavíkurborgar (sá hann samt oft í Gauksmýrinni heima). Hvaðan kom þessi bíll eiginlega? "Er þetta eitthvað fíflið frá íslenskum aðalverktökum?" Spyr Sturla af sinni alkunnu snilld, en hann kannaðist eitthvað við litina á trukknum. Nei þessi trukkur er sko ekki frá ÍAV.




Þetta er engin annar en Optimus Prime úr hinum margfræga ameríska mótmælendahópi trukkabílstjóra, Transformers. Gífurleg fagnaðaróp bárust frá vörubílstjórum íslands þegar þeir áttuðu sig á því hver var þarna kominn og.............

Get ekki haldið áfram, þetta er komið út í alltof mikla vitleysu.

Jón Hafliði

föstudagur, mars 28, 2008

The Lonius Monk

Ég ældi á einhvern starfsmann Skífunnar á Laugaveginum og labbaði út.

Halaði annars niður disk með prog powermetal bandi sem heitir því stórfenglega nafni Kamelot. Hef nett gaman af þessum power metal, gífurlegt goth og gífurlegur metnaður til þess að gera kröftuga og vel flutta rokkmúsík. Sannkallað nördarokk. Mæli eindregið með því að menn tékki á þessu. Platan sem ég halaði niður heitir því drungalega nafni The Black Halo. En ekki hvað?

Var annars á fyrirlestri hjá lýtalækni. Hann tók karlmann, framkvæmdi á honum eitt stykki kynskiptiaðgerð, sýndi okkur fyrir og eftir myndir og sagði: "hérna er komin stúlka sem fer nú og lifir eðlilegu lífi"

Að sjálfsögðu

kv. Jón Hafliði

P.s. heyrðuð þið fréttina um konuna sem lét breyta sér í karl og varð svo ólétt....ur?

sunnudagur, janúar 27, 2008

David Caruso er bara meistari!!!

Tímaspursmál hvenær maður lætur verða af því að stofna aðdáendaklúbb!





mánudagur, janúar 21, 2008

Bobby Fisher fallinn frá!

æ æ

Grafa hann á Þingvöllum sagði einhver.

æ æ

Heyrði eina góða tillögu: Brenna hann og setja hann í farandbikar Skáksambands Íslands. Íslandsmeistari fengi svo að hafa Bobby Fisher á arinhillunni í eitt ár.

Jón Hafliði

sunnudagur, janúar 13, 2008

Mál málanna!

Gömlu vesalingshúsin á Laugaveginum. Agalega er þetta bagalegt með þessi fallegu hús, það er bara alvega hræðil........

Afsakið.

Helvítis gömlu hjallarnir á Laugaveginum. Hvað eru menn að meina mað því að færa þessu kofaskrifli til þess að varðveita eitthvað. Það er eitt að varðveita hús sem eiga rétt á því að vera varðveitt og eitthvað er spunnið er í og annað að halda upp á gamla ljóta kofa sem eru orðnir handónýtir. Algjört væl! Ég segi brennum helvítis kofana og byggjum eitthvað nýrra og betra en þó ekki þannig að það skemmi þessa "fallegu" og "heilsteyptu" götumynd.

Já svo brann einhver kirkja í Kenýa. Nóg um það.

Jón.

föstudagur, desember 07, 2007

Próflestur.
Þessi klausa hangir upp á vegg á lesstofunni í Tanngarði og fær mann oft til þess að stappa í sig stálinu í lestrinum.

3. fasar ringulreiðar

1.fasi: Í þessum fassa átta menn sig á því að þeir hafa misst skipulagið úr höndunum. Í kjölfarið er vaðið úr einu yfir í annað og allt skilið eftir hálfklárað. Hér finnst mönnum námsefnið gjarnan samhengislaust og finna alls kyns blóraböggla, aðra en sjálfa sig, til þess að leggja sökina á. Menn eru hættir að bera harm sinn í hljóði.
2.fasi: Þessi fasi einkennist af miklu endurskipulagi pensúmsins. Menn standa gjarnan oft upp, hugsa stöðu mála, og koma með nýja lestraráætlun í hvert sinn sem þeir setjast niður aftur. Hver áætlunin á fætur annarri rennur hins vegar út í sandinn. Nú eru menn farnir að telja tíma fram að prófi. Þó nokkur ringulreið!
3.fasi: Þegar í nauðina rekur er mjög klassískt að ætla sér að nýta einnig næturnar til lesturs og sofa sem minnst. Undantekningarlaust bregðast þessi áform og menn velja að taka á örlögum sínum. Þessu stigi málsins fylgir TOTAL KAOS, kvíði, skert sjálfsmat, almenn vanlíðan og oft ógleði. .............eða eins og segir í laginu: „History never repeats, I tell myself before I go to sleep...“
J.Vilhjálmsson ´02
Datt í nettan 1.fasa í svona 2-3 klst í gær. Það leið sem betur fer hjá.
Kv. Jón Hafliði

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Það heitasta í Hollywood í dag!

Já það verður ekki tekið af kananum að það er margt sérkennilegt sem honum dettur í hug þegar kemur að fegrunaraðgerðum og svoleiðis vitleysu. Sumir eru með þetta í fínu hófi og láta í besta falli hvíta á sér tennurnar eða setja krónur eða eitthvað svoleiðis og er það bara besta mál. Ef menn eru sérlega óánægðir með nefið á sér eða eyru eða með lítil brjóst eða eitthvað þá er hægt að láta laga það og er það bara besta mál, ekkert að því.

En.....Anal Bleaching ?!?!

Þetta finnst mér eitt það stórfenglegasta sem nútímalæknavísindi hafa kallað fram. Alveg er ég viss um að dr.Mengele dreymdi um þessa tækni til þess að fullkomna hinn aríska kynstofn.

Kv. Jón. youthful appearence......everywhere

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

The Clinician

Reykjavík, haustdagar árið 2007.

Önnur skyndiárás í Bagdad, fjöldi saklausra lét lífið. Djöfulsins skítakuldi er úti maður. Klukkan er 06:45. Les lauslega helstu fyrirsagnir í fréttablaðinu á meðan ég háma í mig skyr, ekki eitthvað drasl sem endar á .is heldur alvöru skyr frá KEA. Að vísu bragðbætt með bláberjum og jarðaberjum. Fæ mér líka brauð og ávaxtasafa. Bursta í mér tennurnar, hengi fartölvuna á öxlina, fer út í bíl og keyri af stað. Rás tvö er í gangi, Gestur Einar og einhver kerling að tala saman og renna yfir fyrirsagnirnar í blöðunum. Önnur skyndiárás í Bagdad......ég hætti að hlusta og velti því fyrir mér hvort Ólafur Ragnar sé heima þegar ég keyri fram hjá Bessastöðum. Mögnuð þessi friðarsúla sem sést fjandi vel héðan af Álftanesinu. Það er smá ísing á malbikinu. Skiptir ekki máli, hún fer eftir þrjá tíma. Þarf að fara að láta setja nagladekkin undir. Skil ekki af hverju. "Hvað er eiginlega að þessum mönnum" segir Gestur. Veit ekkert hvað hann er að tala um. "Hérna er lag". Segir Gestur. "Já það líst mér vel á" segir Kerlingin. Svo byrjar lag með Eivöru Pálsdóttir. Held það heiti Mannabarn. Flott lag. Hvað í andskotanum heitir Kerlingin? Er þetta sama Kerling og í gærmorgun? Veit það ekki. Af hverju gefur þetta fífl ekki stefnuljós? Djöfull verður gott að fá sér kaffi. Hlakka til að fara austur í jólafrí. Snjórinn og kuldinn þar er miklu hlýrri heldur en hérna. Og vinalegari. "Jæja "-kvenmannsnafn-" hvernig væri að hlusta bara á eitt lag með bítlunum? Skellum something á" segir Gestur. Hækka í græjunum. Flottur bassinn í þessu lagi maður. McCartney leynir á sér. Helvítis hvalavinurinn. Vill ekki að það sé framleitt Foie gras eins og það er gert. Held að Arnold Svartsenegger borði það í morgunmat. Djöfull er erfitt að þola ekki Paul þegar hann er samt svona mikill snillingur. Hvernig væri að ræna þeim manni, svelta hann í 20 daga, færa honum svo foie gras og súrsað hvalspik á silfurfati. Hver væri væminn þá? Klukkan er 07:35. Fjöldi saklausra borgara í Bagdad lést í sprengjuárás......það er kveikt ljósið í kjallaranum í Tanngarði. Þá eru félagarnir mættir og það er heitt á könnunni. Sest í sófann, lappirnar upp á borð og drekk kaffi úr plastglasi. Hálftími þangað til klíníkin byrjar, sjúklingurinn mætir pottþétt 15 mín of seint og kennir umferðinni um....í þúsundasta skipti. Er bara að tefja það að setjast í stólinn. Þess vegna fæ ég mér annan bolla.

sunnudagur, september 23, 2007

Hvað í andskotanum er það sem gerir íslenskar kvikmyndir merkilegari en aðrar myndir?????

Ég get ekki ímyndað mér hvað það er. Er það kannski sú staðreynd að maður er oftast nær miður sín og fúll út í malbikið þegar maður kemur út úr bíósalnum? Eða að einungis tuttugasta hver bíómynd er grínmynd? Ég veit það svei mér ekki! En eitt er á hreinu!! Það er sú staðreynd að þessir vitleysingar sjá ástæðu til þess að láta vera helmingi dýrara að fara á íslenskar myndir í bíó. Og ekki nóg með það!! Ég sá blaðsnepil hangandi í miðasölunni í smárabíó sem á stóð: "Rétt er að minna á það að ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá ekki afslátt á íslenskar kvikmyndir." Eru íslenskir kvikmyndagerðarmenn og framleiðendur þeirra virkilega svo miklir ræflar að ekki er talið réttlætanlegt að veita ellilífeyrisþegum og öryrkjum afslátt á þessi "meistaraverk" sem þeir eru að skapa? Djöfulsins aumingjar!

Jón Hafliði.....skilur ekkert í því af hverju hann er að æsa sig yfir þessu.

sunnudagur, september 02, 2007

Bloggarinn mikli frá Kashmír snýr aftur úr sumarfríi.

Jæja þá er "the main man" byrjaður að blogga aftur. Skólinn að byrja og allof mikill frítími fyrir framan tölvur blasir við. Ég ætla að gera stutta samantekt á góðum og slæmum hlutum sem gerðust í sumar.

Góðir hlutir: Skemmtileg vinna í sumar, slatti af golfi, setti í fyrsta laxinn, fór til Grænlands, skaut í áttina að nokkrum gæsum, stórfengleg verslunarmannahelgi, gífurlegur dugnaður hjá mér og Huldu í týnslu á berjum og bruggun eðalvíns úr afurðunum, Mývatnsjamm í rjóðri o.fl.

Slæmir hlutir: Græænaaaa grænaaaa byltingin! hversu fullkomlega óþolandi var þetta?
Alltof fáar fjallgöngur. Ekkert alltof gott veður.
Allt fyrir ástina. skelfilegt lag, myndbandið hinsvegar stórkostlegt.

kv. Jón Hafliði

fimmtudagur, maí 10, 2007

Kosningalög?

Ég heyrði framsóknarlagið rétt í þessu. Ég held svei mér þá að þetta séu hálfvitar.

http://www.69.is/openlink.php?id=57261

Jón.

sunnudagur, maí 06, 2007

Próftíð og afmæli

Já, alltaf gaman að eiga afmæli og fara svo í próf daginn eftir. Ég gerði mér glaðan dag á afmælinu mín. Las allan daginn og fékk mér svo pítsu, gott ef ég var ekki 15 mínútum lengur í mat. En ég varð einmitt 26 ára 1. maí. En í huganum verð ég sko 18 till æ dæ. Shitt, djöfull er Kanadíska beikonið rosalegt. Þá er ég að meina Brian Adams, ég hef ekki smakkað kanadískt beikon, en ég ætla mér að gera það einn daginn, úti í Kanada, ekki Íslandi, en ég er ekkert að gera lítið úr íslensku beikoni, það er ágætt, danskt er samt betra, hef ekki prófað kanadískt, en kemur að því einn daginn, ekkert vera að hætta að borða íslenskt beikon þó ég hafi sagt þetta, er ekki verið að fara að flytja inn danskt beikon?, en kanadískt?, veit það ekki, en ætla að smakka það einn daginn.

Þetta voru óþarfa málalengingar.

JHS

laugardagur, apríl 28, 2007

Kosningar, kosningar kosningarkosningarkosningar.......eru í nánd!

Hvað í andskotanum á maður eiginlega að kjósa? Mér lýst nú bara ekkert á þetta lið, er alveg kolringlaður. Er að spá í að láta það ráðast hvaða dýri formennirnir líkjast mest þetta árið, þ.e. hvaða dýr líkar mér best við?







Ingibjörg Sólrún?








Jón Sigurðsson?








Guðjón Arnar?










Steingrímur J.?






Geir?







Ómar?



Svei mér þá ég bara veit það ekki.
kv. Jón Hafliði


þriðjudagur, apríl 24, 2007

Reykjavíkurborg hefur glatað gríðarlegum menningarverðmætum í ljótum bruna!!

haaaaa?
Svakalegur bruni já! gífurleg menningarverðmæti? Er það? Er það virkilega?
Kebab húsið? Aldrei komið þangað inn edrú! Held bara að engin hafi farið þangað inn edrú og fengið sér að éta. Kebab húsið er ekki menningarverðmæti!
Fröken Reykjavík? Bjó ekki Lalli Johns á gólfinu þar? Aldrei farið þangað inn! Króki var eins og heilsuspa við hliðina á þessari sjoppu! Menningarverðmæti? Nei!
Pravda? Nei! Hnakkabú! Ekki menningarverðmæti! Bar! Skítugur skemmtistaður. Ekki menningarverðmæti.
Hvað er fólk eiginlega að væla. Einu menningarverðmætin sem þarna brunnu voru einhverjar gamlar, morknar spítur. Ekkert mál að gera nýtt, enda búið að endurbyggja þetta þúsund sinnum!
Svo eru menn að væla um að götumyndin tapist. Hvaða fokking götumynd? Gamlir spýtukofar og 10/11? Þetta er nú orðið voðalegt snobb eitthvað. Það er nú ekki langt síðan elsti spýtukofi Reykjavíkur í Aðalstræti var rekin sem hommabar undir nafninu Jón Forseti!! Þetta er nú óttalegt rugl. Ef það verða reistir einhverjir nýjir spýtukofar, sem verður eflaust gert, þá verður eina menningarstarfsemin sem fram fer þar gosbjóradrykkja undir afleitri tónlist og skyndibitaát.....og kannski einhver slagsmál. Ég ætla að vitna í góðkunningja minn og segi bara:
"Þessir hommar kunna ekki að skammast sín!!"

Jón, nokk sama hvað gert verður við þessa "verðmætu" götumynd.

föstudagur, mars 02, 2007



Ég er í erfiðri klemmu!

Nú er ég eins og flestir vita bassaleikari og frekar mikið bassanörd svona almennt litið. Ég er t.d. áskrifandi að Bass Player, á tvo bassa, á hundleiðinlega diska með frægum bassanördum og svo fer ég reglulega inn á síður ýmissa fyrirtækja sem framleiða bassa. Nú er svo komið fyrir mér að mig langar í 6 strengja bassa. Af hverju? Spyrja eflaust margir. Af hverju ætti ég að vilja fá mér 6 strengja bassa? Svarið? Bara! Það er töff og býður upp á aðeins fleiri möguleika fyrir mig sem bassanörd. Ég get þá spilað fleiri bassanördalög sem enginn þekkir nema hann sé bassanörd. Og það er frábært. Ég veit að ég kaupi mér 6 strengja bassa einn daginn, ég bara veit ekkert hvenær. En ef ég skildi taka upp á því að kaupa mér 6 strengja bassa fljótlega þá verð ég að vita hvurnig tegund. Ég á Warwick 5 strengja bassa og mér finnst frábært að spila á hann þannig að mögulegt er að kaupa sér 6 strengja Warwick. Svo er til merki sem heitir Pedulla og það er líka mjög fallegir bassar og fá frábæra dóma í Bass Player. Svo er það Yamaha. En ég held að allir helstu bassanördarnir sem spila á 6 strengja bassa spili á Yamaha. Hvað á ég að gera. Ég ætla að nýta mér tæknina og henda inn myndum af þessum bössum og sjá hvað ykkur finnst. En lúkkið er 95% af þessu þegar maður er með 6 strengja bassa. Þeir eru allir góðir. En hver er flottastur? og hver færi mér best. Hugsið um það þegar þið skoðið gripina!







Það var bara til mynd af 5 strengja týpunni af þessum.





kv. Jón

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

I feel so violated.

Jæja, síðasta helgi var alveg þrælgóð. Hulda kom í bæinn en hún átti afmæli auk þess sem það var konudagur og gerðum við okkur því glaðan dag......eða svona að mestu leyti. Hún hafði gefið mér í bóndadagsgjöf nudd í Mecca spa sem var nýtt sér þessa helgi og fékk hún sér að sjálfsögðu nudd líka. Hulda er nautnaseggur og hefur þar af leiðandi nokkrum sinnum farið í nudd og er því vön, en ég engu að síður er tiltölulega sjálfum mér nægur og hef þar af leiðandi aldrei farið í nudd á minni ævi, í besta falli nudda ég stundum bakinu utan í tré eða stóran stein í fjallgöngum. En nú var komið að því, fyrsta, klassíska, íslenska heilnuddið. Ég neita því ekki að ég var dálítið spenntur, því Hulda talar um það að nudd sé gífurlega góð aðferð til þess að slaka á, og það er búið að vera mikið um að vera um dagana og nudd því ekki óvelkomin kostur til slökunar. Svo kom að því, við vorum komin í sloppana og inniskóna og biðum eftir nuddurunum í rólegheitum. Skyndilega arka inn tveir karlmenn.....annar er massaður indverji og hinn kínverskur rindill. Massaði indverjinn vatt sér að mér og kynnti sig........ég man ekkert hvað hann heitir, hugur minn var annars staðar......svo fylgdi hann mér inn í nuddherbergið og sagði mér að leggjast á magann á bekk sem þarna var sem ég og gerði. Herbergið var lítið, dauf lýsing var þarna inni og Friðrik Karlsson á fóninum. "nú skal slaka á maður" hugsaði ég með mér. Svo byrjar nuddið. Massaði indverjinn er búin að maka volgri olíu á bakið á mér og byrjar að nudda........jújú þetta var þokkalegt bara. Hann nuddar axlirnar, bakið og vinnur sig neðar þar til........helvítis gaurinn dregur sundskýluna mína niður á hálfar rasskinnar og nuddar á mér rasskinnarnar með volgri olíunni!!!!!
"Neineineineineineineinei, hvað gengur nú á?" hugsaði ég með mér og tilhugsunin um að slaka á og jafnvel sofna var farin til fjandans og ekki á leiðinni til baka.
Svo þegar hann fór að nudda á mér lappirnar þá strengdi hann sundskýluna upp eins og G-streng svo hann gæti nuddað á mér rasskinnarnar aftur!!!!
"Er þetta eðlilegt? hvernig í andskotanum á ég að slaka á við svona aðstæður???" hugsaði ég með mér. Ég er ekki frá því að ég hafi heyrt hann anda sérstaklega djúpt þegar hann nuddaði þetta svæði........kannski var það ímyndun......nei andskotinn hann naut þess helvítis perrinn.
Næsta hálftímann nuddaði hann hér um bil hvern einasta flöt líkama míns að undanskildum kynfærunum og endaþarmsopinu en hugsanir mínar snerust um það þennan hálftíma hvernig ég skyldi drepa manninn ef hann skildi voga sér þangað með olíubornum fingrunum.
Eftir nuddið fór ég í heita pottinn og fannst Mecca Spa ekki lengur vera kósi og notalegur staður heldur subbulegt stóðlífis perrabæli. Slísí hola.
Hulda kom álíka hissa (en ekki eins mikið enda vanur nuddþegi), úr nuddinu því að kínverski rindillinn lét það ekki duga að nudda hana heldur hoppaði hann ofan á bakinu á henni og togaði í hár hennar þannig að þegar hún kom út úr nuddinu leit hún út eins og Tina Turner á góðum degi.
Það sem gerði þennan dag góðan var gott kaffi, kökur og fínerí sem við fengum okkur í góðu yfirlæti og svo enduðum við daginn á Fosshóteli á Nesjavöllum þar sem við fengum okkur góðan mat og rauðvín og enduðum svo kvöldið í heitum potti og fögnuðum dátt þegar í ljós kom að Eiríkur Hauksson vann undankeppni Eurovision. Um nóttina sváfum við eins og ungabörn.
Ef það er eitthvað sem ég lærði af þessu er það að ég ætla aldrei aftur í svona nudd! Tré og grjót verða látin duga héðan af og kannski leyfi ég Huldu að nudda mig þegar ég verð búin að jafna mig eftir hryllinginn í Mekka Spa.

kv. Jón Hafliði

föstudagur, febrúar 16, 2007

Veit ekki af hverju ég er að blogga núna........veit reyndar ekkert af hverju ég blogga yfirleitt!

Ok, ein....nei tvær samviskuspurningar fyrir alla aðdáendur mína þarna úti.

Hvort finnst ykkur lagið One flottara með U2 eða Johnny Cash?
Hvort finnst ykkur lagið Rusty Cage flottara með Soundgarden eða Johnny Cash?

Fékk tannstein í augað á þriðjudaginn, sá fyrir mér að augað leystist upp á fáeinum dögum. Í einum dropa með tannstein, blóði og bakteríum eru um 1200000000 bakteríur......sennilega fleiri, þetta var stór köggull og stór dropi. Þetta ætti að kenna mér að gleyma ekki helvítis hlífðargleraugunum næst þegar ég fer að skrapa tannstein.

Kv. J.H. Sigurjónsson

föstudagur, febrúar 09, 2007

Ég sá myndbandið með Guðmundi í Byrginu og ég get sko sagt ykkur það að ég er ekki betri maður fyrir vikið!

Af hverju sækist maður í að sjá svona ósóma? Þetta er eitthvað í okkur, kannski getur Orri útskýrt það nánar..........en kannski er þetta bara perraskapur í manni.
Ég vil eiginlega ekkert spá meira í þetta. Var reyndar að spá í hvort að stúlkan sé menntaður rafvirki, þetta var óttalegt snúru og rafskautaflóð þarna.......asskotans hrotti maður.

Er ekki búin að fara í eina einustu fjallgöngu á árinu! Þetta er afleit frammistaða. Nú eru tvö fjöll sem ég stefni á að ganga á á árinu, þ.e. þau eru á toppnum, ætla að sjálfsögðu að ganga á fleiri.
Hekla er númer eitt. Maður verður bara að fara þarna upp að hliði helvítis.
Skarðsheiði, gargar á mig í hvert einasta skipti sem það er gott skyggni hérna í súldinni fyrir sunnan!

Jæja best að fá sér kaffi, klukkan er 0750 og það er siðlaust að fá sér ekki kaffi ef maður er á fótum á þessum tíma sólahringsins.

Jón Hafliði

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Changes

Ég tók mig til og breytti um útlit á síðunni, síðan er ekki lengur sérstök, ég veit það, en græni liturinn heldur sér og ég er búin að læra að setja inn myndir sem ég hyggst nýta mér eitthvað í framtíðar bloggum. Hér til hægri er mynd af mér og kettinum okkar Huldu, Megasi. En þessi köttur er norskur skógarköttur og honum finnst gott að narta í tær sofandi fólks og kann að opna bjórdósir, hann hefur ekki ennþá sýnt neinum gosdrykkjadósum áhuga, bara bjórdósum. Jemm jemm jemm, gott hjá honum. En hér er semsagt meðfylgjandi mynd af kettinum.


Svona, þá kann ég það.

Jón Hafliði.


fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Fífl!!!

Maður í USA skaut önd sér og fjölskyldu sinni til matar. Hann skaut hana tvisvar til að vera viss um að hún væri dauð. Hann setur hana í ísskápinn og liggur öndin þar í tvo daga. Svo þegar kona mannsins ætlar að taka öndina úr ísskápnum til þess að afhausa hana og gera hana tilbúna til átu þá er öndin lifandi!! Kraftaverk!!!
Eðlilegt fólk hefði snúið öndina úr hálsliðnum og svo haldið áfram að undirbúa gómsæta matarveislu. En nei....þetta fólk er fífl.
Þau fara með öndina á dýraspítala og reyna að koma lífi í fiðurféð......og það tekst....þeim og öðrum bandarískum fíflum til mikillar gleði. Helvítis öndin fékk meira að segja nafn!!!! Perky!!!Öndin Perky er nú uppáhaldsönd bandarísku þjóðarinnar og skyggir nú mikið á gamla góða Andrés að mínu mati!!!! Sem er nú bara hreint ekki gott. Hvað fær fólk til þess að vera svona miklir hálfvitar. Manngæska????? Nei!!! Þetta er eitthvað hvítt hyski sem þráir fjölmiðlaathygli eins og venjulegt amerískt barn þráir hamborgara í hvert mál!!! Og gefa öndinni nafn!!!

Fífl!!!

Jón.......aldeilis ekki sáttur við hjartalag hvíts hyskis.